FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Webasto

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Webasto

This topic contains 6 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of  Anonymous 21 years, 7 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 29.10.2003 at 23:37 #193090
    Profile photo of
    Anonymous

    Sælir
    Eru einhverjir aðrir möguleikar en Webasto ef maður vill hlýja vélinni og bílnum án gangsetningar með tilheyrandi útblæstri? Webasto kostar nefnilega svo mange penge.

  • Creator
    Topic
Viewing 6 replies - 1 through 6 (of 6 total)
  • Author
    Replies
  • 29.10.2003 at 23:44 #479394
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Hvað verðið varðar þá er það vafalaust afstætt eins og margt annað. En WEBASTO er gæða vara. Ég hef frábæra reynslu af slíkum hitara.
    Kveðja, Frikki.





    30.10.2003 at 22:11 #479396
    Profile photo of Júníus Guðjónsson
    Júníus Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 46
    • Svör: 256

    Getið þið sagt mér hver er með umboð fyrir Websto . Eru til margar týpur af henni( stærðir). Er með Patrol sem mig langar til að setja olíumiðstöð í.

    Kv. Júnni R 268





    30.10.2003 at 22:27 #479398
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sæll Júnni.
    Spjallaðu við þá hjá Bílasmiðnum á Bíldshöfðanum í Reykjavík.
    Webasto svínvirkar í Patrol.
    Kveðja, Frikki.





    31.10.2003 at 00:40 #479400
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Þú hefur um 3 aðra möguleika að velja en Webasto:

    Eberspacher sem er svipaður búnaður og Webasto, Bílanaust og Turbo (I Erlingsson) hafa verið að selja þær. Ég er sjálfur með eina slíka í öðrum bíl mínum og hefur hún gengið án teljandi vandræða í rúm 5 ár núna þrátt fyrir fullyrðingar þeirra í Bílasmiðnum á sínum tíma um annað.

    Reyndar finnst mér sú sölumennska sem þar er í gangi að segja að þeirra dót sé miklu betra en ruslið frá keppinautnum vera massa léleg sölumennska, en hvað um það, allavega keypti ég Eberspacher nær eingöngu vegna þess að þeir í Bílasmiðnum sögðu mér að þær væru svo lélegar, plús það að hún var ódýrari en Webasto.

    Kostir dísilmiðstöðvar: Virkar hvar sem er, öflugar (4-5KW), hægt að fá þráðlausa fjarstýringu fyrir þá sem skíta peningum.

    Gallar: Hrikalega dýrt, talsvert maus að setja í bílinn, ef einföld klukka er notuð þá þarf alltaf að stilla dag, tíma og blablabla, dugir varla til að hita vél+rúður og annað inni í bílnum án þess að hiti vélar falli mikið og ef miðstöðvarfídus er notaður þá er rafgeymirinn frekar fljótur að tæmast nema bíllinn sé með 2 stóra rafgeyma. Ég nota mína eingöngu til að hita vélina upp, ekki farþegarýmið.

    Í hinum heimilisbílnum er ég með búnað frá DEFA (Bílanaust) sem er norskt, ca 500w hitaelement í blokk og svo hitablásara í bílnum. Mökkvirkar og kostar ekki mikið.

    Kostir: frekar ódýrt og einfalt að setja í flesta bíla, rafmagn er mjög ódýrt, hitar farþegarými mjög vel og allar rúður eru hreinar að morgni, hund einfalt að nota (þe bara að setja í samband og vera með klukku á lögnini) Hægt að setja hleðslutæki á kerfið fyrir rafgeymirinn.

    Gallar: þarf 220 volt sem þýðir þitt fasta bílastæði og raflögn, virkar ekki hvar sem er, Þarf að setja snúru í samband við 220 volt (sem er þó mjög fljótlegt miðað við td að skafa rúður), element (sem kemur í stað frosttappa) yfirleitt bara 500 wött.

    Stilling selur svo svipaðan búnað frá Calix sem ég held að sé sænskur.





    31.10.2003 at 07:05 #479402
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Nú veit ég ekki hvort er betra, Webasto eða Eberspächer, en hvorutveggja er mikið notað í trillubátum og líkar vel hjá þeim sem ég þekki. Hef verið að spá í að fá mér svona miðstöð í bátinn minn því Sóló-eldavélin, þótt traust og örugg sé, er svolítið sein að virka. En hvaða tegund sem menn nota, þá er þetta aldeilis hrikalega gott á fjöllum að geta hitað bílinn svona upp. Auðveldar startið ekki neitt smá þegar frost er eitthvað að ráði. Tveir góðir kunningjar mínir, Óskar Halldórsson og Stefán Jónsson hafa verið með svona, annar í fullorðnum Land-Cruiser og hinn í Patrol og þetta svínvirkar hjá þeim. Gamli DEFA-hitarinn hentar svo afskaplega vel í "the daily commuter" ef maður á gott með að koma rafmagnskapli að honum. En það góða unit notar maður tæplega á fjöllum.





    31.10.2003 at 09:30 #479404
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Hef verið með Webasto í 2 Landcr. 80 bílum sem ég hef átt og ég segi hiklaust að þetta sé besti "aukahlutur" sem ég hef fjárfest í. Meira að segja er konan sammála. Þetta kostar að vísu skildinginn en er fullar krónu virði. Ég keyri daglega stuttar vegalengdir í vinnu og fyrir sæmilega stóra dieselvél er það ekki mjög heppilegt til lengdar. Með miðstöðinni er vélin heit auk þess sem hún hitar upp innanrýmið sem er hrikalega þægilegt en líka er bílinn alltaf þurr að innan (ekki raki í teppum sem sest á rúður). Á fjöllum er þetta ekki síður gott, bílinn fer alltaf í gang og hægt er að láta miðstöðina orna sér ef sofa þarf í bílnum. Er búinn að vera með Webasto í 2 ár og hefur ekkert komið upp á. Tiltölulega lítið mál er að færa miðstöðina á milli bíla ef maður vill ekki lenda í því að kaupa nýja í annan bíl.

    Sem sagt, bara kostir ef frá er talinn stofnkostnaður.





  • Author
    Replies
Viewing 6 replies - 1 through 6 (of 6 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.