FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Vörn fyrir teygjukaðal

by Halldór Eggertsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Vörn fyrir teygjukaðal

This topic contains 7 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Halldór Eggertsson Halldór Eggertsson 18 years, 2 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 09.04.2007 at 20:55 #200096
    Profile photo of Halldór Eggertsson
    Halldór Eggertsson
    Participant

    Ég keypti mér 15metra teygjukaðal í Arctic truck um daginn og þurfti í fyrsta skiptið að nota hann um páskana. Ekki var um nein átök að ræða en sé það eftir þetta litla bras að hann verður ekki langlífur þessi spotti skemmdur og trosnaður. Ekki sáttur við hversu viðkvæmt þetta dót er.

    Er ekki til einhver gúmmihulsa sem hægt er að bræða uppá þetta til að verja við hnýtinguna. Þetta voru það lítil átök á þessu að hnúturinn sem ég batt hertist ekki einusinni.

  • Creator
    Topic
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)
  • Author
    Replies
  • 09.04.2007 at 22:04 #587516
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Ég ráðlegg þér eindregið að fá þér þá betri kaðal. Ég keypti minn spotta í Ísfelli og lét splæsa á hann lykkjur í báða enda. Hnútar veikja kaðal um 40% eða meira.

    Ég setti svo "öryggisbelti" á kaðalinn minn sem er hengdur annarsstaðar í grind bílsins þegar ég toga til öryggis ef eitthvað slitnar. þú getur séð hvernig ég gerði það í myndaalbúminu mínu.

    kveðja,
    Lalli





    10.04.2007 at 00:04 #587518
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1788

    ég keypti minn í Ísfelli þegar það var niðrá granda og fékk mér 20 metra teygjuspotta (28mm held ég) og lét splæsa hann báðum meginn og þetta kostaði mig einhvern smá pening en þegar þú ert kominn með alvöru spotta þ,a,s ekki bensístöðvatitti þá er ekki vit í öðru en að splæsa þá !!!!! hnútar finnst mér ekki að eigi að nota nema ef allt annað klikkar ég er persónulega nokkuð á móti hnútabindingum nema kannski ef þú ert með eins og ég kalla drasl spotta þ,a,s annað en spotta sem þolir þau átök sem við jeppamenn eigum til að bjóða þeim uppá. þá er alltílagi að hnýta hnút í hallæri annars persónulega vill ég ekkert annað en splæstann teygjuspotta.

    leiðinlegt að heyra með spottann þinn og þetta finnst mér léleg ending ef hann hefur varla verið notaður og strax að deyja út.

    einnig má hafa í huga að best er að hugsa um spottann s,s þrífa geyma í stofuhita þegar ekki er verið að nota hann og sv fr

    verðum í bandi

    Dabbi





    10.04.2007 at 01:37 #587520
    Profile photo of Halldór Eggertsson
    Halldór Eggertsson
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 208

    Þetta eru bara ystu þræðirnir sem eru trosnaðir hjá mér, ég er sammála með þetta að splæsa. En hann er splæstur í annan endan en laus í hinn. Þannig er nú stundum ágætt að hafa þetta þannig s.s ef maður er ekki með dráttarkúlu/prófíltengi að framan.

    En þannig er nú að ég keypti þennan kaðal á 10þús og hélt að þetta ætti nú að þola smá hnýtingu.





    10.04.2007 at 09:25 #587522
    Profile photo of Guðbjartur Magnússon
    Guðbjartur Magnússon
    Participant
    • Umræður: 19
    • Svör: 368

    Mér datt í hug að láta setja þunna slöngu uppá spottann áður en ég lét splæsa lykkju á hann en það varð nú ekkert úr því. Einnig væri hægt að setja leður utan um og sauma/hefta saman það ætti nú að þola eitthvað. Aðal málið er að þetta verði ekki sleipt svo þetta renni af og að þetta sé sæmilega lipurt.





    10.04.2007 at 09:58 #587524
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Ég lét splæsa minn Ísfells-spotta (nú lengst út í Hfj) báðu megin, sumir sem ég þekki hafa látið setja einhverjar nælonhulsur innan í (Ísfell græjar það líka) áður en splæst er. Ef það er vandamál að koma spottanum í þá er ég með nokkra lása (líka frá Ísfell) og hingað til hef ég getað fest saman nokkurn veginn allt sem mig langar með þessu "combo"-i. Ég set oft lásinn í festingu á bíl (t.d. fólksbíla-size festingu) og læt teygjuspottann í C hlutann af lásnum til að fá ekki hvassar brúnir sem geta skemmt kaðalinn í átaki. Fyrir tvo lása (6t) og 18m af 28mm kaðli splæstum í báða borgaði ég tæplega 12.000kr og finnst þetta alveg peninganna virði.

    Ég er hrifinn af systeminu hjá Lalla, svona ef maður man eftir að festa það í eitthvað gáfulegt 😉





    10.04.2007 at 10:44 #587526
    Profile photo of Jóhannes þ Jóhannesson
    Jóhannes þ Jóhannesson
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 2995

    Ef spottinn er trosnaður ( skemmdur ) er langbest að taka hann í sundur þar sem hann er skemmdur og splæsa hann saman aftur,skemmdur spotti í notkun á milli bíla eða trosnaður er bara slysahætta.
    Gætir einnig haft samband við netaverkstæði,og kannað hvort þeir eiga ekki skinnhulsu á splæsta augað fyrir þig.





    10.04.2007 at 22:23 #587528
    Profile photo of Halldór Eggertsson
    Halldór Eggertsson
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 208

    Hann er ekkert skemmdur sem heitir en sér á honum og maður er náttla ekki sáttur við það. Ætli maður skeri ekki bara reiðhjólaslöngu og setji uppá. Eða setur kós í þetta kemur í ljós.





  • Author
    Replies
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.