FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Vinnuferð skálanefndar.

by Logi Már Einarsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Vinnuferð skálanefndar.

This topic contains 13 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Logi Már Einarsson Logi Már Einarsson 15 years, 7 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 20.09.2009 at 21:51 #206646
    Profile photo of Logi Már Einarsson
    Logi Már Einarsson
    Participant

    Þessi þráður er stofnaður sem skráningarvettvangur fyrir vinnuferð skálanefndar. Fyrirspurnum verður einnig svarað eins og kostur er. Kveðjur, Logi Már Skálanefnd.

  • Creator
    Topic
Viewing 13 replies - 1 through 13 (of 13 total)
  • Author
    Replies
  • 20.09.2009 at 23:39 #658214
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Jón Emil mætir.





    21.09.2009 at 08:12 #658216
    Profile photo of Frosti Gylfason
    Frosti Gylfason
    Participant
    • Umræður: 11
    • Svör: 104

    Dagsetning????????????????????????????
    eða er þetta óákveðna ferðin endalausa?????????????????????





    21.09.2009 at 12:32 #658218
    Profile photo of Kári Þórisson
    Kári Þórisson
    Member
    • Umræður: 5
    • Svör: 114

    Næstu helgi
    Kv
    Kári





    21.09.2009 at 16:29 #658220
    Profile photo of Frosti Gylfason
    Frosti Gylfason
    Participant
    • Umræður: 11
    • Svör: 104

    "vinnuferð skálanefndar" ???? á að mæta með torkrúllu og sleipiefni ???
    eða hvað????





    21.09.2009 at 16:42 #658222
    Profile photo of Bjarki Logason
    Bjarki Logason
    Participant
    • Umræður: 90
    • Svör: 775

    Sælir hvað stendur til að gera, er bara almennt fyrir veturinn að gera klárt? Eða eru stórframkvæmdir?
    Bara taka stöðuna, verð nefnilega að passa næstu helgi!!!!!!!!!!!!!!!!!! Spurning hvort maður gerir sveitaferð :-)
    Kv Bjarki





    21.09.2009 at 18:09 #658224
    Profile photo of Logi Már Einarsson
    Logi Már Einarsson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1247

    Dagsetning ferðar kemur fram í auglýsingu á forsíðu en svona er þetta þegar maður eldist Frosti minn, þá fer maður að sjá illa og svo kemur að því að maður þarf að fara að nota hlutina sem þú varst að stinga upp á að koma með. Ekki það að mér finnst þú nú vera fullungur til að fara að hafa not fyrir svoleiðis strax,,,. En að öllu gamni slepptu þá lítur verkefnalistinn svona út í stórum dráttum:

    1. Koma rafstöð í lag. Biggi vélstjóri þekkir til þessara mála og ætlar að koma sér inn í málið og er von mín að lending náist í þetta mál.
    2. Lagfæring á Sóló vél, tæma þarf kerfið og yfirfara vélina og koma henni í upprunalega staðsetningu aftur þannig að hægt sé að tengja reykrörið frá henni sómasamlega á ný.
    3. Koma brunastigum utan á húsið. Verða útbúnir úr álvinklum og verður búið að efna niður í þá þannig að um uppsetningavinnu er að ræða.
    4. Laga þarf til bak við húsið, flytja þarf uppgröft frá Zetu og dreifa honum þar. Einnig þarf að huga að yfirfalli á olíutanki fyrir Sóló vélina.
    5, Bæta við þremur rúmum á svefnlofti og loka undir rúmin með plötuefni. Undir rúmin safnast alltaf óhreinindi sem erfitt er að ná til og betra er að loka rýminu undir rúmunum, hafa opið svona 60 sentimetra undir rúmin svo hægt sé að geyma töskur þar.
    6. Koma upp hinni margáætluðu gsm opnun. Samúel ætlar að gæja það mál.
    7. Undirbúningur fyrir tengingu á vatnstank. Heiðar pípari kemur með okkur og er ætlunin að fara í gegnum málið með honum gera teikningar og plana það kerfi sem þarf í kringum þetta ásamt því að gera efnislista yfir það sem til þarf og undirbúa þetta þannig að þetta geti komist á koppinn næsta vor.
    8. Gera úttekt á 12 volta rafkerfinu og plana hvað til þarf svo koma megi því í notendavænt horf fyrir næsta vor.
    9. Mála glugga úti ef veður leyfir, einnig er kominn tími á að lagfæra þá að innan.
    10. Klósett á Zetu er sprungið, kannski þarf að skifta um það en það er skotsins virði að reyna að líma það með epoxy lími. Að öðrum kosti þarf að skifta um það, reikna með að við getum þá fundið notaða dollu einhversstaðar.
    11. Tiltekt í gámi, þar þarf heldur betur að taka til hendinni. Þarna þarf að fara fram kalt mat á því hvað er líklegt að við komum til með að nota af því sem þarna er inni, einnig mundi ég vilja setja olíudæluna á hillu og koma upp slöngum með hraðtengjum til að tengja við hana svo ekki sé verið að þvælast með hana um svæðið og draga hana eftir jörðinni í drullunni og skítnum, við megum ekki við því að fá slíkt í tankana.

    Þetta er svona það helsta sem ætlunin er að framkvæma, grillaðar hásingar og meðlæti er svo í boði á laugardagskvöldið, að öðru leyti sjá menn um sig sálfir í mat og drykk. Kveður, Logi Már.





    21.09.2009 at 21:33 #658226
    Profile photo of Þórður Ámundason
    Þórður Ámundason
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 238

    Ég mæti,ekki spurning. Gott að láta eitthvað af sér leiða og hafa gaman af þessu í leiðinni. Nú,svo er þetta fín afsökun til að komast til fjalla og losna við stressið í borginni. Hlýt að geta gert eitthvað sniðugt.
    En hvernig er það logi,þarf ekki pönnukökukarlinn að vera með í för? Pönnukökur og grillaðar hásingar,bara fín samsetning. Og hvenær er lagt af stað…um 15 eða 16 leytið frá select vesturlandsvegi?
    Kem kannski með farþega,ekki vitað fyrr en á morgun.





    22.09.2009 at 00:35 #658228
    Profile photo of Þórður Ámundason
    Þórður Ámundason
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 238

    Ég kem og verð með 1 farþega





    22.09.2009 at 16:22 #658230
    Profile photo of Logi Már Einarsson
    Logi Már Einarsson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1247

    Þátttakendalisti í vinnuferð það sem komið er:

    Logi Már
    Jón Emil
    Maggi Tómasar
    Kári (kemur á laugardegi?)
    Einar Sól og Þorsteinn (Lödueigandi)
    Þórður Ámunda + 1
    Biggi vélstjóri
    Samúel Úlfr
    Heiðar pípari

    11 komnir "so far"





    23.09.2009 at 07:11 #658232
    Profile photo of Logi Már Einarsson
    Logi Már Einarsson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1247

    Vegna matarpöntunar þurfum við að vera búnir að loka þátttakendalista á fimmtudagsmorgun. Koma svo og skrá sig þið, sem eruð að hugsa um að koma með. Kveðjur, Logi Már.





    24.09.2009 at 00:38 #658234
    Profile photo of Logi Már Einarsson
    Logi Már Einarsson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1247

    Upp





    24.09.2009 at 00:43 #658236
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ég fitnaði um einn. Við verðum þar af leiðandi tveir á mínum vegum. Þeas ég og kóarinn, erum við nokkuð að flækja okkur?

    kkv, Úlfr, semhlakkartilvinnuferðarþvíþaðgætijafnvelveriðaðþaðværieittsnjókorninnáhálendi..





    24.09.2009 at 07:14 #658238
    Profile photo of Logi Már Einarsson
    Logi Már Einarsson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1247

    Jæja, þá er þetta að komast í eindaga, ég hef heyrt af nokkrum sem ætla að koma en ég hef ekki skrá yfir, þarf að fá þá inn á skrá en listinn lítur svona út á þessari stundu:

    Logi Már
    Jón Emil
    Maggi Tómasar
    Kári (kemur á laugardegi?)
    Einar Sól og Þorsteinn (Lödueigandi)
    Þórður Ámunda + 1
    Biggi vélstjóri
    Samúel Úlfr
    Heiðar pípari
    Halli umhverisnefnd

    Samtals tóf og einverjir bætast við fyrir hádegi.

    Kv. Logi Már.





  • Author
    Replies
Viewing 13 replies - 1 through 13 (of 13 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.