This topic contains 16 replies, has 1 voice, and was last updated by Anonymous 22 years, 8 months ago.
-
CreatorTopic
-
25.02.2003 at 19:31 #192235
AnonymousMikið rosalega,hrikalega ofboðslega er ég spældur og sár svo streima niður tár. Með þetta Toyota umboð að vilja ekki taka þátt í 1000 bíla ferðinni.
Jón Snæland. Sár og ofboðslegaspældur.
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
25.02.2003 at 19:50 #469376
Sorrý Palli að ég skyldi hefja nýjan þráð, mér varð bara svo mikið um fréttina af blankheitum Toyotu umboðsins
Jón Snæland.
25.02.2003 at 20:16 #469378ég skil vel að þú vildir eiga Pæju…, en ekki þetta með hina tegundina……. Nei bara djók, Datsun er fínn…
P
25.02.2003 at 20:25 #469380Sælir.
Því meira sem ég hugsa um þetta, því meira hissa verð ég. Það er enginn að biðja um að þeir haldi stóra veislu með nautasteik og rauðvíni, þar sem allir verði svo leystir út með kastarasetti eða varaöxlum. Alls ekki.
En að umboð sem selur 80% allra bíla sem notaðir eru í fjallferðir skuli ekki bjóða okkur velkona á bílastæðið sitt á þessum lang stærsta jeppadegi sem haldinn hefur verið er mjög skrítið.
Ég hefði orðið stoltur af að koma til þeirra í Kópavoginn, þiggja kanski einn kaffibolla og e.t.v. límmiða með Toyota merkinu. það væri varla svo mjög kostnaðarsamt, en myndi vera hin besta markaðssetning.
Getur verið að þeir séu farnir að taka okkur sem sjálfsagðan hlut, og hugsi sem svo að við komum hvort sem er?? Ég veit ekki.
Kv.
Emil Borg
25.02.2003 at 21:59 #469382skal ekki segja en ég hugsa að eftir svona framkomu mundi ég leita allt annað en til þeirra eftir varahlutum ef ég ætti Tótu… sem ég á reyndar ekki lengur… en þetta er svaka skítamórall…
26.02.2003 at 09:11 #469384Það er tómt bull að 80% þeirra bíla sem notaðir séu í fjallaferðir séu seldar af Toyota umboðinu.
Fyrir um það bil 5 árum var nærri því helmingur þeirra bíla sem maður sá á fjöllum af tegundinni Toyota, en margir þeirra voru fluttir inn framhjá umboðinu, t.d. flestir 4runner bílar eldri en 90.
Síðan hefur hlutfall Toy bíla á fjöllum lækkað verulega. T.d. held ég að um eða innan við þriðjungur þeirra bíla sem voru [url=http://klaki.net/gutti/0302:1hqhreps]Þjófahrauni[/url:1hqhreps] á laugardaginn var, hafi verið Toyotur.
26.02.2003 at 10:53 #469386
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Skiftir ekki máli hvort það eru 50% eða 80% allra bíla á fjöllum toyotur. Svona er aumingja skapur að hálfu umboðsins. Og þó að allir hafi ekki verið fluttir inn af umboði þá eru þeir örfáir. Þetta er bara skít af STÆÐSTA BÍLAUMBOÐI Á LANDINU…..
Góð auglýsning þetta hjá p.sam.
Samhúðar kveðjur til toy eigenda.
26.02.2003 at 11:03 #469388Sæll Halli V
"V" ið hlýtur að standa fyrir vitlaus.
þú talar bara um aumingjaskap og skíta hátt út í umboðið
án þess að vita nokkuð um þetta mál.
vonandi skrifar þú annarsstaðar en hér í framtíðinni
26.02.2003 at 11:15 #469390Þeir gerast málefnalegir, talsmenn Toy umboðsins. 120 = 90.
26.02.2003 at 11:36 #469392já ég meina var ekki eithverstaðar sýnt að 4+4 geta
orðið 5.
26.02.2003 at 11:42 #469394Júbb, rétt er það.
Í Rússlandi kendu þeir börnum að 2 + 2 = 5. Börn hafa nefnilega ekki gott af því að vita allan sannleikann.

Rúnar.
26.02.2003 at 11:42 #469396Jæja Lúddi minn læturu menn fara svona með þig, ég mæli með að þú bjóðir bara þessum toyotu eigendum í rall heima hjá þér um kvöldið.
ps. mundu bara að hringja í mig ef þig vanntar útkastar.
26.02.2003 at 13:52 #469398svona er þetta bara það geta ekki allir átt Pæjur

mundu það bara þegar þú skiptir um bíl næst
26.02.2003 at 18:22 #469400
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Hafa þeir ekki staðið vel við bakið a 4×4 i gegn um arin ?.
Ef svo er, ættum við ekki að fara i filu ef illa arar hja þeim nuna.
26.02.2003 at 22:17 #469402Sælir félagar.
Ég verð að segja að mér finnst við gera allt of mikið úr þessu. Auðvitað er þetta hundfúlt, en þetta skiptir klúbbinn engu máli. Akkúrat engu máli. Við náum bara til Toyotueigenda á annan máta ! Annað hvort í gegnum Bylgjuna, eða bara maður á mann. Þeir bræður í Bílabúð Benna hafa gefið það út að allir Toyotueigendur eru velkomnir til þeirra. Einnig eru allir velkomnir í önnur umboð, eins og fram hefur komið áður. Einnig erum við með ferð frá Kringlunni, þar sem Jón Snæland, Gulli, Kjartan, Kalli, Einsi Sól og fl koma til með að sprella eins og þeim er einum lagið.
Þurrkum tárin, hættum að sýta og brosum……
Þeir á Nýbílaveginum eru ekki hættir að standa með klúbbnum, þótt þeir séu ekki með núna……
Kv
Palli
27.02.2003 at 11:36 #469404
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Það er rétt! Það þýðir ekki að fara í fílu. Ég biðst bara afsökunar á fyrri umælum mínum.
Kv.Halli
27.02.2003 at 11:47 #469406
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Drengilega gert Halliv!
Vonandi verður þetta bara hin mesta skemmtun í góðu veðri
Kveðja Davíð
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
