Forsíða › Forums › Spjallið › Klúbburinn › Viðskiptakort.
This topic contains 12 replies, has 1 voice, and was last updated by Einar Sigurður Kristjánsson 18 years ago.
-
CreatorTopic
-
16.01.2008 at 14:35 #201631
Þeir sem eru í klúbbnum, á hvað fá þeir benzínið með afslættinum.
Nonni
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
16.01.2008 at 16:17 #610420
… að þessi þráður sé fluttur á Innanfélagsmál áður en spurningunni er svarað?
17.01.2008 at 08:18 #610422Ég fór inn á Innanfélagsmál og sá þar þær upplýsingar sem ég þurfti.
Skaflakveðjur, Jeppinn/Nonni
17.01.2008 at 18:18 #610424Ég var að taka bensín á bensínorkunni og þar kostaði bensínið mig 132,70 og það er verðið sem stóð á skiltinu. Kemur afslátturinn eftir á eða hvað? ég er með viðskiptakort í gegnum f4x4 og hélt að ég ætti að fá 12kr afslátt hann allavegna skilaði sér ekki við dæluna???
Bensín kveðja
Guðni B.
17.01.2008 at 18:54 #610426ég tók olíu í gær á Shell Skógarhlíð. framvísaði kortinu en fékk ekki afslátt, bara punktana.
Er eitthver bilun í tölvukerfinu eða hvað?
17.01.2008 at 19:00 #610428Ef það er notað viðskiptakortið (rauða) í sjálfsafgreiðslu eða á Orkunni þá kemur afslátturinn ekki fram fyrr en á reikningnum. Ég var einmitt að fá minn fyrsta reikning v. viðskipta í desember í síðustu viku og þar var þetta allt á sínum stað, afslátturinn upp á (þáverandi) 10kr. 12kr tóku gildi 1.1.2008.
Það er óneitanlega leiðinlegt að sjá ekki tölurnar breytast "á flugunni" en maður þarf þá bara að stunda smá hugarreikning á meðan dælt er.
17.01.2008 at 19:46 #610430En ég er bara með Vildarkortið, gráa kortið og ég framvísaði því áður en ég rétti fram debetkortið. En enginn afsláttur kom.
17.01.2008 at 20:03 #610432Ég staðgreiddi í Skógarhlíð og framvísaði félagsskirteini og fékk engan afslátt og hef ekki verslað við shell síðan.
17.01.2008 at 20:56 #610434Þá er eitthvað athugavert við kortið þitt, það e.t.v. ekki skráð rétt hjá Skeljungi. Sendu línua með kennitölunni þinni á [url=mailto:f4x4@f4x4.is]f4x4@f4x4.is[/url], ætti að vera hægt að laga þetta.
17.01.2008 at 21:08 #610436Ég hef notað rauðakortið í tæft át og afslátturinn hefur alltaf skilað sér þegar reykningur kemur. Í sumar þá staðgreiddi ég og síndi gráa kortið og þá kom ekki aflsáttur. Ég talaði við shell og þá kom í ljós að það kort var ekki tengt með afslátt þetta var lagað strax og hefur verið í góðu lagi síðan.
17.01.2008 at 21:20 #610438Ég er búinn að nota gráa kortið alltaf þegar ég kaupi olíu og alltaf fengið afsláttinn líka í Skógarhlíð en ekki síðast.
17.01.2008 at 21:30 #610440Hefur þá ekki verið bara um mistök í afgreiðslu að ræða? Um að gera að benda á slíkt um leið og afgreiðslan á sér stað svo hægt sé að leiðrétta þetta á staðnum.
17.01.2008 at 23:46 #610442Það þarf að passa uppá að kassadaman renni fyrst félagsskýrteininu í raufinni áður en greiðslukortinu er rennt.
Afslátt fyrst, borga svo.
Þetta hefur alltaf virkað hjá mér nema í Freysnesi, þá skildi daman ekki að ég væri ekki í reikning og nuddadi kortinu mínu eftirá þrátt fyrir beiðni um annað.Gæða kveðjur, Einar
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
