FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Viðhald bensínvéla

by Birkir Jónsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Viðhald bensínvéla

This topic contains 5 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Birkir Jónsson Birkir Jónsson 21 years, 4 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 15.01.2004 at 13:50 #193459
    Profile photo of Birkir Jónsson
    Birkir Jónsson
    Participant

    Sælir félagar

    Ég var að velta fyrir mér hvort ekkert viðhald væri á bensínbílum sem er búin að keyra 100 þúsundkílómetra?

    Bara svona í einfeldni minni spyr ég að þessu því þið dísel kappar eruð alltaf að fikta breyta og bæta.

    Kveðja Fastur

  • Creator
    Topic
Viewing 5 replies - 1 through 5 (of 5 total)
  • Author
    Replies
  • 15.01.2004 at 14:12 #484442
    Profile photo of Jóhannes þ Jóhannesson
    Jóhannes þ Jóhannesson
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 2995

    Ekki veit ég hvort bensínvélar eru eitthvað öðruvísi með viðhald,en ég get sagt að vélin í minni dollu er komin í 277.ooo km og hefur sá bíll ekki stoppað vegna bilanna.
    En það hefur verið skipt um tímareim á á þeim km fresti sem þarf að gera og síðan hefur verið skipt um glóðakerti og náttúrulega smurt,einu sinni verið skipt um kúplingu.

    Þannig að það eru ekki allir sem liggja með bílinn í að breyta fikta og laga,fáðu þér bara MMC og þú losnar við fikta laga og breyta.
    Bara að keyra einmtóm hamingja.

    JÞJ





    15.01.2004 at 14:16 #484444
    Profile photo of Heiðar Steinn Broddason
    Heiðar Steinn Broddason
    Participant
    • Umræður: 113
    • Svör: 839

    Ég ætla rétt að vona svona þín vegna að þú hafir skipt
    nokkrum sinnum um olíu og síu og alla vega einu sinni um tímareim á þinni vél á þessum 100þús km
    svo er með benzínvélarnar að þær eru yfirleitt búnar að vera í kringum þessa km stöðu en dísellinn á svona 300þús
    eftir:)

    KV HSB U119





    15.01.2004 at 14:34 #484446
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    4 lítra Jeep vélin er hvorki með stillanlega ventla né tímareim, sama á við um diesel vélina í mínum Jeep. Eina viðhaldið sem mín vél hefur fengið á 145000 km, (fyrir utan síur og olíu) er ný glóðarkerti. Ég held að flestir skipti um kerti í bensínvélum eitthvað oftar en það.

    Það er ekki óvitlaust að fara yfir hosur í kælikerfi, ég held að stór hluti að vandamálum tendum heddum og heddpakkningum megi rekja til kælivatnsleka sem leiðir til staðbundinnar suðu og skemmda á heddi og pakkningu.

    -Einar





    15.01.2004 at 14:43 #484448
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Í báðum bensín jeppunum sem ég hef átt, hefur þurft að skipta reglulega um kveikjulok og kertaþræði til þess að kveikjan þyldi akstur í skafrenningi. Báðum bílunum hætti líka við ísmyndun í blöndungi vegna þess að stýring á loftintaki hætti að virka.

    Flestar bensínvélar þurfa tíðara reglulegt viðhald en díselvélar en á móti kemur að rekstrarvörur í díselvélar eru oft dýrari, t.d. eru glóðarkerti oftast dýrari en kveikjukerti.

    -Einar





    15.01.2004 at 16:31 #484450
    Profile photo of Birkir Jónsson
    Birkir Jónsson
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 1596

    Sælir

    Hvað á maður að skipta um kerti á mörg þúsund kílómetra fresti?

    En þræði?

    Ég hef tekið kertin hjá mér úr og séð að eitt kertið var lélegt og það líklegast vegna brussuskaps við að setja það í.

    Eik: Settir þú aldrei silikon með kerta þráðunum svo það yrði vatns og ryk þétt meðfram þræðinum?

    Kveðja Fastur





  • Author
    Replies
Viewing 5 replies - 1 through 5 (of 5 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.