FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Viðgerð á öxli – góð ráð

by Atli Eggertsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Allt annað › Viðgerð á öxli – góð ráð

This topic contains 19 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Atli Eggertsson Atli Eggertsson 15 years ago.

  • Creator
    Topic
  • 28.05.2010 at 20:49 #212950
    Profile photo of Atli Eggertsson
    Atli Eggertsson
    Participant

    Sælir félagar.

    Ég þarf að sjóða saman aftur-öxulinn hjá mér.

    Hvort haldið þið að það sé betra að sjóða hann saman með tig-suðu eða kannski bara að fasa hann smá og sjóða með rútil-vír?

    Kostirnir sem ég sé við það að nota tig-suðuna er að þá þarf ég minna að slípa niður suðuna til að koma krump-hringnum.
    Einnig hef ég heyrt að það þurfi ekkert að fasa þegar maður tig-síður. (nenni ekki að fasa)

    Kosturinn við að sjóða með rútil-vír er sá að ég fann gamlan pinna-pakka á pallinum á hilux sem ég gæti hugsanlega notað.
    Ég nenni bara að varla að slípa niður suðuna þegar ég er búinn sjóða öxulinn.

    Er kannski bara best að gegnumbora ytri-hlutan, bora gat inn í innra-brotið, snita inn í innri endan og bolta saman? t.d. með 16mm bolta?

    Sendi með mynd af öxlinum.
    Öll góð ráð vel þegin.

    Kv. Atli E.

    p.s. þarf ég kannski ekkert að taka krump-hringinn og leguna af áður enn ég síð?

  • Creator
    Topic
Viewing 19 replies - 1 through 19 (of 19 total)
  • Author
    Replies
  • 28.05.2010 at 21:19 #694870
    Profile photo of Bjarni Gunnarsson
    Bjarni Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 78
    • Svör: 1462

    Nei, nei þarft ekkert svona suðuvélavesen. Skrúfar þetta bara saman aftur, stendur hann flatan og eftir smástund verður öxullinn heill :)

    Hér sést hvernig þetta er gert:
    [url:3nk39uv8]http://www.youtube.com/watch?v=FbYJo-GLR8I[/url:3nk39uv8]

    Bjarni G.





    28.05.2010 at 21:31 #694872
    Profile photo of Gísli Þór Þorkelsson
    Gísli Þór Þorkelsson
    Participant
    • Umræður: 103
    • Svör: 1363

    Iss ekkert mál að sjóða bara finna nægilega stórann pott og láta suðuna koma upp ætti að vera orðinn meir eftir nokkra tíma þá má snæða með góðu rauðvíni og kannski bernaies
    good kokking:)
    Gísli kokkur





    28.05.2010 at 21:38 #694874
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Dettur þér í alvöru í hug að sjóða öxulinn saman? Og nota til þess gamlan rútilvír sem er búinn að blotna mörgum sinnum? Þá ættirðu að hafa piparsósu með honum?





    28.05.2010 at 21:42 #694876
    Profile photo of Sigurður Sveinn Jónsson
    Sigurður Sveinn Jónsson
    Participant
    • Umræður: 13
    • Svör: 108

    Ertu búinn að prófa tonnatak?





    28.05.2010 at 22:38 #694878
    Profile photo of Benedikt Sigurgeirsson
    Benedikt Sigurgeirsson
    Participant
    • Umræður: 171
    • Svör: 3595

    Þegar þú síður svona þykkt þá verður þú að passa þig á því að þú notar 2 gerðir af pinna annan fyrir undir suðu og hinn fyrir yfir suðu (tálgar endana eins og blíant) . Best er náttúrlega að fá nýjan öxul. Ef þú í að tigga þetta þarft þú all svakalega svera vél í það EF þetta á að vera þokkalegt og þú gerir það ekki sjálfur nema að hafa mikkla tig reinslu, þetta er ekki tiggað eins og 0.8 eða 2mm járn.
    Þú getur líka sent mér þetta norður og ég get reddað þessu fyrir þig, ég á nóg af sika flexi í skúrnum

    Kv. Frá þeim sem svaraði gátunni rétt STRAGS!





    28.05.2010 at 22:55 #694880
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Ég er búinn að sjá að hann hlýtur að vera að grínast. Tæplega dytti einhverjum með fullu viti í hug í alvöru að skrúfa öxulinn saman með 16 mm bolta. Það yrði amk. sjón að sjá í hvert skipti sem viðkomandi dytti í hug að bakka.
    Ja, þú ert nú meiri brandarakallinn Atli!!





    28.05.2010 at 23:24 #694882
    Profile photo of Sigurður Egill Stefánsson
    Sigurður Egill Stefánsson
    Member
    • Umræður: 16
    • Svör: 647

    hveitilím klikar aldrei





    28.05.2010 at 23:39 #694884
    Profile photo of Atli Eggertsson
    Atli Eggertsson
    Participant
    • Umræður: 220
    • Svör: 1627

    [quote="valdur":2sab3xgd]Ég er búinn að sjá að hann hlýtur að vera að grínast. Tæplega dytti einhverjum með fullu viti í hug í alvöru að skrúfa öxulinn saman með 16 mm bolta. Það yrði amk. sjón að sjá í hvert skipti sem viðkomandi dytti í hug að bakka.
    Ja, þú ert nú meiri brandarakallinn Atli!![/quote:2sab3xgd]

    Ég er nú ekki algjör asni. Auðvitað ætlaði ég að nota gengjulím á boltan.

    Kv. Atli E.





    28.05.2010 at 23:45 #694886
    Profile photo of Bjarni Gunnarsson
    Bjarni Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 78
    • Svör: 1462

    [quote="Atli":1enrtejv]Ég er nú ekki algjör asni. Auðvitað ætlaði ég að nota gengjulím á boltan.[/quote:1enrtejv]

    Svo notarðu auðvitað bolta með öfugum gengjum bílstjóramegin og þá ertu góður. Reyndar spurning um að fara í 18mm bolta, 16mm er svona í það minnsta…

    Bjarni G.





    29.05.2010 at 00:20 #694888
    Profile photo of Bæring J. Björgvinsson
    Bæring J. Björgvinsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 1919

    ég myndi prófa að sprengja þetta saman, helst að nota kaldweld eftirá… en ef að rústíli vírinn er við hendina þá er hann spennandi kostur, þarft ekkert að fasa þetta svakalega, tekur bara mesta bitið af öxlinum með þjöl, og ef þú hefur strauminn lágann þá geturu bara lamið gjallið í burtu eftirá og þá ættiru ekkert að þurfa að slípa þetta. en ég myndi ekkert vera að taka krumphringinn og leguna af, það er fullorðins kosturinn, steiktu þetta bara í klessu leifðu þessu að hitna almennilega, svo er best að moka þetta ofaní ösku og leifa þessu að kólna í rólegheitum, þá þarftu ekkert að hafa áhyggjur af þessu aftur 😉





    29.05.2010 at 00:35 #694890
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Ég lít á þetta sem öndunarvél fyrir spjallið.

    Takk Atli !!!! vel gert !





    29.05.2010 at 15:12 #694892
    Profile photo of Bæring J. Björgvinsson
    Bæring J. Björgvinsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 1919

    1 enn. ef þú notar vírinn, þá er þetta svona s.a 4 rafgeyma suða, ég myndi ekki reyna að nota 2-3 rafgeyma eins og maður gerir oft, LÁGMARK 4





    29.05.2010 at 16:54 #694894
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    Láttu ekki slá þig út af laginu Atli, þetta er frábær hugmynd hjá þér með gamla rútilvírinn. Best er hann hefur fengið að frjósa á milli þess sem hann blotnar og ekki verra ef hann hefur myglað aðeins. Taktu vírinn og bleyttu vel upp í honum, hreinsaðu síðan vel af honum einangrunina. Stilltu rafsuðuna síðan á 600 Amp. Og bingó öxulinn verður sem nýr.
    PS alls ekki fasa, því þá er hætta á heilli gegnumsuðu





    29.05.2010 at 18:39 #694896
    Profile photo of Bjarni Gunnarsson
    Bjarni Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 78
    • Svör: 1462

    Gætir líka látið þetta ryðga fast saman, sett salt í sárið og skilið eftir úti í rigningu í nokkra daga :)

    Bjarni G.





    29.05.2010 at 18:53 #694898
    Profile photo of Benedikt Sigurgeirsson
    Benedikt Sigurgeirsson
    Participant
    • Umræður: 171
    • Svör: 3595

    Mér líst nú vel á þessa hugmynd að láta þetta ryðga saman, það gæti virkað.
    Svo er spurning um að nota matarlím, hef heirt að það geri góða hluti.





    29.05.2010 at 19:31 #694900
    Profile photo of Rúnar Ingi Árdal
    Rúnar Ingi Árdal
    Participant
    • Umræður: 39
    • Svör: 421

    þetta er snilld hér á spjallinu, hafa smá gaman inná milli.
    Ég get samt sagt frá því grínlaust að ég þekki einn sem sauð saman svona öxul, hann reyndar brotnaði utanvið legu á fjöllum og hann var soðin á staðnum með rafgeymum, hann var í bílnum minnir mig 60 km áður en hann fékk annan sendan á móti sér. Tær snilld.
    KV Dúddi





    01.06.2010 at 18:34 #694902
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Eða límaðameðskyrpi !





    03.06.2010 at 12:06 #694904
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Atli, ertu að spá í að halda uppá Leguna? Er þetta ekki 4runner orginal öxull? Ef svo er þá á ég örugglega heilan eða hálfan lager hér útum allt land.
    1 hjá þér, annna hjá Ofsa og eitthvað fleira einhverstaðar…

    Annars mæli ég með Wurth límkítti. Það heldur öllu.





    03.06.2010 at 18:05 #694906
    Profile photo of Atli Eggertsson
    Atli Eggertsson
    Participant
    • Umræður: 220
    • Svör: 1627

    Sæll Samúel.

    Ég ætlaði alltaf að hafa samband við þig aftur út af drifinu.
    Ég helt upphaflega að drifið væri farið hjá mér, því talaði ég við þig.
    Svo reyndist þetta vera öxullinn, þannig að ég gleymdi að heyra í þér aftur.
    Ég hef samt áhuga á þessu drifi sem vara-drifi, enn ég heyri betur í þér síðar með það.

    Takk fyrir boð um að fá hjá þér öxul og einnig vil ég þakka öllum vel-viljuðum mönnum sem hafa haft samband við mig og boðið mér öxul.

    Sjálfur á ég gott safn af svona öxlum og setti annan vara-öxul í laugardaginn sem þetta var rifið.

    Kv. Atli E.





  • Author
    Replies
Viewing 19 replies - 1 through 19 (of 19 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.