FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Viðbrögð við áföllum

by Óskar Hafþórsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Viðbrögð við áföllum

This topic contains 6 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Einar Steinsson Einar Steinsson 18 years, 2 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 01.03.2007 at 12:10 #199818
    Profile photo of Óskar Hafþórsson
    Óskar Hafþórsson
    Participant

    Á opnu kvöldi í mörkinni þann 1.3 2007 mun vera kyntar niðurstöður
    Vinnuþing um „áfallahjálp á landsvísu“ sem var haldið í samvinnu Rauða kross Íslands, Landlæknisembættis, Landspítala – háskólasjúkrahúss, Almannavarnadeildar Ríkislögreglustjórans og Biskupsstofu í apríl 2006. Markmiðið með vinnuþinginu var að leggja grunn að framtíðarskipulagi áfallahjálpar á landsvísu vegna fyrir hugaðar Kvennaferðar Ferðaklúbbar 4X4.

    1 Viðbrögð við áföllum
    1.1 Hvað er áfall?
    Samkvæmt Orðabók Menningarsjóðs merkir orðið áfall m.a. slys, tjón, mótlæti, þungbær reynsla eða sjúkdómur. Eyðilög bílvél og brotið drif gera ekki boð á undan sér og því eru karlmenn misvel í stakk búnir að taka á áföllum og vinna úr þeim. Oft kemur það í hlut kvenna að tilkynna eiginmönnum eða sambýlismönnum um slíka hluti og því er gott að hafa einhvern ramma til að styðjast við þegar slíkt ber að höndum.

    1.2 Áfallahjálp í Mörkinni 6
    Áfallahjálp byggist á vitneskju um eðlileg viðbrögð einstaklinga og hópa við alvarlegum áföllum sem valda sálrænu umróti og streituviðbrögðum hjá þeim sem hlut eiga að máli. Áfallahjálp beinist að því að fyrirbyggja alvarleg og langvinn sálræn eftirköst í kjölfar áfalla af ýmsum toga. Það skiptir miklu máli að sá, sem veitir áfallahjálp, sé rólegur og gefi sér nægan tíma. Mikilvægt er að, sá sem verður fyrir áfalli, finni að hann er öruggur og geti treyst þeim sem eru hjá honum. Þá er mikilvægt að farið sé á afvikinn stað svo að viðkomandi verði ekki fyrir truflun. Sá, sem fyrir áfalli verður, þarf að finna fyrir hlýju, vinsemd og líkamlegri nálægð, hann sé faðmaður og hughreystur. Staðreyndir þarf að skýra og reyna að fá þolandann til þess að horfast í augu við raunveruleikann. Honum er nauðsyn að fá að tjá sig um bílinn sinn til að koma skipulagi á tilfinningar sínar og hugsun.
    Ef eyðilög bílvél hefur borið að höndum í kvennaferð hefur það forgang að veita líkamlega skyndihjálp. Sálræn skyndihjálp felst í því að þeir sem hana veita huggi og leyfi þeim að fá sem eðlilegasta útrás fyrir tilfinningar sínar, sem geta birst á mismunandi hátt, m.a. sem grátur, ógleði, skjálfti og köfnunartilfinning, en geta líka verið doði, tómleikatilfinning, fólksfælni og þörf fyrir einveru.

    2. Viðbrögð F4x4 við eyðilagðri bílvél eða brotnu drifi

    2.1 Fyrstu viðbrögð
    1. Hefjist handa!
    2. Fáið staðfestingu á eyðilagðri bílvél eða brotnu drifi hjá konunni, lögreglu eða bifvélaverstæði.
    3. Kallið áfallaráð F4x4 saman. Fyrsti fundur ætti að vera stuttur, þar sem verkum er skipt og fyrstu aðgerðir ákveðnar.
    4. Formaður kallar starfsmenn F4X4 saman. Starfsmönnum er tilkynnt hvað gerst hefur og hvernig F4X4 hyggst taka á málum.
    5. Segið félögum F4X4 frá atburðinum. Boðið alla félaga F4X4 í sal. Segja má félögum F4X4 frá atburðum , aðeins þarf að gæta þess að þeir fái fregnina samtímis.
    Æskilegt er að leyfa félögum F4X4 að ræða um atburðinn og líðan sína.
    6. Sé um eyðilagða bílvél að ræða:
    a) Formaður tækninefndar flaggar í hálfa stöng að tilkynningu lokinni.
    b) Ritari setur fram bjór borð og kveikir á veðurfréttum.
    7. Í lok dagsins koma félagar F4X4 saman með áfallaráði. Farið er yfir nöfn þeirra sem tengjast atburðinum s.s. ættingja og vini. Aðgerðir næstu daga ræddar.

  • Creator
    Topic
Viewing 6 replies - 1 through 6 (of 6 total)
  • Author
    Replies
  • 01.03.2007 at 12:19 #582864
    Profile photo of Barbara Ósk Ólafsdóttir
    Barbara Ósk Ólafsdóttir
    Participant
    • Umræður: 38
    • Svör: 775

    Þú ert frábær! Færð tíu fyrir þetta innlegg.





    01.03.2007 at 12:57 #582866
    Profile photo of Einar Steinsson
    Einar Steinsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 752

    Legg til að fyrsta verkefnið verði að aðstoða þennan Patrol eiganda sem [url=http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1256164:1viqmjtk][b:1viqmjtk]bilaði[/b:1viqmjtk][/url:1viqmjtk] í Ártúnsbrekkunni !!!





    01.03.2007 at 13:01 #582868
    Profile photo of Benedikt Sigurgeirsson
    Benedikt Sigurgeirsson
    Participant
    • Umræður: 171
    • Svör: 3595

    Bara snillingur, þú náði mér…

    Ég byrjaði að lesa, ok áfallafjálp ok, cool er þetta námskeið eða ? svo fór ég að lesa og les og svo HA hemm…les áfram og aftur HA hemm…svo er mér hætt á að lítast á þetta, þetta er ekki alveg eins og það sem ég lærði á sínum tíma í minni sveit…Snillingur!





    01.03.2007 at 14:16 #582870
    Profile photo of Sveinn G. Pálmason
    Sveinn G. Pálmason
    Member
    • Umræður: 26
    • Svör: 174

    Hvað bilaði í Patroleigandanum?





    01.03.2007 at 17:52 #582872
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Ég sé að þörfin er mikil fyrir þessa áfallahjálp og til að tryggja gott aðgengi þá hefur stjórn F4x4 séð sig knúna til að taka allt risið á leigu fyrir kvennaferðina og í ótilgreindann tíma á eftir. Talað er um að koma upp fjarskiptamiðstöð og fjarfundarbúnaði þannig að allir á landsbyggðinni geti notið góðs af.
    Þetta er tími hins sanna metro-manns…. karlmenn gráta líka.
    Tær snilld hjá skara kodda.
    kv. stef.
    p.s. reikna með að farið verður í gegnum 4 stig sorgarferlis líka.





    01.03.2007 at 19:56 #582874
    Profile photo of Einar Steinsson
    Einar Steinsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 752

    Thjaa… þú sérð það nú bara sjálfur. Hann keypti sér Patrol, það er náttúrulega ekkert nema bilun.





  • Author
    Replies
Viewing 6 replies - 1 through 6 (of 6 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.