Forsíða › Forums › Spjallið › Fjarskiptamál › VHF stöðvar
This topic contains 21 replies, has 1 voice, and was last updated by Þórður Ingi Bjarnason 17 years, 3 months ago.
-
CreatorTopic
-
17.08.2007 at 09:45 #200658
Hæhæ
Ég er að velta fyrir mér hvaða vhf stöðvar eru menn mæla með í jeppana í dag eða hvar eru bestu kaupin í svona stöðvum.Kv Bjarki
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
17.08.2007 at 10:32 #594794
Radioraf er með kenwood.
R.Sigmunds er með Veritas.
Aukaraf er með Icom.Kenwood er trúlega með lang bestu stöðvarnar sem þú færð í dag í og þú færð bestu þjónustuna hjá Radioraf hef ég trú á.
17.08.2007 at 11:05 #594796
17.08.2007 at 11:10 #594798Smá villa hér á undan:
[url=http://www.f4x4.is/new/forum/default.aspx?file=fjarskiptamal/8339:2wgyfj4k]þennan þráð[/url:2wgyfj4k].Yaesu hefur líka verið að gera góða hluti.
17.08.2007 at 11:48 #594800Nei Tryggvi Yaesu hefur ekki verið að gera neitt betri hluti en annað t.d er bilanatíðni lægri í Icom og lang lægs í Kenwood. Það eru mjög skiptar skoðannir á milli manna með ágæti Yaesu t.d hafa stöðvar sem eru 2-3 ára og eldri verið nokkuð stapílar er viðkemur bilanatíðni en nýrri stöðvar eru martröð, vissulega hafa þær verið til friðs hjá mörgum en líka verið slæmar hjá mörgum þ.m.t mér t.d og þetta merki fer aldrei inn í minn jeppa aftur.
17.08.2007 at 11:53 #594802ég sagði ekkert betri hluti… ég sagði bara góða hluti. Ég get ekki kvartað undan minni þó loftnetið mætti vera betra og á betri stað en það er ekki stöðinni að kenna. Hún er líka ekki alveg ný 😉
Your mileage may vary eins og sagt er..
17.08.2007 at 11:58 #594804Þetta hefur miklumiklumiklu meira að gera með frágang á lögnum og loftneti og það að loftnetið passi við tíðnisviðið sem nota skal frekar en yaesu vs. kenwood vs. icom.
písát
-haffi
17.08.2007 at 12:04 #594806Náttúrlega rétt sem haffi segir, það skiptir öllu máli að þetta sé allt rétt uppsett og frágangur góður, sé það ekki til staðar skiptir littlu máli hve góða stöð maður er mað það verður aldrei til friðs.
PS.
Tryggvi ég veit þú fyrirgefur mér þetta, ég er búinn að vera sammála öllum í allan morgun og það er nátúrlega enganvegin nógu gott…
17.08.2007 at 12:21 #594808Ég skil alveg hvernig þér líður 😉 svo er líka föstudagur í dag þannig að öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir.
Skál.
17.08.2007 at 14:14 #594810ef menn eru að kaupa nýar VHF mundi ég hafa í huga að geta send GPS staðseningu í gegnum hana
sjá þráð um [url=http://www.f4x4.is/new/forum/default.aspx?file=fjarskiptamal/5666#40013:1x87toej][b:1x87toej]þetta hérna[/b:1x87toej][/url:1x87toej]
skari
ps.
benni dj#$%& er hann flottur cruserinn
17.08.2007 at 14:43 #594812Tait stöðvar frá Nesradíó eru langbestu stöðvar sem ég hef notað – og þó hef ég átt allar hinar tegundirnar sem nefndar hafa verið í þræðinum. Ég hef líka fengið bestu og vönduðustu þjónustuna hjá Nesradíó… En þeir eru ekki heldur ódýrasti kosturinn og Tait stöðvarnar eru í dýrari kantinum.
Benni
17.08.2007 at 15:36 #594814Hvaða og hvenær áttir þú Kenwood? ég hef setið í öllum þínum jeppum )nema littla ford og LC 80 hræinu sem þú áttir í 14 tíma eða svo) frá því að þú byrjaðir í þessu sporti og ég bara man ekki eftir að þú hafir nokkurntíman átt Kenwood. Líklega er ég orðin svona gamall að mynnið er að gefa sig…
Já takk skari, þetta er allt að smella…
17.08.2007 at 16:22 #594816Hérna…. hvað er það sem ákveður að einhver ein stöð eða framleiðandi sé betra en einhver önnur? er það kanski verðið eða þjónustan hjá söluaðilanum og heyrist eitthvað annað í stöð sem kostar 100.000 og er "the besta stöðin" eða í stöð sem kostar 30.000 ? eru menn ekki annars að nota VHF stöðvar til að tala saman?
.
Eru ekki flest allar stöðvar með hátalara og míkrófón, sama sendistyrk og með nógu margar rásir til að taka allar þær rásir sem við erum með???
.
Hvernig getur ein stöð þá verið besta stöðin?
17.08.2007 at 16:47 #594818Farðu bara á netið og lestu bara hvað menn hafa skrifað í "komment" um stöðvar sem þeir hafa verið að nota ekki flóknara en það. Það er mjög auðvelt að finna síður þar sem menn eru að gera það nákvæmlega það sama og við hér erum að gera, bera samann stöðvar og miðla sinni reinslu af þeim. Hvað er besta talstöð í heimi hef ég ekki hugmynd um EN þú kemst mjög fljótt af því svo framalega sem þú berð þig eftir því að það er alveg sama inn á hvaða spjallþráð eða "test sýðu" þú ferð að eftir á kemstu að því að það er bara eitt merki sem flestir eru sammála um að sé best í VHF mobile. Sjálfur dæmi ég mikið líka út frá eiginn reinslu á því sem ég hef átt, ég hef t.d ekki á Tahiti eða hvað hún heitir og þessvegna hef ég ekki fjallað mikið um hana og að sama skapi virðist ekket vera til að "testum eða umfjöllun um þetta merki á netinu en það má vera að það hafi farið fram hjá mér, nafni er mjög hrifinn af henni en það er ekkert að marka hann, þið sjáið nú bara á hverju hann ekur um á bara það eitt og sér bendir til þess að maðurinn sé stór skrítinn
Jæja má ekki vera af þessu bulli lengur er lagður af stað suður að spá í ja það skildi þó ekki vera 47" dekk….
PS.
Stebbi yfir trúður, villt þú slá á til mín við tækifæriOg óskar nei talstöð og talstöð er ekki það sama þó þær séu gefnar upp fyrir 25 vött þá er mjög mikill munur á hvað þær eru að gefa í raunverulegu afli út í hjól sjáðu til. Raftæki eru bara misjöfn að gæðum og mis mikið í þau lagt.
17.08.2007 at 17:43 #594820HVORT að komi ekki tetra kerfi þanig að meðlimir 4 x4 geti notað og hvort að það se ekki öflugasta talstöðvarkerfi sem völ er a? einsog eg sagði aðan mer er bara spurn
17.08.2007 at 18:45 #594822Ég hef átt yaesu, tait og á í dag kenwood stöð. Kenwood stöðinn er sú besta sem ég hef átt. Þjónustan er mjög góð bæði hjá radíóraf og nesradíó.
17.08.2007 at 23:19 #594824En ég myndi fá mér stöð sem hægt er að "lesa" á í myrkri, ég fékk mér yeasu stöð og það var ekki tóm hamingja, því maður þurfti helst að kveikja ljósið í bílnum til að sjá á "kvikindið"svo ljós í stöðina annars ertu í tómu tjóni.
kv:Kalli amatör
18.08.2007 at 13:48 #594826Takk kærlega fyrir þetta, nú er bara málið að fara að skoða og græja og gera..
Kv Bjarki
20.08.2007 at 14:45 #594828Veit einhvor hvort hægt sé að kaupa svona talstöðvar eitthvað ódýrari í t.d. danmörku eða öðrum evrópulöndum? þ.e. fá taxfree nótur.
kv, Bergur.
20.08.2007 at 16:52 #594830er nátúrlega mjög flott kerfi en ég held að það sé nú svolítið í að við getum farið að nota það. Það væri fróðlegt að fá frekari uppl. um það hvernig uppbygging gengur, Kjartan vernig er staðan á þessu dæmi.
20.08.2007 at 17:13 #594832…gengur bara vel. Ég held að það séu komnir um 110 sendar í loftið. Nýlega bættist Strútur við.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.