Forsíða › Forums › Spjallið › Fjarskiptamál › Vhf handstöðvar
This topic contains 27 replies, has 10 voices, and was last updated by Kjartan Björnsson 10 years, 10 months ago.
-
CreatorTopic
-
18.12.2013 at 23:53 #441988
Hvar fæ ég bestu VHF handstöðvarnar?
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
19.12.2013 at 09:27 #441991
einn amator sem ég þekki kaupir týpu sem heitir baofeng. mjög ódýrar en mjög öflugar. ebay er kaupstaðurinn
19.12.2013 at 10:12 #441997Já ok, fékk mér Kenwood stöð í bílinn hjá Radíóraf. Þetta er bæði digital og analog, veit svosem ekkert hvað það hjálpar. Var að spá í hvort maður ætti að fá sér handstöð frá honum líka. Kannski sniðugt að vera með eitthvað annað merki sem handstöð. Ræddi við hann hjá Radíóraf áðan og hann sagði að það væri sniðugt að hafa digital handstöð því þá gæti ég talað við bílinn án þess að það kannski heyrðist um allar trissur. Sagt eitthvað skemmtilegt við frúna t.d eða öfugt, hún gæti skammast í mér án þess að allir þyrftu endilega að heyra.
19.12.2013 at 11:04 #442002S**T !
Þessar Baofeng stöðvar eru niður í 50$ með sítón!
Gunnar, veistu hvort það er hægt að fá þær CE-merktar?(það þarf kannski ekki merkilega vhf stöð þegar maður skreppur út úr bílnum…)
19.12.2013 at 11:08 #442003Nei planið er að hafa VHF handstöðina sem backup ef hin bilar þannig að ég vil vandaða stöð.
19.12.2013 at 11:43 #442004Myndi ekki treysta of mikið á þessar kínastöðvar. Fyrir utan það að þær eru amatör stöðvar og eingöngu til brúks á því tíðnisviði, þá eru þetta skelfilegir truflanavaldar sumir hverjir.
Ágætis græjur fyrir verðið samt, en ég myndi velja mér eitthvað vandaðara sem varastöð fyrir jeppann. T.d.
Icom, Yaesu (HX370 eru mjög fínar), Kenwood eða Maxon (SL-1000 eru mjög fínar m.v. verð).Nú verð ég samt að viðurkenna að ég skil ekki alveg hvað átt er við með Digital handstöð? Þeas, einu digital kerfin sem ég þekki eru trunked digtal kerfi og það gengur illa saman með analogue kerfunum…
Dettur í hug að átt sé við DCS tónsquelch, sem er stafrænn kóði sem er sendur í upphaf og lok sendingar til að opna squelchinn, en gefur í raun ekkert „private“ því ef viðkomandi er með hefðbundinn squelch mun hann opnast hvort sem er…
19.12.2013 at 12:26 #442006Sælir, já hann hefur fengið þær CE merktar.. en einnig ekki…
Skv honum eru þetta mun betri stöðvar en t.d. yaesu.. bílstöð sem ég er með í mínum. 10 ára gömul.
Hann hefur keypt yfir 15 svona og er að sjálfsögðu amatör.
Gæðin í þeim eru upp á par við hitt dótaríið skv honum. Allavega er hann kröfuharður og þessar standast þær kröfur. Sel það ekki dýrara en ég heyrði það
kv
Gunnar
19.12.2013 at 16:15 #442008Ég hef verið með Yaesu/Vertex og Motorola í handstöðvum og þær hafa reynst mjög vel. Ég er síðan með Icom bílstöð sem sömuleiðis hefur reynst vel. Þetta eru allt alveg topp merki (sömuleiðis Maxon og kenwood sem Sammi bendir á) og ég myndi mikklu frekar skoða eitthvað svona frekar en að treysta á kínsverska stöð sem kostar ekki nema bara aðeins meira en gott loftnet. Þessar kínversku stöðvar eru eflaust fínar fyrir verðið en það dugar bara ekki alltaf. Það virðist vera nokkuð algent að menn hafi verið að lenda í því að mic tengið virki ekki, loftnetin séu léleg, skjáirnir detti út, gangi illa að forrita þær, hljóðgæði eru léleg eða þær séu bara DOA. Þetta hljómar rosalega mikið eins og kínadót þar sem breytur á milli eintaka geta verið mikklar þ.e.a.s. maður getur verið heppin og náð í gott eintak eða verið ekki svo heppin. Ég hef samt aldrei átt svona baofeng stöð.
Kv.
Óskar Andri
TF3OA
19.12.2013 at 17:15 #442009Þá sýnist mér bara vera fordómar sem segja að Baofeng stöðvar séu ekki góðar og einn með reynslu sem segir að þær séu góðar og jafngóðar og fínu merkin.
kínadót-kínadrasl-kínadótarí…. þetta á sér allt stoð nema það að flestir ef ekki allir íhlutir í allar þessar talstöðvar sama hvað þær heita eru framleiddir í kína….. og settar saman þar líka…
já þetta kínadót er drasl.. hehehe
Í kína búa milljarðar… væntanlega framleiða þeir fullt af drasli og fullt af gæða hlutum, t.d. er hp talvan mín sem ég skrifa þetta inn á frá Kína, nóg með fordóma.
Kv Gunnar
19.12.2013 at 18:49 #442026Keypti eina handstöð um daginn sem ég fattaði svo seinna að var frá Kína. Verð að viðurkenna að þá ákvað ég að hún færi aldrei í bílinn. Þetta er bara því miður reynsla mín af þessu Kínadóti. Þó svo að stöðvar sem eru merkjavara séu framleiddar í Kína eða íhlutir þá er allt annað eftirlit með þeirri framleiðslu. Halelúja…
20.12.2013 at 14:37 #442070Ég er með HX370 vertex stöð sem handstöð, Vertex VX2200 sem bilstöð og svo Amatör stöð sem backup bílstöð , sem hefur komið sér vel, í stórferðinni síðast þá brotnaði hja mer loftnet á miðjum vatnajökli þannig ég missti aðra stöðina út, Handstöð hefur ekki mikla drægni þannig ég hafði þó aðra bílstöð til að nota , VX370 stöðin er fín og er ekkert svo hræðilega dýr
20.12.2013 at 14:55 #442071Ég rakst á Icom stöð á ebay sem kostar 79 dollara og frí heimsending. Ég fór á reiknivélina hjá tollur.is og sá þar að innflutningur á talstöðvum væri háður leyfi Póst&Fjarskiptastofnunar. Ég hringdi í þá til að athuga hvað þyrfti að uppfylla. Stöðin virðist vera amatörstöð og sögðu þeir að ég þyrfti að fá notkunarleyfi en það væri bara eyðublað sem ég þyrfti að fylla út. Þar fyrir utan þyrfti stöðin að vera CE merkt, annars yrði hún endursend.
Ég sendi því fyrirspurn til kínverjanna, hvort stöðin væri CE merkt. Þeir svöruðu strax:Dear customer
Thank you for your email .
We can mark that for you .
Any questions pls feel free to contact us .
Best wishes
ZoeÉg er enn að hugsa málið
22.12.2013 at 14:19 #442292CE virðist nú vera bara skattlagning og verndartolladótarí frá evrópu…. er ekki einhver með þetta CE á hreinu, það virðist þó auðvelt að fá það stimplað á hvað sem er frá kína
22.12.2013 at 16:55 #442300CE er öryggisstaðall yfir búnað, bæði umgjörð og rafhluta. Það er svolítið lýsandi fyrir Kínadæmið að þeim þykir ekkert mál að setja bara stafina á.
22.12.2013 at 16:56 #442301Ef búnaður er merktur CE þá á það að þýða að hann standist ákveðnar gæðakröfur.
22.12.2013 at 17:39 #442302Þýðir þessi skammstöfun ekki bara China Export ?
ÓE
22.12.2013 at 20:02 #442326Kannski bara
13.01.2014 at 11:13 #444096Ég rakst á grein þar sem verið var að prófa sendinn á Baofeng uv-5r
Review Baofeng UV-5R (Part II)Virðist vera í lagi…
13.01.2014 at 18:54 #444107CE er ekki staðall, heldur er það merki sem segir að framleiðandi segir að varan standist þá staðla sem framleiða á eftir fyrir evrópska efnahagssvæðið. Með öðrum orðum, það er ekkert eftirlit með CE merkingum og CE merking sem slík segir í raun ekkert um það hvort varan sé örugg eða ekki, því hún er ekki vottuð…
Sjá nánar: http://en.wikipedia.org/wiki/CE_marking
14.01.2014 at 09:31 #444128Setti inn á rangan þráð
Sæl.
Nú þegar eru komnar 10 pantanir og lágmarki er náð.
Trausti Gylfason
Rúnar Sigurjónsson
Pétur Ingjaldsson
Baldur Gíslason
Erling Gunnarsson
Hilmar Örn Smárason
Þorkell Kolbeinsson
Helgi Kristinn Kolbeinsson
Gísli Þór Þokelsson
Guðlaugur Jónsson
14.01.2014 at 23:13 #444169http://www.stadlar.is/thjonusta/ce-merkingar.aspx
Farðu vel í gegnum þetta Samúel þá veistu meira um CE.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.