Forsíða › Forums › Spjallið › Fjarskiptamál › Vhf bílastöð
This topic contains 15 replies, has 1 voice, and was last updated by Lárus Elíasson 15 years, 3 months ago.
-
CreatorTopic
-
29.07.2009 at 23:27 #205498
mér stendur til boða að kaupa talstöð í bílinn frá USA. Mig langar að spyrja þá sem vita hvernig er með forritun o.þh eins og að fá 4×4 rásirnar inn. Yrðu það ekki einhver vandræði ef maður kæmi með stöð sem ekki væri keypt hér og er sennilega ekki CE merkt í USA. Þetta er samt bara venjuleg talstöð sem fæst einnig hér á landi
Kv Beggi -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
29.07.2009 at 23:30 #652788
Hvaða framleiðandi og týpa?
-haffi
29.07.2009 at 23:36 #652790Kenwood, týpan ekki alveg ákv. sennilega Tk 7180H eða Tk 7150
29.07.2009 at 23:37 #652792http://www.kenwoodusa.com/Communication … 180H-8180H
http://www.kenwoodusa.com/Communication … -7150-8150
Sennilega önnurhvor þessara
Kv Beggi
30.07.2009 at 08:29 #652794Talstöðin þarf að lágmarki að vera CE merkt. Sumar vörur er hægt að fá bæði með og án CE merkingu og það þarf að ganga úr skugga um að talstöðin sé með CE merkingu. Svo er verið að boða á næstunni harðari reglur varðandi þær vörur sem hafa hingað til fengnist innfluttar án CE merkingar og þegar þær reglur koma til framkvæmda að fullu verður CE merkingin algert skilyrði.
Svo geta talstöðvar með innbyggðri tíðni einnig vera háðar leyfi frá Póst- og fjarskiptastofnum og í sumum tilfellum óheimilt að flytja þær inn.
Kv. SHM
30.07.2009 at 12:01 #652796Farðu bara til Sigga í RadioRaf, þeir eru með Kenwood stöðvarnar á fínu verði.
01.08.2009 at 11:40 #652798menn vilja geinilega ekkert segja um þetta svo ég finn bara út úr þessu sjálfur. Bragi, ætli ég væri bara ekki búinn að fara í radíoraf ef ég ætlaði mér það.
01.08.2009 at 11:51 #652800
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Ce merking er ein af því sem ESB ætlast til að allir fari eftir,ESB setur þessar reglur ég segi bara fuck you ESB ef þessi stöð virkar hjá þér og hægt er að nota hana þá bara kaupir þú hana .
Matti
01.08.2009 at 13:42 #652802Ahugaðu að stöðvarnar sem þú ert að spá í, merktar H eru með helmingi hærri sendistyrk heldur en sú sem seld er hér, og ekki merkt H. Spurning hvort það sé brot á lögum/reglugerð og þal. gætu aðilar sem forrita stöðvarnar hugsanlega neitað þér um það. Bara pæing.
-haffi
01.08.2009 at 18:37 #652804
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Ég keypti forritið með minni stöð þegar ég keypti hana svo ég set rásirnar sjálfur inn,það er hægt að kaupa forritin úti til að setja rásirnar inn og uppfæra stöðina.
Matti
01.08.2009 at 19:28 #652806
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Það getur verið vesen að koma þessu til landsins ef CE merki er ekki að finna á tækinu.
CE merktar talstöðvar eru hins vegar ekkert betri en aðrar, þetta eru bara viðskiptahindranir framleiddar í Brusluborg.
Ef þú ert að ferðast er þetta minna mál, bara stinga í töskuna og vona það besta. Kannski spurning um að plokka CE límmiða af leikfangi og leyfa honum að lenda fyrir algera slysni á kassanum utanum stöðina….annað eins getur nú gerstÞað er afturámóti ekkert að því að hafa eftirlit með tækjum sem senda út útvarpsbylgjur, en að binda það við CE merkingu þykir mér full þröngt. Í USA eru jafngildir staðlar með tilheyrandi merkingum í gildi, og ekkert síðri. Þar sem við eru sem betur fer ekki hluti af ESB, þá er það bara okkar mál(Íslendinga) hvernig við högum þessu.
[b:1lg6dboz]Vissuð þið að Cheerios verður bannfært á Íslandi ef við göngum í ESB?[/b:1lg6dboz]
kkv
Grímur
02.08.2009 at 00:48 #652808í bílstöð máttu hafa 25 watta sendistyrk. og eru þessvegna báðar þessar stöðvar ólöglegar hér á landi. ef þú hefur amatör leyfi máttu flytja inn þessar stöðvar, þá þurfa þær ekki að vera ce merktar. í fljótu bragði sýnist mér þessi stöð vera opin, eða er sennilega ekki mikið mál að opna hana. ég sé ekki að tk-7180 sé með möguleika á að vista rásir í minni svo hún yrði bara leiðinleg í notkun, hin stöðin tk-7150 er með minni en einungis með 50 w sendistyrk, og verður hún þessvegna leiðinlegri uppá truflanir og annað vesen….
Ég er búinn að eiga nokkrar svona amatör stöðvar, og þetta er ógeðslega gaman á meðann að maður hefur tíma til að fikta í þessu, amatör stöðvarnar eru hrikalegur tímaþjófur, og til að nota þær í alvöru jeppaferðum þarftu að kunna djöfulli vel á þær og vera vel vakandi f. henni…. Ég var með eina sýn á þetta amatör stöðvarnar eru mátturinn dýrðin og amen, svo bilaði stöðin mín, og ég fékk lánaða venjulega bílstöð á meðan menn voru að kíkja á hana f. mig, Í stuttu máli. Ég er núna með bæði venjulega stöð sem ég keifti uppí N1 og svo amatör stöð. ég heiri miklu meir í venjulegu stöðinni, maður kveikir á henni og hún gerir það sem hún á að gera. ekkert vesen og ekkert bögg. það heirist líka betur í mér. það sem gæti skýrt þetta er að loftnetið f. venjulegu stöðina er klipt f. 4×4 rásirnar, þótt það sé á ömurlegum stað í brettinu þá virkar sú stöð miklu betur en hin….
ef ég á að gefa einhverjum ráð, þá farið og kaupið venjulega stöð.
02.08.2009 at 00:52 #6528101 enn
ég hef það f. reglu að taka allt úr bílnum þegar ég er ekki á fjöllum.
ég tek talstöðvar—gps tæki—- og allt annað sem hægt er að koma í verð.ég hef sennilega gleimt að læsa bílnum um daginn þar sem hann stendur, og einhver sauðnum fannst sniðugt að stela 10 ára gömlum geisla spilara. svo verið vakandi
02.08.2009 at 12:16 #652812Tk 7180 getur vistað rásir í minni skv. mínum skilningi og það eina sem gerir hana að amatörstöð er sendidstyrkurinn, eða þannig skil ég málið amk. Það er hægt að kaupa 7180 hjá Sigga í radíoraf fyrir fuuuulllllllt af peningum en hún er líka komin niður í 25w þar. Er bara á fullu að vinna, þarf að setjast niður og skoða þetta eftir helgina, takk Bazzi fyrir þitt innlegg.
Kv Beggi
02.08.2009 at 13:09 #652814he he… þá er þetta svona dæmi sem ég myndi pottþétt skoða… samt spurningin hvort hann sé með einhverja aðra týpu….. en you go boy ;=)
skoðaðu þessa linka
http://www.radio-phone.com/TK-7180-8180.htm
http://www.radio-phone.com/Kenwood-PDF- … ochrue.PDF
http://www.maximonsolutions.com/shop/in … cts_id=387svo gætiru mögulega fundið eithvað a síðu sem heitir mods.dk
03.08.2009 at 22:25 #652816Ég þekki til manns sem hefur flutt inn margar af forveranum TM-271A sem eru tær snilld. Þarf að passa uppá að hún sendi líka út á tíðnisviðinu sem þig vantar. Amator stöðvarnar geta hlustað á vítt tíðnibil en aðeins sent út á þröngu bili. Tíðnir 4×4 falla ekki innan þessa bils, nema þú finnir gott mod sem fjarlægir þessa takmörkun!
Ég mundi m.ö.o. leita að modinu fyrst á vefnum áður en þú kaupir stöðina, ef hún er ekki þegar opin yfir alt sviðið. TM-271A er t.d. til í mörgum útgáfum eftir mörkuðum, Evrópa, Asía, USA… sem voru mismunandi opnar eftir mörkuðum og það var til einfalt mod á hana sem fólst í að plokka út eina mótstöðu samkvæmt þessu manni sem ég þekki til.
l.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.