Forsíða › Forums › Spjallið › Allt annað › vetnis búnaður
This topic contains 9 replies, has 1 voice, and was last updated by Gunnar Már Guðnason 13 years, 1 month ago.
-
CreatorTopic
-
08.10.2011 at 09:02 #220708
Sá að stjórinn var að svara einhverjum hér í þræðinum fyrir neðan, þar talar hann um að það hafi verið flutur inn vetnis búnaður sem virkar. Hvað gerir þessi búnaður er hann að spara bensín eða olíu? Er þetta svipuð græa og var auglíst hér af enhverju íslensku fyritæki fyrir nokrum mánuðum?
Er ekki enhver hér sem hefur prófað þetta og getur sagt mér hvernig þetta virkar og hverju þetta skilar í afli eða eiðslu? Einhver sem hefur notað þetta, eða sem er að nota þetta , Ég vil semsagt fá svar frá einhverjum sem veit eithvað um þetta og veit hvernig þetta virkar en ekki einhverjum sem hefur ekki notað þetta en þikist vita hvernig þetta virkar.kv deddi
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
08.10.2011 at 13:02 #739013
http://fib.is/?FID=2764
Vetnisbúnaður og meintur bensínsparnaður
– raunveruleiki eða gabb?Fyrir ekki svo löngu birti Morgunblaðið frétt um undrabúnað sem auk þess væri íslensk uppfinning, sem sparaði eldsneyti í bílum og mótorhjólum um allt að 30%, auki aflið um svipað hlutfall og drægi úr mengun um þetta 60-80%. Í sjónvarpsfrétt Morgunblaðsins kemur fram að tækjabúnaðurinn sjálfur kostar frá 68 þús kr. upp í 130 þús. kr. + ísetningu.
Í stórum dráttum á þessi búnaður að virka þannig að hann er í raun rafgreiningartæki sem skilur að vetnis- og súrefnisatómin í venjulegu vatni. Vetninu er síðan dælt inn í brunahólf vélarinnar þar sem það blandast hefðbundna eldsneytinu, hvort heldur það er bensín eða dísilolía. Þessi vetnisviðbót er sú sem sögð er auka afl vélarinnar, minnka eldsneytiseyðsluna og stórdraga úr mengun. Rafmagnið sem notað er til að rafgreina vatnið sem hellt er á búnaðinn kemur frá rafal bílsins, en ætla má að í meðalbíl taki rafgreiningarbúnaðurinn 1-2 hestöfl. Aukaálagið kallar því á aukna eldsneytiseyðslu. Þetta vegur síðan hvort annað upp þannig að í raun sparast ekki nokkur skapaður hlutur.
Þá má reikna með að í vetrartíð eins og nú ríkir víða um land sé nokkur hætta á að hið hreina vatn sem hellt er á búnaðinn til rafgreiningar gæti átt það til að frjósa og skemma búnaðinn.
Orkan jöfn þótt breytist úr einni mynd í aðra
Skemmst er frá því að segja að búnaðurinn, stendur ekki fremur en mörg önnur töfralausnin sem upp kemur þegar eldsneytisverð er hátt eins og nú, alls ekki undir væntingum. Hann, eða öllu heldur staðhæfð virkni hans, stangast í meginatriðum á við það grundvallarlögmál eðlisfræðinnar sem segir að orka sem til staðar sé, sé ætíð hin sama þótt hún breytist úr einni mynd í einhverja aðra. Það að nota bensínorku til að rafgreina vetni úr vatni sem síðan er brennt ásamt bensíni í brunahreyflinum er þannig í besta falli gagnslaust. Líklegra er þó að það auki eyðsluna fremur en hitt. Vissulega eru hugsanlegt að aflið aukist stutta stund en sú aukaorka sem áður þurfti til að gera rafalnum mögulegt að framleiða aukastrauminn til rafgreiningarinnar er búinn að éta upp ávinninginn fyrirfram. Vetnið varð nefnilega ekki til af sjálfu sér heldur með því að brenna bensíni. Öðru máli kann hins vegar að gegna ef vetnið er framleitt fyrir utan bílinn t.d. með húsrafmagni og síðan sett á vetnistank í bílnum.Bandaríska tæknitímaritið Popular Mechanic hefur talsvert ritað um bæði vetnisbúnað af þessu tagi sem hér er um að ræða og ýmsan annan meintan sparnaðarbúnað og eru niðurstöður nokkuð á einn veg. Lesa má nánar um þessar prófanir hér. Í greininni er fjöldi tengla, m.a. inn á prófun sem tímaritið gerði í samvinnu við NBC sjónvarpsstöðina.
Ágústa Loftsdóttir eðlisfræðingur er sérfræðingur hjá Orkustofnun um hverskonar eldsneyti sem nýta má á bíla. Hún segir í samtali við FÍB fréttavefinn að flest bendi til að þessi umræddi vetnisbúnaður sé plat. „Ef þú ætlar að framleiða vetnið um borð í bílnum ertu farinn að brenna eldsneyti sem nemur því vetni sem framleitt er í bílnum þannig að í raun á enginn orkuávinningur sér stað. Eldsneytissparnaður upp á jafnvel 30% er einfaldlega óhugsandi. Ef þetta virkilega er svona, þá ættu þessir menn sem eru að smíða þennan búnað ekki að fá einhverja þúsundkalla fyrir græjurnar sínar heldur Nóbelsverðlaunin hvorki meira né minna. Jafnframt þyrfti að endurhugsa og endurskrifa flest grundvallarlögmál eðlisfræðinnar,“ segir hún. Heyra má nánar um málið í samtali við Ágústu Loftsdóttur á Rás 1 í RÚV fyrr í vikunni.
Sölumenn búnaðar af þessu tagi fullyrða gjarnan að eldsneyti í bílvélum brenni mjög illa eða einungis að 20-30%. En þegar vetni sé blandað saman við eldsneytið inni í brunahólfum bílvéla, þá valdi það því að eldsneytið brenni miklu betur. Þetta kann að hafa verið rétt í árdaga bílsins en alls ekki í dag. Nútíma bílvélar brenna eldsneytinu einmitt mjög vel og um nánast 100%. Annað mál er hins vegar að öll orkan í eldsneytinu nýtist ekki svo vel til að drífa bílinn áfram, aðallega vegna þess að nokkur hluti hennar verður að hita.
En bílaframleiðendur eyða árlega miklum fjárhæðum og fyrirhöfn í að þróa vélarnar áfram og reyna stöðugt að bæta nýtni þeirra með ýmsum hætti um einhver prómill jafnvel. Ágústa bendir á að það segi sig nánast sjálft að ef bílaframleiðendur ættu þess kost að setja í bílana einhver tæki sem kostuðu þetta lítið hlutfallslega, en sem fjarlægði um 30% eyðslunnar í einu vetfangi, þá væri slíkur búnaður þegar kominn í hvern einasta bíl.
08.10.2011 at 13:06 #739015Amen!
08.10.2011 at 13:49 #739017En gamlar vélar?
Hef talað við mann sem setur þetta í alla sína bíla og fullyrðir að þetta hreinsi ofan af stimplunm og minnki eldsneytiseyðslu um ca: 10-15% á mikið eknum vélum. Ath. að ég er ekki að tala um nýjar vélar!
Mbk.
Hans
P.S.
Ég er ekki að tala af eigin reynslu bara miðla því sem ég hef heyrt svona til gamans
08.10.2011 at 22:09 #739019Góða kvöldið
Karl faðir minn á Kia Sportage árgerð 2008 með V6 2,7 lítra vél.
Í vor keyptum við svona búnað af honum Benna og settum í þennan bíl, fyrst var ég með stillt á 10 ampera straum og þá var sparnaðurinn c,a 1,5 lítrar á hundraðið.
Svo í sumar fór ég að gera tilraunir með strauminn, ég prófaði að hækka hann upp í 15 amper og allt versnaði, en þegar ég tók mig til og lækkaði strauminn þá breytti það helling.
Í dag erum við að keyra þetta á 8 amperum og það munar um 2 lítrum á hundraðið.
Það er búið að keyra bílinn rúmlega 3500 km með búnaðinn í og ég et ekki sagt annað en að við erum sáttir við þetta.
Auðvitað hefðum við viljað miklu meirir sparnað en þetta er það besta sem við getum gert.
Ég pantaði líka í þennan bíl sérstaka tölvu sem hjálpar skynjurunum í vélinni að vinna með Vetnis innsprautun.Kveðja
Gunnar Már
08.10.2011 at 23:08 #739021Ef menn vilja rökræða fram og aftur um hvort þetta virkar eða ekki, er hægur vandinn að finna a.m.k. tvo tiltölulega nýlega þræði sem fjalla um það. Telji menn sig geta bætt einhverju við það sem þar kemur fram er tilvalið að bæta við þá þræði (held t.d. að það sem er á fíb vefnum sé í báðum þráðunum; jafnvel oftar en einu sinni).
Hér væri hins vegar gott að fá fleiri reynslusögur.
kv.
ÞÞ
09.10.2011 at 00:32 #739023Ég prófaði að keyra til Keflavíkur á 90km hraða og 80km hraða til baka, sparnaðurinn til baka var 1,5L á Hundraði.
Er sammála því að ef þetta vetnis dót sparar eldsneyti þá væru allir bílaframleiðendur með þetta í sínum bílum.
Vildi gjarnan fá líka fleiri reynslusögur
09.10.2011 at 22:19 #739025Af leom.com
http://www.leoemm.com/brotajarn37.htm
b]Vetni getur gert kraftaverk … [/b]
Undanfarna daga hef ég svarað tugum fyrirspurna um álit mitt á nýrri tækni sem fyrirtæki í Reykjavík, sem fæst við mótorhjólaviðgerðir, hefur þróað til að framleiða vetni í vélarrými bíla og sagt var frá í frétt í Morgunblaðinu. Fyrirtækið lofar allt að 30% eldsneytissparnaði eftir aðstæðum. Ég hef bent á að mýgrútur sé af svona ,,uppfinningum" á Netinu – margar trúverðugri en sú íslenska, en þó myndi ég ekki kaupa eina einustu þeirra, hvað þá nenna að prófa hana. En hér er búnaður sem raunverulega virkar og sparar örugglega helling af eldsneyti. Skoðaðu myndina mjög gaumgæfilega og þér mun verða ljóst að með þessum búnaði (klossaklemman kostar 2000 krónur í Stillingu) muntu ,,taka til fótanna" í bókstaflegri merkingu, þ.e. ganga miklu meira en þú hefur gert fram að ísetningu. Þessi hugvitsamlegi og hundódýri búnaður, sem við getum kallað ,,Þórsklemmuna," sparar því ekki einungis eldsneyti heldur styrkir líkamann og eykur holla útivist með því að stemma stigu við ofnotkun bílsins.,,Þórsklemman" er ný uppfinning sem sparar helling af eldsneyti og eykur holla hreyfingu og útivist um leið (vélin fer ekki í gang nema þegar henni sýnist). Kostnaður er sáralítill. Búnaðurinn myndar vetnisgas (ekki spyrja hvernig), sams konar og setti Áburðar-verksmiðju ríkisins á hausinn hér um árið – áður en það blés Grafarvogsbyggðinni til himins (sem var heppni en ekki forvörnum að þakka).
[b:126i1kzv]Er mest hissa á að félagi í klúbbnum geti verið selja einföldum og auðtrúa félagsmönnum þetta heimskulega dót í gegnum verfsíðu f4x4.is og það án afskipta vefstjórnar.
[/b:126i1kzv]
09.10.2011 at 22:48 #739027Þetta kom frá TÆKNINEFND 4X4
Kynntum okkur notkun vetnisbúnaðar við vélar um það leiti sem slíkur búnaður komst í fréttirnar sem eldsneytissparandi aðgerð. Eftir nokkra skoðun á þessu þá komumst við að þeirri niðurstöðu að líklega væri ekki fyrirhafnarinnar virði að fara í prófanir, en hugsast getur að sú afstaða breytist ef nýjar upplýsingar eða tækni finnast.
11.10.2011 at 18:38 #739029Ég þakka falleg orð í inn garð Gulli.
Aldrei hef ég eða mun ég hafa svona orð um fólk sem ég hef hvorki hitt né séð.
Kanski eru sumir með meiri ævintýraþrá en aðrir eða vilja bara gefa nýungum séns.
En eins og ég lýsi í mínum fyrri pósti þá er búið að prófa þetta í núna tæpa 4000 km og þessi búnaður er að virka þó að þetta sé ekki að spara nein 30%.Kveðja
Hin einfaldi og auðtrúa
Gunnar Már
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.