FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

vesen á drifum í Trooper

by Sveinn Gíslason

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › vesen á drifum í Trooper

This topic contains 7 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson Samúel Þór Guðjónsson 16 years, 3 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 11.02.2009 at 04:26 #203790
    Profile photo of Sveinn Gíslason
    Sveinn Gíslason
    Member

    Málið er að ég fæ troopann ekki til að fara í fjórhjóladrifið. Það kemur eðlilegt ljós í mælaborðið en hann er samt ekki að grípa á hvorugu hjólinu. Er eitthvað öryggi sem gæti verið að klikka??? Ef einhver hefur reynslu eða vit á þessu drasli endilega skrifa það hér.

    K.Kv. Svenni

  • Creator
    Topic
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)
  • Author
    Replies
  • 11.02.2009 at 08:27 #640614
    Profile photo of Aron Frank Leópoldsson
    Aron Frank Leópoldsson
    Member
    • Umræður: 39
    • Svör: 110

    Gæti verið að mótorinn sé fastur. Þá er bara að finna rafmagnsmótorinn og tjékka á honum.





    11.02.2009 at 09:48 #640616
    Profile photo of Þórður Ingi Bjarnason
    Þórður Ingi Bjarnason
    Member
    • Umræður: 13
    • Svör: 440

    þetta er sennilega sama og ég er að lenda í með starex sem ég á. Hann fer ekki alltaf í framdrifið og hefur borið á þessu nokkrum sinnum nú í þessu mikla frosti. Hann er með sjálfvirkum lokum og þær virðast frjósa. yfirleitt þá losnar um þetta eftir að ég er kominn af stað og hann dettur í drifið.

    Vitið þið hvað hægt er að gera til að koma í veg fyrir að lokurnar frjósi fastar?





    11.02.2009 at 13:58 #640618
    Profile photo of Árni Sigurður Karlsson
    Árni Sigurður Karlsson
    Member
    • Umræður: 3
    • Svör: 8

    Ég á við sama vandamál að stríða i Patrol 90 árgerð…Manual Driflokur…ég Sprauta bara remington Byssu smurefni á þær og þær svínvirka alveg eftir það





    11.02.2009 at 18:55 #640620
    Profile photo of Steinþór Friðriksson
    Steinþór Friðriksson
    Participant
    • Umræður: 64
    • Svör: 283

    ef það eru sjálvirkar lokur á honum þá er pungur upp á fram hásinguni þap koma 2 slaungur í hann prófaðu að taka þær af og ath kvort þær séu stiflaðar eða gat á þeim ef ekki gæti þessi pungur verið bilaður





    11.02.2009 at 19:05 #640622
    Profile photo of Agnar Benónýsson
    Agnar Benónýsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 3080

    Í eigendahandbókinni þinni er kafli um fjórhjóladrifið í Troopernum og þar er smá klausa sem fjallar um að hann geti verið erfiður í framdrifið og síðan ráð við því. Þetta hjálpaði þegar ég var að standa í þessu en ég man ekki alveg í augnablikinu hvað það var nákvæmlega sem átti að gera ….





    13.02.2009 at 04:19 #640624
    Profile photo of Sveinn Gíslason
    Sveinn Gíslason
    Member
    • Umræður: 25
    • Svör: 32

    takk fyrir þetta, ég tékka á þessari manual bók.





    13.02.2009 at 21:04 #640626
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Driflokan (það er nú bara ein…) er hægra megin á drifhúsinu. Þar eru tveir vacuum lokar og þú getur prófað að athuga hvort þeir smella þegar það er sett í fjórhjóladrifið.
    Ef það smellur ekkert í þeim eru þeir bilaðir eða þá það er eitthvað vesen á stýrstraumnum eða hreinlega vacuum dótinu. Getur líka losað eina og eina vacuum slönguna og athugað hvort það sé undirþrýstingur/sog á þeim.
    .
    Svo getur verið að gaffallinn inní húsinu sé fastur, minnir að það séu bara 4 boltar sem halda lokinu eða pungnum á drifhúsinu og þú ættir að geta opnað þetta til að skoða.
    Þarna er samt skynjari, sem skynjar ef draslið fer inn, þeas lokan smellur, ef að hún nær ekki að ýta á þennan skynjara þá blikkar 4wd ljósið bara.
    .
    Miðað við þínar lýsingar logar ljósið bara stöðugt, sem gæti bent til brotins framdrifs. Eða mismunadrifs jafnvel. Ég mæli með að tjakka bílinn upp að framan og prófa að snúa hjólunum og hlusta vel og jafnvel snúa drifskaftinu líka.
    Hlusta eftir skrítnum hljóðum í drifhúsinu og þessháttar.
    Ég hef séð þónokkur mismunadrif úr trooper framdrifum í maski.
    .
    kkv, Úlfr
    P.S. Svo er náttúrulega rafdrifinn millikassi í þessu dóti. Mæli með að svissa á hann, og prófa að setja hann í og úr fjórhjóladrifið. Þú ættir ða geta heyrt ef rafmagnsmótorinn er að gera eitthvað gáfulegt.





  • Author
    Replies
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.