FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Veltibúr

by Haukur Þór Smárason

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Veltibúr

This topic contains 7 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Tryggvi R. Jónsson Tryggvi R. Jónsson 18 years, 10 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 08.08.2006 at 12:56 #198334
    Profile photo of Haukur Þór Smárason
    Haukur Þór Smárason
    Participant

    Hafa menn verið að fá sér veltibúr nýlega?

    Málið er það að ég er með Hilux og ætlaði bara að byrja á þessu strax.

    En hver er í því að beygja rör í boga? Nú vill ég hafa þetta almennilegt en ekki illa beygt og jafnvel sprungið og ætla því ekki að beygja það sjálfur.

    Arctic Trucks sögðust ekki treysta sér í þetta og KE Málmsmíði vill ekki kannast við að þeir hafi smíðað búr og ég næ ekki í Prófílstál.

    Vitiði um einhverja fleiri sem ég gæti prófað að herja á með þetta?

  • Creator
    Topic
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)
  • Author
    Replies
  • 08.08.2006 at 16:19 #557464
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Er ekki ráð að spyrja rallarana, hverjir smíði þetta fyrir þá? Er ekki Palli Hall, félagi okkar, enn að selja Scania hjá Heklu? Jóhannes félagi hans hjá Wurth, o.s.frv. os.frv. Þeir vita þetta áreiðanlega upp á hár – kostar ekki mikið að hringja og spyrja þessa stráka. – B.t.w.- þurfa ekki að vera heildregin rör í svona smíði? Er nokkuð vit í að nota venjuleg "vatnsrör" með saum?





    08.08.2006 at 17:37 #557466
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég hef ekki reynslu af veltigrindum sjálfur, en síðastliðinn vetur hafði samband við mig Halldór Sigurþórsson (s 663 4371), sem er með mikla reynslu í þessum efnum. Hann lagði til að notuð væru 32 mm [url=http://www.ga.is/?p=300&i=19&v=54:h0zauy7m]heildregin rör,[/url:h0zauy7m] með 3mm veggþykkt. Ef gert væri mát af því hvernig rörið ætti að vera, með pappa, væri hægt að fara með það á púst verkstæði, þar sem menn eru með aðstöðu til þess að beyja rör. Mikilvægast að gera boga fyrir aftan framsætin og tengja hann við öryggisbelta festingarnar. Hann taldi ekki ástæðu til að láta grindina ná að framrúðu, en einnig má gera boga fyrir aftan aftursætið, og tengja bogana saman. Það er mikilvægt að hafa góða tenginu við gólfið í bílnum.
    Vona að ég hafi komið þessu óbrengluðu til skila.

    -Einar





    08.08.2006 at 17:53 #557468
    Profile photo of Haukur Þór Smárason
    Haukur Þór Smárason
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 664

    Ég hafði einmitt hugsað mér að hafa tvo heildregna boga, einn fyrir aftan framsætin og hinn bakvið aftursæti. Síðan að hafa slá á milli boga fyrir ofan hurðir og leiða síðan fram að mælaborði.

    Ég sá fyrir mér að sjóða plötur í gólfið ca 30×30 cm og grindina á þær.

    Svo þarf ég að skipta um sæti, þyrfti ég þá ekki að tengja þau einhvern veginn við búrið með nýjum sætisfestingum?

    En það er líklega best að tala við rallí sérfræðingana.





    08.08.2006 at 22:10 #557470
    Profile photo of Bæring J. Björgvinsson
    Bæring J. Björgvinsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 1919

    þetta er reyndar single cab en ……

    [img:1rux4fo7]http://www.marlincrawler.com/images/2004-9571-300.jpg[/img:1rux4fo7]

    [img:1rux4fo7]http://www.marlincrawler.com/images/2004-9569-300.jpg[/img:1rux4fo7]

    [img:1rux4fo7]http://www.marlincrawler.com/images/cagekit-300.jpg[/img:1rux4fo7]





    09.08.2006 at 09:31 #557472
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 3028

    Í reglugerð um gerð og búnað bifreiða eru settar fram lámarks kröfur um efnisgerð, þykkt og annað.
    Einnig er gerð krafa um hvernig rörin eru beygð. Það má ekki beygja þau eins og púströr eru almennt beygt hér á landi, þ.e.a.s. þannig að rörið aflagist í beyjunni (sennilega ekki gott að fara með þau á pústverkstæði….)
    Einnig er þess krafist að allir staðir grindarinnar sem geta komist í snertingu við farþega séu fóðraðir :)

    Ofangreint er reyndar skrifað eftir minni. Reglugerðina má hinsvegar finna á einhverjum reglugerðavefnum.

    kv
    Rúnar.





    09.08.2006 at 09:51 #557474
    Profile photo of Haukur Þór Smárason
    Haukur Þór Smárason
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 664

    Það var alltaf planið að vera með svona frauðtúbur utan um rörin kringum höfuðið á manni og við hné.

    Svo að mála þetta líka og koma fyrir nylon slingum sem handföngum.

    Ég fékk líka sms í gær og var bent á Stálnaust (544-8333). Ég vill bara þakka þeim sem sendi það.
    Fer í það í dag að hringja í þá og kíki líka á rallíspjallið.





    09.08.2006 at 11:15 #557476
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Það væri gaman að fá að fylgjast með framgangi mála, jafnvel heyra eitthvað um verð og útfærslur þegar þetta fer að skýrast. [url=http://www.f4x4.is/new/forum/?file=ferdir/4143:1qdewtti]Hér[/url:1qdewtti] er vísað á Prófílstál og talað um einhvern 50.000kr… sem er ekki mikið fé.





  • Author
    Replies
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.