FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Vélavandræði

by Freyr Þórsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Vélavandræði

This topic contains 11 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Olgeir Örlygsson Olgeir Örlygsson 20 years, 10 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 19.07.2004 at 11:56 #194555
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant

    Ég var að eignast Ford Explorer ’92 módel m. 4.0 l. V6. Um helgina var ég svo óheppinn að fá vatn inn á vélina og var dreginn í bæinn í gær (sunnudag).

    Ég er nýbyrjaður að rífa, kominn vel af stað með að rífa burtu loftlækinguna (held þó dælunni). Á eftir fer ég svo í að rífa soggrein og ventlalok af og skoða ventla, vippur og undirlyftur. Svo fara heddinn og olíupannan af og sný svo mótor til að sjá hvaða stimplar fara ekki alla leið upp (til að sjá hvaða stangir eru bognar).

    Er eitthvað sérstakt sem ég þarf að varast, einhver sérverkfæri sem ég þarf eða er eitthvað sem ég ætti að skoða sérstaklega vel eða breyta? Þá er ég ekki að tala um að eyða pemingum í að auka vélaraflið (nema það sé mjög ódýrt kannski) heldur eitthvað sem betur mætti fara í vélarrýminu.

    Öll ráð eru vel þeginn!!!!!!!!!!!

    Freyr Þórsson

  • Creator
    Topic
Viewing 11 replies - 1 through 11 (of 11 total)
  • Author
    Replies
  • 19.07.2004 at 14:53 #504912
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Ef þú ert að leitast við að fara sem ódýrast út úr dæminu þá held ég myndi í þínum sporum skipta um legur , hóna cylendera og skipta um stimpilhringi, slípa ventla og setja allar pakkdósir og pakkningar nýjar í vélina, þræla þessu svo saman aftur.
    Þetta er það sem ég myndi persónulega gera ef ég væri að rífa sundur á annað borð, en það er að sjálfsögðu undir þér komið hversu langt þú vilt ganga í þessu.
    ( Að sjálfögðu skiptirðu út skemmdum stöngum o,s,f,r,v :-)
    Alli





    19.07.2004 at 18:29 #504914
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Bíllinn er samt ekki keyrður nema 111.000 km svo að hann ætti að vera í góðu lagi, svo er gott veður, sumar og svona svo að ég hef hugsað mér að drífa í því að rífa allt í sundur, skipta um það sem þarf, rusla því svo öllu saman og fara á fjöll áður en haustið kemur.

    En vitið þið um einhverja veikleika í mótornum sem ætti endilega að skifta um í leiðinni?

    Þarf mikið af sérverkfærum fyrir rifrildið?

    Freyr





    21.07.2004 at 12:19 #504916
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Er virkilega ekkert sem þarf að varast eða lagfæra? Sá reyndar í gærkvöldi að það þarf tvö sérverkfæri til að losa viftuspaðann, en kannski er samt hægt að redda því.

    Vitið þið um fleira sem þarf sérverkfæri í????

    Freyr





    21.07.2004 at 16:23 #504918
    Profile photo of Jónas Hafsteinsson
    Jónas Hafsteinsson
    Participant
    • Umræður: 33
    • Svör: 281

    Þekki ekki þessa vél, er þetta ekki bensin? Ertu viss um að eitthvað hafi skemmst? ‘eg þekki dæmi um bensínvélar hafi sloppið óskemmdar eftir að hafa fengið vatn inn á sig.

    kv. Jónas
    [url=http://www.pbase.com/jonash/:2rt403rq]Heimasíða[/url:2rt403rq]





    22.07.2004 at 01:55 #504920
    Profile photo of Ásgeir Halldórsson
    Ásgeir Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 848

    Já ég hef lent í því að fá vatn inná vélina í Scoutinum…hann var leiðinlegur í gang eftir að hann drap á sér…en það lagaðist fljótt og er hann í fínu standi núna.

    En mér finnst að þú ættir bara að hjóla framvegis…ef þú ert alltaf að eyðileggja bíla þegar þeir eru í lagi 😀 og hvað þá þegar þú ert nýbúinn að kaupa hann :-)

    kv, Geiri Gúrka





    22.07.2004 at 01:58 #504922
    Profile photo of Ásgeir Halldórsson
    Ásgeir Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 848

    Blessaður Freyr var að átta mig á hver þetta var núna 😀

    Þú manst kannski eftir mér, átti heima fyrir neðan þig í nokkur ár :Þ

    Jæja en til hamingju með bílinn eða ehmm það sem er eftir af honum :/

    Gangi þér bara vel

    kv, Ásgeir





    22.07.2004 at 12:18 #504924
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Svo þú átt græna lurkinn:0)

    En já, afrekaði að taka vatn inn á hann í fyrstu ferð, þurrkaði hann, setti saman aftur, startaði og þá KLONK KLONK KLONK KLONK. Hart og ljótt bank í mótor eins og barið sé með sleggju í blokkina.

    Ég hringdi í pabba og hann og mamma komu á 80 Crúser sem við vorum að eignast og drógu mig dauðann í bæinn.

    Ég er kominn langt með að rífa í sundur, á bara eftir að lyfta mótornum úr bílnum og taka neðri hlutann af soggreininni, olíupönnuna og heddin af, þá get ég skoðað og skipt um stöng/stangir og hugsanlega skipti ég í leiðinni út stangarlegum og jafnvel höfuðlegum. Ég skoða þær auðvitað vel og ef allt er í fína lagi læt ég allaveganna höfuðlegurnar eiga sig.

    Það versta sem gæti verið að er ef strokkurinn er búinn að rífa sig eða sveifarásinn skemmdur, ég hef samt litla trú á því.

    Freyr





    25.07.2004 at 19:31 #504926
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Vélin er kominn úr og flest sem hægt er að losa er í pörtum. Bara ventlarnir eru ennþá í heddunum og kambáslegurnar í blokkinni og tvær kúlur (geta það verið einhverskonar lokar fyrir smurkerfið???) Einnig er einn botli með sexkannt-haus fastur aftaná blokkinni, ég tók aðeins á honum en kjagaði bara hausinn.

    Ef þið’ lumið á góðri aðferð til þess að losa ventlanna (til að pressa saman gormana) þá er það vel þegið, tími helst ekki að kaupa eitthvað sérverkfæri. Fást kannski góð verkfæri í þetta t.d. í bílanaust? Ég fékk reyndar það ráð að setja stórann topp á ventlabjargirnar og lemja fast á með hamri, það losar örugglega en þá á samt eftir að setja ventlana í aftur.

    Vitið þið hvað ventlaslípisett kostar u.þ.b?

    Ég er með örfáar myndir og ætla að taka fleiri (m.a. af stimpli í tætlum og tveimur skælbrosandi stimpilstöngum). Ég set þær svo hér á vefinn.

    Freyr





    26.07.2004 at 08:20 #504928
    Profile photo of Olgeir Örlygsson
    Olgeir Örlygsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 343

    Sælir

    Það er nú ágætis fjárfesting að kaupa sérstaka þvingu fyrir ventlagorma, þetta eru svona universal þvinga sem passar fyrir flest hedd. Hlutur sem maður á alla ævi.
    Þær eru sennilega ekkert mjög dýrar, frekar einfaldar.

    Svo gætir þú sennilega breytt stórri venjulegri þvingu í þetta, það er ef þú kemst í suðu. Soðið bara smá klof á fasta endan þá eru kominn með verkfærið.

    kv O.Ö.





    26.07.2004 at 12:14 #504930
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Kannski geri ég þetta bara. Ég hef aðgang að suðuvélum á nokkrum stöðum svo sennilega er best að sjóða klof á annann kjálkann og smá framlengingu á hinn til að þvingann skekkist ekki.

    En á svona þvinga að fást í t.d. bílanaust eða stillingu?

    Freyr





    26.07.2004 at 15:03 #504932
    Profile photo of Olgeir Örlygsson
    Olgeir Örlygsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 343

    Sælir

    Hún fæst örugglega í Bílanaust.

    Svo myndi ekki saka að athuga í þessum ódýru verkfærabúðum gæti verið eitthvað nothæft þar.

    Svo fæst þetta örugglega í Fossberg, Ístækni, Ísól eða Paulsen.

    Kv. O.Ö.





  • Author
    Replies
Viewing 11 replies - 1 through 11 (of 11 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.