Forsíða › Forums › Spjallið › Allt annað › Vegna hreinsunarstarfs
This topic contains 18 replies, has 1 voice, and was last updated by Kristján Kristjánsson 14 years, 6 months ago.
-
CreatorTopic
-
24.04.2010 at 18:15 #212330
Sælir félagar
Allir sem hafa skráð sig á skráningarforminu hafa nú fengið tölvupóst frá undirrituðum. Allir sem vilja taka þátt eru vinsamlegast beðnir að senda staðfestingu á póstfang litlanefndin@f4x4.is, til að allar skráningar fari á sama stað.
Þeir sem ætla með verða að muna að hafa góðan hlífðarfatnað og góða gönguskó eða stígvél.
Einnig er óskað eftir verkfærum:
• Járn steypuskóflur (flatar skóflur)
• Strákústa
• Hrífur
• Garðverkfæri sem að notum kunna að koma
• Snjósköfur
• Fötur
• HjólbörurÉg mun leggja af stað frá Select kl. 8:00 í fyrramálið. Ég reikna með að hægt verði að redda fari fyrir þá sem vilja koma en hafa ekki bíl. Bara mæta í fyrramálið og gefa sig fram.
Einnig má hringja í mig 844-4247 ég reyni að sjá um skráningar eftir bestu getu
Með bestu kveðju,
Óli, Litlunefnd -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
24.04.2010 at 18:58 #691698
Eru komnir margir? Ég ætla að mæta. En ég veit ekki hversu marga ég tek með, fer svolítið eftir já-unum sem ég fæ.
kkv, Samúel Úlfr
Hjálparsveit f4x4.
E-1851
24.04.2010 at 19:55 #691700Sælir
Þó Fyrirvarinn sé stuttur þá eru nokkrir komnir að ég held 8 bílar. Annars hefur Óli í Litlu nefndinni verið að smala saman mannskap. Áætlað er að hittast upp á Selekt á Vesturlandsvegi kl 8 í fyrramálið. Endilega mætið..
Kveðja
Sveinbjörn Halldórsson
25.04.2010 at 12:32 #691702og hvernig fór þetta svo, ég sá enga bíla um átta leitið og ekki heldur um 10 leitið, fór enginn?
25.04.2010 at 21:24 #691704Upp úr kl. 8 í morgun lagði nokkur hópur jeppa af stað frá Select og var hópurinn kominn að Heimalandi fyrir kl. 10. Í heildina voru 8 bílar frá klúbbnum og 21 manns, sem er mjög gott, miðað við stuttan fyrirvara. Að Heimalandi var okkur skipt í 2 hópa, fór helmingurinn á "fjölmiðlasvæðið" á Seljavöllum, en hinn helmingurinn aðstoðaði Ólaf bónda á Þorvaldseyri við hreinsunarstörfin. Þetta var eingöngu handavinna í þetta skiptið, hreinsað úr görðum og gróðurreitum, mokað í hjólbörur og keyrt útfyrir, þannig að öflugri tæki gætu fjarlægt öskuna. Í Heimalandi er duglegt fólk sem ávallt er með heitt á könnunni og býður upp á ljúffengan hádegismat og nýttum við það ásamt öllum hinum sjálfboðaliðunum.
Eftir hádegið var haldið áfram á svipuðum nótum, nema hópnum sem var á Þorvaldseyri var skipt í tvennt og fóru fjórir þaðan að Skarðshlíð rétt vestan Skóga. Unnið var til ca. kl. 16, en þá fengum við kaffidreitil í Heimalandi, gáfum skýrslu um okkar störf og héldum heim á leið.
Á þessu stigi er ekki vitað hver þörfin er á áframhaldandi aðstoð. Svæðisstjórnin mun fara yfir stöðu mála á næstum 2-3 dögum og meta stöðuna þá. Ég mun setja nánari upplýsingar um þörfina um miðja vikuna. Mögulega verður meiri þörf á sérþekkingu, t.d. smiðum eða öðrum laghentum, en nánar um það síðar. Ég hvet fólk til að velta fyrir sér hvort það geti séð af einum degi um næstu helgi (eða tveimur) í svona hjálparstarf. Um miðja vikuna verður boðið upp á nýja skráningu ef þörf verður á aðstoð frá okkur.
Skv. þeim upplýsingum sem ég fékk hjá stjórnstöðinni var mikil ánægja með okkar störf. Heimamenn vissu ekki á hverju var von, en fengu fólk sem gat og vildi vinna og skildi eftir sig gott starf. Í ljósi þess er vilji á að njóta frekari aðstoðar frá okkur ef þörf verður á því.
Til ykkar sem mættuð í dag, takk fyrir frábæran dag !
Kv. Óli
26.04.2010 at 13:28 #691706Sælir
Ég var í hópnum sem var sendur inn að Seljavöllum, þar var mikið hreinsað og ófáar hjólbörurnar sem fylltar voru. Í hópnum voru 10 félagar úr klúbbnum og stóðu þeir sig með eindæmum vel. Byrjað var að vinna um kl. 10:00 og varla tekin pása fyrr en við fórum í mat kl. 12:30, eftir mat var unnið til að ganga 17:00. Það sem þessi hópur kláraði fyrir utan að stilla sér upp fyrir ljósmyndara og annað fjölmiðlafólk var að hreinsa ösku af lóðinni í kringum íbúðarhúsið. Fyrst var þetta "létt" verk en þegar leið á daginn þyngdist mikið í öskunni (auk þess sem við vorum þreyttari) og gekk vinnan ekki eins vel. Við settum okkur það markmið að klára að hreinsa framan við húsið og náðist að klára það. Það var unnið mikið þrekvirki (á báðum stöðum) og er ég viss um að einhverjir eru með miklar harðsperrur og strengi.
Ég vill þakka öllum sem komu og lögðu hönd á plóg við hreinsunarstarfið. Það verður haft samband við okkur sennilega á miðvikudaginn og þá kemur í ljós hvort það vanti sjálfboðaliða frá okkur til hreinsunarstarfa.Kveðja
Sveinbjörn Halldórsson
28.04.2010 at 10:27 #691708Félagar athugið að við erum byrjuð að skrá niður sjálfboðaliða til að vinna við hjálparstarf um helgina. Sjá frétt á forsíðu.
Kv. Óli, Litlunefnd
28.04.2010 at 21:23 #691710Ég vil hvetja menn til að skrá sig til starfa að hreinsun í Eyjafjallasveit um helgina. Ég tók þátt í sjálfboðaliðastarfi F4X4 síðustu helgi og get sagt að það var ómetanleg reynsla sem ég hef ekki viljað missa af.
Kv. Kristján K.
29.04.2010 at 11:16 #691712Minni á að skráning vegna hjálparstarfs er enn í gangi. Ég hvet alla til að skrá sig, það er ógleymanleg reynsla að taka þátt í svona vinnu.
Upplýsingar um skráninguna er að finna [url=http://www.f4x4.is/index.php?option=com_content&view=article&id=1101:aestoe-vegna-eldgossins-i-eyjafjallajoekli&catid=97:stjorn&Itemid=241:3l063jzf]hér[/url:3l063jzf]
Skráningarformið sjálft er [url=http://f4x4.is/index.php?option=com_seminar&Itemid=246:3l063jzf]hér[/url:3l063jzf]
Kv. Óli
29.04.2010 at 15:15 #691714Ég er einn á bíl og get því tekið farþega með mér ef einhverjum vantar far á laugardaginn.
Kv. hsm
29.04.2010 at 17:11 #691716Góðan daginn,
er einn á bíl vantar farþega, einnig get ég potað mér í Bíl.
Allt opið!!!!!!!!
Kveðja Hjörtur og JAKINN.is
29.04.2010 at 18:12 #691718Já það er líklega nóg pláss í bílum, en nú eru skráðir 10 manns á 8 bílum. Okkur vantar 20 manns til viðbótar !
Nú ríður á að leggja sitt að mörkum. Þurfum að ná 30 manns skráðum fyrir hádegið á morgun, föstudag.
Koma svo !!!!
Kv. Óli, Litlunefnd
29.04.2010 at 19:18 #691720Gleymdi að taka fram að ég er búinn að bóka mig á [u:5x4e47jv]LAUGARDEGINUM 1 Mai!!![/u:5x4e47jv]
er einn á bíl vantar farþega, einnig get ég potað mér í Bíl.
Allt opið!!!!!!!!
Kveðja Hjörtur og JAKINN.is s 8951961
30.04.2010 at 08:45 #691722Félagar, nú eru 14 skráðir til leiks.
Ég skora á allar nefndir og stjórn að senda fulltrúa sinn í hreinsunarstarfið. Ég skora líka á deildirnar hér í kring, t.d. Vesturlandsdeild, Suðurnesjadeild og Suðurlandsdeild. Gaman ef nokkrir bílar bætast við á Selfossi á leið austur.
Við þurfum að vita af fjölda manna sem við getum útvegað á hádegi í dag, svo vinsamlegast skráið ykkur sem fyrst. Ef vantar nánari upplýsingar þá má líka alveg hringja í mig, 844 4247
[url=http://f4x4.is/index.php?option=com_seminar&Itemid=246:1db0qkqa]Skráningarsíðan er hér.[/url:1db0qkqa]
kv. Óli, Litlunefnd
30.04.2010 at 10:21 #691724Í fréttinni á forsíðu undir "Nánar" er að finna tímasetningar og gagnlegar upplýsingar. Set það hér líka:
Þeir sem ætla með verða að muna að hafa góðan hlífðarfatnað og góða gönguskó eða stígvél.
Einnig er óskað eftir verkfærum:
• Járn steypuskóflur (flatar skóflur)
• Strákústa
• Hrífur
• Garðverkfæri sem að notum kunna að koma
• Snjósköfur
• Fötur
• HjólbörurÁætlað er að leggja af stað frá Select upp úr kl. 8:00 á laugardagsmorguninn. Þá verðum við komin að Heimalandi um kl. 10:00. Þar fáum við upplýsingar um verkefnin sem þarf að sinna. Unnið er til hádegis og síðan aftur eftir hádegið til ca. kl. 16:00.
Allir sem vettlingi geta valdið eru hvattir til að skrá sig !
30.04.2010 at 10:55 #691726Koma svo, skrá sig… við getum allir mokað.
Ég fór síðustu helgi og varð ekki meint af. Kemst því miður ekki þessa en það hljóta fleiri geta farið núna. Gefandi að taka þátt í þessu og sýna að við getum fleira en spólað í brekkum….
Kv. Bjarni
30.04.2010 at 12:27 #691728Kæru félagar
Ég hef sent vettvangsstjórninni að Heimalandi tölu yfir fjölda sjálfboðaliða frá Ferðaklúbbnum 4×4 vegna hreinsunarstarfa á morgun, laugardag. Um er að ræða 14 einstaklinga !
Þó svo að ég hafi sent frá mér þessa tölu er ekkert sem stoppar okkur að bæta við. Svo ef einhver er að sjá þetta fyrst núna og vill taka þátt, þá má enn skrá sig á [url=http://f4x4.is/index.php?option=com_seminar&Itemid=246:21b91yjd]skráningarforminu[/url:21b91yjd].
Ég bendi á að það er full nauðsyn á að sýna fólkinu undir Eyjafjöllum stuðning, en skv. fréttum er aftur farin að falla aska á þeim slóðum í dag.
Kv. Óli, Litlunefnd – sem ætlar að moka aftur á morgun
30.04.2010 at 16:59 #691730Eins og fram kemur í frétt á forsíðu hefur hreinsunarstarfinu um helgina verið frestað um óákveðinn tíma, vegna mikils öskufalls á svæðinu. Reynt verður aftur um næstu helgi.
Kv. Óli, Litlunefnd
04.05.2010 at 12:55 #691732Ég vildi bara minna á skráningu í hreinsunarstarf í Eyjafjallasveit um næstu helgi.
[url=http://www.f4x4.is/index.php?option=com_seminar&Itemid=246:3xk2t9on]Skráningarformin[/url:3xk2t9on] eru á vefnum.
Kv. Kristján
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.