Forsíða › Forums › Spjallið › Færð á fjöllum › veðursíður
This topic contains 13 replies, has 1 voice, and was last updated by Agnar Benónýsson 16 years, 12 months ago.
-
CreatorTopic
-
30.11.2007 at 12:57 #201291
góðan dag
hvaða veðursíður er bestar til sjá veðurspá viku fram í tímann ?
kv
AB -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
30.11.2007 at 13:07 #605142
Ég mæli með belgingur.is. Þar er hægt að fá mjög ýtarlega veðurspá sem er sett fram sem spákort. Endalaust hægt að pæla þar.
Ég þekki nokkra sjómenn sem eru mjög hrifnir af theyr.net, en á þeim bænum er byrjað að rukka fyrir aðgang. Ég hef ekki hugmynd hvað það kostar.
Ekki má svo gleyma vedur.is, ríkisstofnunin hefur bætt heimasíðuna hjá sér mikið undanfarið.
30.11.2007 at 13:16 #605144já takk fyrir það, var svona að leita eftir einhverju nýju, nota Belging mjög mikið …..
30.11.2007 at 13:30 #60514630.11.2007 at 13:40 #605148Ég nota jöfnum höndum Belging.is og spáritið hjá veðurstofunni: http://vedur.is/vedur/spar/sparit
Svo ef leiðin liggur um þjóðvegi er oft gott að sjá stöðu mála, nánast í rauntíma, hér: http://www.vegagerdin.is/umferd-og-faer … -og-vedur/
Nú er stefnan til dæmis tekin á Snæfellsnes um helgina. Belgingur segir að versta veðrið gangi niður eftir kvöldmat en þar fari nú yfir 30 metra, Vegagerðin segir að þar sé skaplegt veður núna, en svosem engin blíða, og veðurstofuspáritið er með lægstu vindatölurnar, niður í 13 metra. Slumpað meðaltal af þessu segir mér að gera ráð fyrir 17-22 metrum, en meiru í kviðum.
Svo er bara að sjá hvort það breitist þegar líður á daginn.
30.11.2007 at 14:06 #605150Belgingur er bestur, ekki spurning. Bendi mönnum á að skoða bæði yfirlitskortin þarna og landshlutaspárnar, þá fær maður mjög góða mynd.
[url=http://www.yr.no/:2u4z7hcv][b:2u4z7hcv]Þessi hérna[/b:2u4z7hcv][/url:2u4z7hcv] kemur líka lúmskt á óvart. Þarna er hægt að slá inn ótrúlegustu staðarheiti um allt land og glettilegt hvað það stenst. T.d. kemur á óvart hvað spárnar þarna taka vel tillit til hæðar yfir sjó og aðstæðum á hverjums stað fyrir sig. Þarna er t.d. hægt að slá upp Grímsfjalli, Vonarskarði og meira að segja rottuholunni í Illugaveri
Kv – Skúli
30.11.2007 at 16:20 #605152já nú erum við farnir að tala saman ! Íslensku síðurnar vita sem er að það þýðir ekkert að spá svona langt fram í tímann 😉 en Norðmennirnir og Þjóðverjarnir eru djarfari….. vita líklega ekki hvers lags bull þessi spá hlýtur að vera svona langt fram í tímann.
takk strákar
kv
AB
30.11.2007 at 19:09 #605154[url=http://www.snow-forecast.com/maps/dynamic/iceland:3de5oau7][b:3de5oau7]Hér[/b:3de5oau7][/url:3de5oau7]
30.11.2007 at 23:41 #605156Heyrði einhvertíman af könnun um gæði spánna hjá veðurstofunni og niðurstaðan var nokkurnveginn svona. Gæðin eru minni þegar stutt er á milli lægða. Ekki var hægt að mæla gæðin á textaspánum af því að þær eru amk. tvíræðar.
belgingur.is er með skemmtilega auðlæsilega framsetningu að mínu mati (þó alltaf megi gera betur).
http://www.accuweather.com/
hefur virkað ágætlega fyrir höfuðborgarsvæðið að sögn kunningja sem notaði þetta til að leiðbeina blaðburðadreng um hvort hann ætti að bera út blöðin áður en hann færi að sofa eða vakna snemmaElvar
01.12.2007 at 10:57 #605158Sæll Agnar
Varstu búin að skoða Veður og sjólag hjá okkur á Siglingastonun?
Efst uppi getur þú valið á milli td. ölduhæðar, veðurspár og fl. og svo efst til hægri getur þu flett i tima
[url=http://vs.sigling.is/pages/2:2sau0dxq][b:2sau0dxq]Veður og sjólag[/b:2sau0dxq][/url:2sau0dxq]
01.12.2007 at 11:07 #605160[b:2e9kkuxi]Hér[/b:2e9kkuxi] má sjá veðurkerfin sem hafa áhrif á Íslandi í stærra samhengi.
02.12.2007 at 16:40 #605162Var að rekast á þessa hérna: [url=http://www.grib.us/:mzhejydh][b:mzhejydh]www.grib.us[/b:mzhejydh][/url:mzhejydh] . 7 daga spá í góðri upplausn með loftþrýstingi, vind og úrkomu. Veðuspáin kemur óbreytt úr NOAA kerfinu eins og svo margar aðrar og ætti ekki að vera eins nákvæm og staðbundnar skammtímaspár (t.d. veðurstofan). Það er hægt að sníða spásvæðið eftir þörfum. Kortið sjálft er frumstætt og með hnitkerfi sem fletur Ísland alveg út ;-( en það er ekkert mál að nota önnur kerfi, tlil dæmis Expedition LT sem að fæst t.d. á their.net, til að skoða spána.
Jón
02.12.2007 at 16:48 #605164http://www.theyr.tv er víst það sem var http://www.theyr.net (þetta íslenska). http://www.theyr.net er orðið eitthvað allt annað. Þekki ekki söguna þar á bak við.
kv
Rúnar.
03.12.2007 at 09:32 #605166takk fyrir svörin, margar góðar ábendingar.
kv
Agnar
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.