This topic contains 0 replies, has 1 voice, and was last updated by Ástmar Sigurjónsson 14 years, 8 months ago.
-
Topic
-
Ég lenti í smá vandræðum í vikunni með vatnskassa í mótorhjólinu sem ég er að smíða, málið er að ég þurfti að breyta stút á kassanum sem er úr áli.
Ég byrjaði á að tala við kallinn hjá Gretti vatnskössum, ég hef aldrei áður talað við mann hjá þjónustufyrirtæki sem talað jafn svakalega niður til mín og verið jafn erfiður viðmóts og þessi andskoti, það er pottþétt að þennan mann tala ég aldrei við aftur.Pabbi benti mér á að tala við Stjörnublikk, þar talaði ég við mann (Þorsteinn minnir mig) sem er með jafn æðislega þjónustulund og kallinn hjá Gretti var ömurlegur. Hann vísaði mér beint á sérfræðing í álsuðu sem hann sagði mér að væri eini maðurinn á landinu sem væri fær um að bjarga þessu fyrir mig, ég fór með kassann þangað og á von á að fá hann eftir helgi.
Ég mæli hiklaust með Stjörnublikk, alveg súper þjónusta, og alveg ófeimnir við að senda mann annað til að spara manni pening.
You must be logged in to reply to this topic.