Ferðaklúbburinn 4x4Vatnsdæla í Patrol ? – Ferðaklúbburinn 4×4 https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/vatnsdaela-i-patrol/feed/ Thu, 01 Oct 2026 14:09:07 +0000 http://bbpress.org/?v=2.5.10-6063 is-IS https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/vatnsdaela-i-patrol/#post-525512 <![CDATA[Sæll siggi]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/vatnsdaela-i-patrol/#post-525512 Mon, 08 Aug 2005 20:23:21 +0000 Bergur Kristinn Guðnason ég mundi nú byrja á að tékka á vatnskassanum því þetta er mun líkara því að hann sé stíflaður eða kælielementið orðið lélegt. Gangi þér vel
kv Beggi

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/vatnsdaela-i-patrol/#post-525514 <![CDATA[misc]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/vatnsdaela-i-patrol/#post-525514 Mon, 08 Aug 2005 20:49:12 +0000 Hafsteinn Þór Hafsteinsson Þetta er ekkert svakalegt mál, ég gerði þetta fyrir nokkrum vikum. Neyddist til þess þar sem dælan fór að leka. Eitt sem er leiðinlegt við þetta er að 2-3 boltar sem halda dælunni eru á bak við neðri hlífina á tímareiminni og hún er á bak við sveifarástrissuhjólið. Fáðu lánaða góða dragkló einhverstaðar til að ná trissuhjólinu af. Ég tók reyndar kassann úr til að komast betur að þessu öllu.

Hérna er þráðurinn þar sem ég spurði út í þetta:

https://old.f4x4.is/new/forum/?file=bila … ingar/5116

Skv. bókinni á maður að tappa af kerfinu gegnum krana sem er farþegamegin neðst aftan á kasssanum, slepptu því, tekur óratíma að leka þar út, losaðu frekar hosuna að neðan.

Meðan þú ert að þessu myndi ég þreifa vel kæliþynnunum á kassanum, þetta molnaði eins og sandur þegar ég skoðaði minn, keypti nýjan á góðu verði hjá stjörnublikk í kópavogi. Grettir vatnskassar eigi líka að vera góðir. Ef þú kaupir nýjan kassa, mundu þá eftir að herða aftöppunarventilinn áður en þú setur spaðann og trektina í.

Ef þú ferð út í 3ja raða kassa þá þarf að snikka trektina aðeins til. Hún kemst ekki alveg upp að kassanum eins og áður. Ég fékk mér bara aðeins lengri bolta og plastskinnur í byko.

Borgar sig sennilega að splæsa á nýjan vatnslás í leiðinni.

Síðast en ekki síst er það viftuspaðakúplingin. Ef þú heyrir ekki í viftunni á snúningi og bíllinn er heitur þá er kúplingin ekki að virka. Mín var ekkert að virka, tók hana af og liðkaði aðeins upp á öxulinn sem er framan á henni (er inni í gorminum). Hún er núna alltaf virk, sem er betra en ekkert (og ódýrara en 30kallinn sem ný kúpling kostar). Reyndar er þetta það sem þú ættir huga að fyrst af öllu, áður en þú rífur kælikerfið í sundur.

Gangi þér vel

-haffi

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/vatnsdaela-i-patrol/#post-525516 <![CDATA[Hjálparhendur]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/vatnsdaela-i-patrol/#post-525516 Mon, 08 Aug 2005 20:58:18 +0000 Sigurður Magnússon Ég prófa að heimsækja þá í Stjörnublikk eða Gretti – væntanlega þarf maður að mæta með kassann í höndunum ? Er hægt að gera einhverjar prófanir annars ??

Heyri í viftunni? Nú er ég soddan glópur oft, mér finnst ég alltaf heyra eins í vélinni – hvernig hljóði á ég að hlusta eftir ?
Takk annars fyrir góða yfirferð á þessu – myndirnar sem þú vísar í – í þræðinu – eru ekki lengur virkar, það væri gaman ef hægt væri að laga það ?

Siggi

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/vatnsdaela-i-patrol/#post-525518 <![CDATA[linkur]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/vatnsdaela-i-patrol/#post-525518 Mon, 08 Aug 2005 21:05:39 +0000 Hafsteinn Þór Hafsteinsson Linkurinn fyrir myndirnar ætti að virka núna.

Ég veit ekki hvort þeir geti eitthvað prófað kassann. En þeir taka hann upp í nýjan (skilyrði), því þeir endurnýta endana.

-haffi

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/vatnsdaela-i-patrol/#post-525520 <![CDATA[Viftu kúpling]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/vatnsdaela-i-patrol/#post-525520 Mon, 08 Aug 2005 21:18:53 +0000 Snorri Freyr Ásgeirsson Þú getur prufað kúplinguna með því t.d að halda við hana þegar startað er og ef þú átt erfitt með að halda spaðanum kjurrum þá myndi ég kíkja á kúplinguna, svona var mér kennt þetta .

Kv
Snorri Freyr

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/vatnsdaela-i-patrol/#post-525522 <![CDATA[Líklega sloppinn]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/vatnsdaela-i-patrol/#post-525522 Wed, 10 Aug 2005 10:44:06 +0000 Sigurður Magnússon ég sá að það pípaði út þar sem efri slangan tengist við vélina – hárfínt … en snarversnaði eftir að slangan hafði verið hrist. Komin ný klemma – svo nú er bara eftir að dobbel tjékka.

Viftuspaðann gat ég auðveldlega haldið við … þannig að kúplingin er í lagi ?

Annað mál, þegar ég tek tappann af vatnskassanum þá er eins og það sé einskonar smurolíufeiti á honum (dökk feiti eða olía), ég hreinsaði þetta í burtu en það kom aftur – einhverjar hugmyndir um hvað í veröldinni þetta getur verið ?

kv. Siggi

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/vatnsdaela-i-patrol/#post-525524 <![CDATA[Hitavandamál]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/vatnsdaela-i-patrol/#post-525524 Wed, 10 Aug 2005 11:40:04 +0000 Valur Sveinbjörnsson Bíllinn minn hita sig óeðlilega + smuolía í vatnskassanum = vandræði.

Ef það kemur olía eða loft í vatnskassann þíðir það oftast að heddpakning sér farinn eða í versta falli heddið. Ég ætla ekki að mála skrattann á vegginn fyrir þig Siggi en þetta er í flestum tilfellum leiðindar staðreyndir sem maður verður að horfast í augun við.

Vona að ég hafi rangt fyrir mér.

kv. vals.

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/vatnsdaela-i-patrol/#post-525526 <![CDATA[Ég er farinn að hafa þungar …]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/vatnsdaela-i-patrol/#post-525526 Wed, 10 Aug 2005 12:29:39 +0000 Sigurður Magnússon áhyggjur af að þetta geti verið rétt hjá þér Vals.

Nú er það spurning, bíllinn er keyptur í maí, búið að keyra hann 6-7 þús. kílómetra – á maður einhverja kröfu á fyrri eiganda ? (ef maður gefur sér að hið versta sé málið).

Auðvitað var ég fullfljótur að fagna :-(

Siggi

p.s. bíllinn var keyptur vegna þess að það var búið að fara í heddið…

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/vatnsdaela-i-patrol/#post-525528 <![CDATA[Heimsókn í Vélaland]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/vatnsdaela-i-patrol/#post-525528 Wed, 10 Aug 2005 15:03:49 +0000 Sigurður Magnússon var viturlegt – en ekki gleðilegt.

Pakkningin er að öllum líkindum farin að gefa sig þ.a. viturlegast er að setja bílinn inn á gólf til þeirra – og vona að það sé bara hún.

Áætluð viðgerð er 120 – 130 þús ef það er bara pakkningin, 100 þús í viðbót ef heddið er farið (hedd + að flytja dótið á milli).
Þetta er ekki alveg að passa inn í heimilisbókhaldið :(

Nú er að sjá hversu göfugur fyrri eigandi er, mér þykir þetta helst til stutt ending m.v. stærð viðgerðarinnar – og að þetta hafi verið frá…

Takk fyrir hjálpina,
Siggi

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/vatnsdaela-i-patrol/#post-525530 <![CDATA[Heddpakning]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/vatnsdaela-i-patrol/#post-525530 Wed, 10 Aug 2005 15:43:40 +0000 Valur Sveinbjörnsson Sæll Siggi, þar sem ég hafði rétt fyrir mér kemur önnur ráðlegging.
Ef þú ætlar að hafa möguleika að fá aðstoð frá fyrri eiganda, hvort sem er í vinnuframlagi eða fjármunum, skaltu hafa samband við hann áður en þú keyrir bílinn inn á gólf hjá Vélarlandi.
Það er stutt síðan ég seldi bíl og að mér vitanlega var bíllinn í topp standi. Upp kom bilun sem skilgreind er sem falinn galli, þó að ég gat með engu móti vitað af honum. Gert var við bilunina og þá var haft samband við mig og ætlast til að ég greiddi reikninginn eða allavega stærst hluta hans. Það er skemmst frá því að segja að ég varð æfur vegna þess að ég er fullfær um að gera við þessa tilteknu bilun sjálfur og var ekki tilbúinn að borga köllum út í bæ fyrir það.
Svo hafðu samband við fyrrieigandi ef þú ætlar að eiga séns á bótum.
kv.vals.

]]>