FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Vatnajökulsþjóðgarður frestar !

by Ólafur Magnússon

Forsíða › Forums › Spjallið › Allt annað › Vatnajökulsþjóðgarður frestar !

This topic contains 4 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Ólafur Magnússon Ólafur Magnússon 13 years, 11 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 29.06.2011 at 11:52 #219604
    Profile photo of Ólafur Magnússon
    Ólafur Magnússon
    Participant

    Skyldi vera ætlunin að humma þetta fram af sér? Hefði ekki verið eðlilegra að draga lokanirnar til baka þar til sátt hefur náðst ? Nú á að fresta öllu fram á haust .. síðan er kannski auðvelt að fresta fram á vetur síðan fram á vor og …..

    Sjá frétt um málið í Fréttablaðinu í dag

    Óli

  • Creator
    Topic
Viewing 4 replies - 1 through 4 (of 4 total)
  • Author
    Replies
  • 29.06.2011 at 12:22 #732881
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Þetta er algjör endurtekning á aðferðafræði núverandi stjórnvalda í mótun á ferðstefnu hálendisins til þessa. Hlusta, biðja um frest til að vinna að málinu, óska eftir þolinmæði til að ná samráði og senda síðan út yfirlýsingu um að ekkert verði gert og fullt samráð hafi verið haft um að gera ekki neitt.

    Þessi sömu vinnubrögðu verða viðhöfð um öll mál sem tengjast náttúru landsins út þetta kjörtímabil. Friðanir og lokanir svæða um allt land án samráðs við nokkra aðila og á sama tíma færir Ferðafélagið út sitt yfirráðasvæði í góðu samstarfi við stjórnvöld. Innan skamms tíma verður ekki hægt að ferðast um landið nema í skipulögðum hópum á vegum FÍ og greiða fyrir það og gistingu samkvæmt gjaldskrá sem þeir einir ákveða.

    Það er verið að ferðamannavæða landið okkar fyrir erlenda ferðamenn og markvisst verið að loka fyrir frjálsa ferðamennsku hins almenna íslendings. Öllu verra er að okkar klúbbur er ekkert að gera til að spyrna við fótum í þessu. Að hafa fulltrúa í svæðaráðum og áheyrnarfulltrúa í stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs skiptir engu máli, það er búið að festa þar allar ákvarðanir í lög og reglur í samráði við FÍ.

    Guðmundur G. Kristinsson





    29.06.2011 at 17:01 #732883
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Ég verð að viðurkenna að ég er ekki alveg nógu vel að mér í því hvar málin standa nákvæmlega í dag. Eru þessar umfangsmiklu lokanir gengnar í gegn? Ef svo er, hvar get ég nálgast kort sem sýnir nákvæmlega hvar má keyra?

    Freyr





    29.06.2011 at 21:35 #732885
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    Sælir félagar.

    Það var mat okkar félaga sem starfað hafa í nefndum varðandi Vatnajökulsþjóðgarð að samþykkja þessa frestun, einfaldlega til að fá betri tíma til að ræða þessi mikilvægu mál. Reglugerðinni hefði aldrei verið breytt nú í sumar. Elín sem er okkar fulltrúi kemur okkar skoðunum á framfæri að miklum myndarskap, allavega trúi ég því 100%. Það er alltaf í samningamálum að ferlið tekur svolítinn tíma og við verðum einfaldlega að virða það.

    Bestu kveðjur,
    Elli.





    30.06.2011 at 11:35 #732887
    Profile photo of Ólafur Magnússon
    Ólafur Magnússon
    Participant
    • Umræður: 122
    • Svör: 1299

    Takk fyrir upplýsingarnar Elli, það er gott að vita þetta. Þurfum samt að þrýsta á þau ef þau ætla að hangsa með að komast af stað með þetta aftur.

    kv. Óli





  • Author
    Replies
Viewing 4 replies - 1 through 4 (of 4 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.