This topic contains 0 replies, has 1 voice, and was last updated by Guðmundur Guðmundsson 11 years, 3 months ago.
-
Topic
-
Hæ, Vatnadrekar jeppaklúbbur Samgöngustofu, fer í ferð á Laugardag. Katla verður hringuð.
Þemað er jökulhlaup úr Kötlu inn á fjallabak.Jökulhlaup í Markarfljóti
Eldgos undir Mýrdalsjökli hafa valdið a.m.k. 10 jökulhlaupum niður Markarfljót á síðustu 8000 árum, síðast fyrir um 1200 árum. Hlaupin komu undan og meðfram Entujökli. Hlaupin voru misstór en þau stærstu voru hamfarahlaup með hámarksrennsli allt að 250.000 rúmmetrum á sekúndu. Stærstu jökulhlaupin flæddu um allar Landeyjar vestur fyrir Y-Rangá og gætu hafa náð til sjávar á 5-7 klst þar sem styst er.Fyrstir til að benda á að slík hlaup hefðu farið niður Markarfljót voru jarðfræðingarnir Guttormur Sigbjarnarson og Haukur Tómasson. Síðar rannsökuðu Hreinn Haraldsson, Freysteinn Sigurðsson, Snorri P. Snorrason, Elsa Vilmundardóttir, Ingibjörg Kaldal og Kate Smith ummerki eftir jökulhlaupin og loks hópur sérfræðinga á vegum Almannavarna og ríkislögreglustjóra vegna hættumats sem skilaði skýrslu 2005. Upplýsingarnar hér á eftir eru byggðar á rannsókum þessara aðila.
Heimild: Guðrún LarsenEf einhver hefur áhuga á efni tengt þessu þema þá er bara að gefa upp e-mail.
kv. gundur
You must be logged in to reply to this topic.