This topic contains 5 replies, has 1 voice, and was last updated by is 16 years, 4 months ago.
-
Topic
-
Í nótt aðfaranótt þriðjudags var brotist inní jeppann í annað skiptið, í þetta skiptið er skaðinn töluvert meiri en í fyrra skiptið var einungis stolið stórum kösturum framaná bílnum.En það hefur greinilega verið kreppa í hausnum á þeim sem braust inní bílinn í nótt því aðfarirnar eru hrykalegar og jafnvel ónýt hurð eftir.
Þessi bíll er ferðabíll og er því fullur af drasli, þar á meðal fullt af geisladiskum, svefnpokum, vöðlum og öðru slíku, svo ég get ekki alveg verið klár á því hverju var stolið en það helsta eru geisladiskarnir (Stúttfullur innkaupapoki) Neoprine vöðlur og bassabox sem ég keypti í stokkhólm á sínum tíma og ég stórlega efast um að það sé annað slíkt á landinu svo endilega hafið augun opinn fyrir því!
Það er af gerðinni GAS og er amerískt með innbyggðum magnara.
En þetta hefur líklegast verið einhverjir krakkabjánar því geislaspilarinn var skilinn eftir ásamt CB stöð og ýmsu fleira og innbrotaaðferðin lítur út fyrir að vera verkstýrð af Stjána Stuð!!
Ég veit ekki hvaða djö ametjörar þetta hafa verið!!
Það er semsagt búið að bora út sílenderinn og spenna hann útur hurðinni með teilheyrandi skemmdum á gamla greyinu!
Ef einhver getur veitt mér upplýsingar um hverjir voru þarna að verki eða sjá svona bassa til sölu þá er síminn hjá mér 897-7387, e-mail fjarhus@hotmail.com
Líklegt innbrots tæki: Dósaopnari
Vinsamlegast hafið augun opinn
Kveðja Benni „ND2SPD“
You must be logged in to reply to this topic.