This topic contains 2 replies, has 1 voice, and was last updated by Anonymous 20 years, 12 months ago.
-
Topic
-
Kæru félagar þegar ég greiddi mitt félagsgjald þá gerði ég það í gegnum minn heimabanka (mikil mistök) og það geri ég ekki aftur út frá því þá fór seðillinn eitthvað á flakk hjá mér örugglega í tunnuna bara. þetta hefur svo sannarlega bitið mig i rassinn því að í dag fór ég til sigga harðar og ætlaði að skoða tilboðið sem hann er með fyrir félaga í f4x4. allt var í góðum gír þar til starfsmaðurinn biður mig um seðilinn (úff) ég skýrði út fyrir honum hvernig ég hafði greitt og þar af leiðandi ekki með seðilinn en ég væri að sjálfsögðu með mitt félagsnúmer og hann gæti væntanlega bara kannað það og fengið að sjá hjá mér skilríki. Nei það þótti honum ekki nóg því það væru þeir hjá 4X4 sem hefðu sett það sem undantekninga laust ætti að sýna það. En jú ég fékk stöðina í lokin en bara með rás 45 inni, sem segir að ég þarf að fara þangað aftur þegar ég er buinn að fá staðfestinguna á að ég sé greiddur félagsmaður, auðvitað varð ég svaka fúll en gat ekkert gert. það sem ég ÆTLA að heimta núna er að stjórn f4x4 gefi út og sendi öllum þeim félagsmönnum sem staðið hafa skil á sýnum gjöldum til félagssins félagsskirteini mér er nokkuð sama í hvernig formi þau eru. Það eru margir sem hafa greitt sýn félagsgjöld svona eins og starfsmaður hjá RSH sagði (ég hef þurft að segja þetta við rosalega marga).
Svo ég hvet ykkur sem eigið eftir að greiða gjöldin farið frekar í bankann og greiðið þar. En þá komum við að öðru og það er að bankinn er hættur að stimpla á seðla sem eru greiddir heldur láta mann bara hafa einn miðann í viðbót sem þarf að hafa í veskinu eða bílnum,
Svo kæra stjórn. SENDIÐ OKKUR FÉLAGSSKIRTEINI.
kv jones
You must be logged in to reply to this topic.