Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › var að heyra ….. er það satt
This topic contains 18 replies, has 1 voice, and was last updated by Halldór Sveinsson 19 years, 10 months ago.
-
CreatorTopic
-
25.01.2005 at 19:25 #195342
Anonymousað original framdrif í 90 crúser þyldi ekki 38″ ? að það brotnaði „strax“ og farið væri að keyra eftir breytingu.
væri gaman að heyra frá einhverjum sem þekkir …..
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
25.01.2005 at 19:53 #514656
Það virkar allavega alltaf hjá mér hef ekki brotið það ennþá þetta er bara svipað og í hilux og 4 runner þannig að Þau hanga Kveðja Árni R-2666 Með Framdrifið í Lagi…………
25.01.2005 at 19:56 #514658
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
sæll Árni og takk fyrir að svara. Er þessi græni þinn, átt þú hann núna ? býrðu ekki í hafnarfirðinum ? og … breyttiru honum sjálfur eða keyptiru hann svona ?
kveðja
25.01.2005 at 21:18 #514660ég keypti hann svona Jú og hann er Grænn
Kveðja Árni R-2666
26.01.2005 at 00:15 #514662
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Blessaður vertu, trúðu sko því sem þú trúir og heyrir, 90 cruiser brotnar út um allt
brjótíbrjót kveðja
Jónas
26.01.2005 at 13:47 #514664Ég þekki dæmi um barbí krúser sem hefur EKKI brotið framdrif, þannig að ofangreind fullyrðing fær ekki staðist.
-Einar
26.01.2005 at 14:04 #514666
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
ég hef heyrt af 90 bíl með brotið drif og 80 cruiser með brotið drif, patrol, econoline með dana 60 hásingar, súkkur, 4runner og jafnvel hilux, þetta getur allt brotnað……….
26.01.2005 at 21:33 #514668
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
faðir minn er búin að eiga sinn 99 árgerð síðan hann var nýr og aldrei lent í vandræðum en allt brotnar með réttri meðferð, eða þar að segja rangri meðferð.
27.01.2005 at 12:05 #514670
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
takk fyrir að svara. mér fannst þetta eitthvað skrítin draugasaga. það er náttúrulega rétt, allt brotnar ef þannig er tekið á því.
ps. Árni R-2666, væri í lagi að ég fengi að skoða bílinn þinn ?
27.01.2005 at 13:28 #514672Framdrifið er veikur hlekkur í öllum Toyotum sem klafafjöðrun að framan (nema e.t.v LC 120) og Landkrúser 80. Það þýðir ekki að þetta brotni í öllum bílum sem settir eru á 38" dekk, en hættan er fyrir hendi.
-Einar
27.01.2005 at 17:11 #514674Til Hvers vantar þig að skoða bílinn minn hann er bara 38"Breyttur eins og hver annar 90 Crúser og er ekki til sölu þannig að ég sé ekki allveg tilganginn……….
Kveðja Árni R-2666
27.01.2005 at 21:14 #514676
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
sleppum því bara. Mig langaði bara að kíkja aðeins á hann, hvernig breytingarnar eru framkvæmdar og svoleiðis, af því að ég er líka í hafnarfirðinum og sé hann oft og finnst hann flottur.
en sleppum því bara, ég bara spurði. hafðu það bara gott
27.01.2005 at 23:42 #514678Eru Land Cruiser 80 á klöfum að framan.
??????? Hmmmmm
Kv: Kátur.
28.01.2005 at 01:17 #514680
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Svo líka ef þú breytir svona jeppa, byrjar að hækka að framan, klippir líka úr og allt cool, skrúfar 38" undir til að máta, oky, lookar cool, best að fara út að prófa þótt að það sé óbreytt að aftan… svo bakkaru út á plan, rexur í 4×4 drifið og trillir af stað…..
…. jú það er rétt sem pétur vinur minn sagði, framdrifið brotnar um leið og það er búið að setja 38" dekk….
kv. EinarAK, með bros á vör……………
28.01.2005 at 02:27 #514682Þar sem ég hef það sem áhugamál að snúa útúr ýmsu prentuðu máli, sérstaklega í auglýsingabæklingum (sá einu sinni auglýsta brauðrist með beyglu) þá get ég staðfest að Eik gaf ekki í skyn að lc80 væri með klafa jafnvel þó setningin hafi aðeins klúðrast hjá honum, greinilega vegna þess að hann breytti henni í miðjum klíðum.
kv.
Þorsteinn Þ.
28.01.2005 at 07:43 #514684"svo bakkaru út á plan, rexur í 4×4 drifið og trillir af stað….. "
Er ekki Lc90 sídrifinn, miðað við sumar fullyrðingar hérna þá ætti hann að sprengja framdrifið þegar honum er slakað niður af tjakknum eftir dekkjabreytingu. En er þetta ekki annars sama 7.5" framdrifið sem er í hilux og 4runner og ekki hefur það verið til meiri vandræða en önnur úrverk.
28.01.2005 at 16:38 #514686Drifið er sama stærð og hi-lux og 4 runner 7,5" en það er revers í lc 90 það er megin munurinn, auðvitað er þetta veikur hlekkur í þessum bíl, það væri ekki svona mikið talað um þetta ef svo væri ekki. En í hvaða bíl er ekki veikur hlekkur???????????. Er sjálfur með lc 90 og er bara hamingjusamur. Keypti bílinn minn notaðann og fór í honum framdrifið mjög fljótlega, var það lagað og bara í góðu síðann, þessir bílar eru sídrifnir og keyra þeir þar af leyðandi ca 70-80% á framdrifinu. En ef það er passað að læsa millikassa þegar út fyrir veg er farið þá lifir þetta eins og annað.
Með Landcruser kveðjum Bjarki R-2405
28.01.2005 at 20:04 #514688
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Þess má geta að það sem ég skrifaði hér ofarlega í þessum þráð var hæðni, ef enginn hefur tekið eftir því, er búinn að eiga nokkra svona 90 cruisera, nánast allar árgerðir og svo 120 bílinn líka og hef aldrei, já ég segi aldrei brotið drif, þannig að þetta er tóm vitleysa um að þetta brotni þegar búið er að breyta þessum bílum eitthvað.
Og nákvæmlega eins og hann segir hér fyrir ofan mig, læsa millkassanum þegar út fyrir veg.
Jónas
28.01.2005 at 23:17 #514690Sæll,
þetta drif er veikt sérstaklega í átaki afturábak af því þetta er rewersdrif að mig minnir og því hentar það ekki til slíkra átaka.
sem sagt aldrei draga neinn aftur á bak(reyndar gildir það um öll drif) og aldrei taka mikið á honum aftur á bak ef þú festir hann.Gangi þér vel,
Glanni
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.