Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Vantar upplýsingar um breytingar
This topic contains 16 replies, has 1 voice, and was last updated by Jóhann Karl Briem 14 years, 11 months ago.
-
CreatorTopic
-
11.02.2010 at 01:45 #210658
sælir,
Heyriði ég er að pæla að fara skella 4runnernum minum á 38 tommurnar er á 35 fyrir og það sem að ég er að pæla þarf ég að setja hásingu yndir að framan heyrði einhversstaðar að klafarnir í þessum bílum væru lélegir þetta er 93 árg. Og svo vantar mig læsingar líka þannig að min spurning er er hægt að græja læsingar i klafadraslið og hásinguna að aaftan eða þarf ég bara að kaupa þetta með læsingum. veit ekki mikið um þetta enda er maður bara byrja í þessu sporti 😉
Með von um góð svör
Kv. Jóhann Karl
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
11.02.2010 at 11:25 #682588
Þú "verður" ekkert að setja hásingu, ef þú ert ekki böðull þá geta klafarnir enst alveg helling, en það er líka hægt að eyðileggja þá á einni helgi ef maður hefur enga tilfinningu fyrir hvað maður er að gera bílnum.
Ég er með Hilux X-tra cab ’90 sem var búið að setja á 38" þegar ég fékk hann, hann var bara boddýhækkaður um 8 cm, ekkert átt við fjöðrun og svo skorið úr brettum og innra bretti, ásamt því að færa húsfestingar við frambrettin aftar og upp.
Ég er búinn að setja hásingu undir núna, en klafarnir voru heilir þegar ég brenndi þá undan, ég vildi bara fá betri fjöðrun, klafa fjöðrunin er frekar slag stutt finnst mér, en það má alveg lifa við hana, þetta er bara spurning um hvað þú ert tilbúinn að leggja mikla vinnu og peninga í þetta, það er alveg hægt að setja bílinn á 38" án þess að fara útí hásingu.kv
Addi
11.02.2010 at 12:22 #682590Já okei þakka gott svar þá hefur maður hann bara á klöfum þangað til það kemur aftur 2007 ;P
11.02.2010 at 12:39 #682592Og já ég gleymdi að setja það þarna uppi en hverngi hækkar maður að framan veit að maður setur bara eitthvað undir hásinguna að aftan right? en hef verið að pæla hvernig maður gerir það að framan þarf maður þá lengri oxla svo að þeir nái ut í dekk eða?
11.02.2010 at 20:12 #682594
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Sæll Jóhann þú setur væntanlega undir afturgormana ef það er ekki búið að því nú boddíhækkun er líka fínn kostur ef það er ekki búið að því og svo skrúfar þú aðeins upp klafana ef það er ekki búið að gera það en það er líka hægt að fá eða smíða síkkunarsett á klafana til að halda einhverri fjöðrun en þú lengir enga öxla kallinn:)
kveðja Helgi
11.02.2010 at 21:38 #682596Ef þú kemst hjá því að hækka bílinn á fjöðruninni þá skaltu sleppa því, EN það er hægt að herða á fjöðrunaröxlunum fyrir klafana, ef þú kíkir undir bílinn sérðu að það liggur öxull frá efri klafanum aftur eftir grindinni í festingu innan á grindinni. Þar sérðu bolta með haus sem vísar niður, það er hægt að herða á honum til að auka átakið á fjöðrunaröxulinn, þannig geturu hækkað bílinn að framan, en mínusinn við þetta er að bíllinn verður hastur að framan og það verður meira brot á liðunum á framöxlunum þannig að þeir bæði slitna hraðar og brotna frekar.
Það var nóg á Hiluxnum mínum að boddý hækka hann svo ég geri ráð fyrir að það verði líka nóg fyrir 4runner, v6 hilux og v6 runner eru nánast sami bíllinn aftur að póstinum á milli fram og afturhurða.
En þú verður að redda þér felgum sem eru innvíðar (mig minnir að þær séu með 9-10cm backspace) annars þarftu að hækka meira til framhjólin rekist ekki í í fullri beygju.
12.02.2010 at 10:58 #682598Persónulega myndi ég setja hásingu strax þá sleppurðu við boddýlift og sparar á endanum pening en vissulega getur það kostað aðeins meira í byrjun. Ég hef séð og reynt það sjálfur allt of oft að menn byrja of smátt því yfirleitt enda menn með hásingu og 38" dekk eða stærra þá ertu búinn að vinna sömu hlutina oft:) það borgar sig að safna efni og uppl og gera í einum rykk þegar allt er komið þá ertu varla meira en tvær helgar að þessu, færðu afturhásinguna aftur í leiðinni og kauptu afturkant með færslu í þú verður bara ánægður með útkomuna. það eru fullt af myndum hér á síðunni af svona aðgerð og margir sem leggja málinu lið með skoðunum svo er bara þitt að velja og hafna en mundu að taka mark á þeim sem eru búnir með þessa aðgerð og þekkja muninn ekki hinum sem eru alltaf til í að gefa skoðun á einhverju sem þeir ekki þekkja einu sinni.
kv Gísli Þór sem er búinn að prufa;)
12.02.2010 at 11:46 #682600Já okei takk kærlega fyrir þessi svör já þá kannski safnar maður bara og setur hann á hásingu strax og var búinn að pæla í þessu með að færa hana og var svona spekulera að gera það. En hvernig hásingum mæla menn með?
12.02.2010 at 12:00 #682602Borgar sig ekki að finna upp hjólið í þessu heldur notaðu undan 70 cruser það er þekkt leið og virkar vel:)
kv GÞÞ
12.02.2010 at 12:30 #682604Hehe skil þig. þá er bara um að gera fara leita og safna að sér 😉
12.02.2010 at 14:24 #682606Ég fór einmitt 70 cruiser leiðina í framhásingunni, mér var bent á, sem ég svo nýtti mér að ef þú tekur afturgorma úr 90 cruiser og gormaskálar úr u.þ.b. ’94 lúkkinu af patrol að framan, þá smellpassar þetta allt, bara sjóða saman, reyndar þarf að skera nokkra sentimetra ef neðri endunum á 90 cruiser gormunum til að þeir passi í 70 cruiser gormaskálarnar og að færa skálina hægra megin á 70 cruiser hásingunni innar um 2 cm til að sá gormur verði beinn því miðjan í gormunum er ekki sú sama að ofan og neðan.
Með þessu náði ég að hækka bílinn sáralítið, enda var ekki þörf á því hjá mér. Ef þú styttir svo dempara festingarnar ofan á patrol gormaskálunum þá smellpassa framdempararnir úr 70 cruisernum við þetta.kv
Addi
12.02.2010 at 14:28 #682608Þetta eru frábær svör takk fyrir þetta
12.02.2010 at 17:22 #682610Engin spurning að skella sér á hásingu að framan.
[img:1fz5p3fo]http://photos-e.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-snc1/hs130.snc1/5573_1142023123939_1628287440_358575_4942205_n.jpg[/img:1fz5p3fo]
Munurinn sést vel á þessari mynd :þ Eins og fram hefur komið er auðveldast að fá LC70 hásingu með öllu, en það er alltaf að minnka framboðið af þeim. Hilux diesel hásingar ganga líka en það er meiri vinna og aðeins meiri kostnaður, þá aðallega í arminum ofan á hægra liðhúsið fyrir togstöngina sem þarf að vera vottaður. Man ekki hvað hann kostar en hann fæst hjá Árna Brynjólfs í Hafnafirði.
Við erum með hilux diesel hásingu , patrol stífur en síðan gátum við fengið stýrisbúnað úr LC70.
12.02.2010 at 19:10 #682612Það eina sem þarf að fá úr 70 cruiser ef það er farið hilux leiðina er armurinn á maskínuna, hugsanlega togstöngin, mig minnir að maskínan úr 70 cruiser sé með arminn fram á við en hún vísar aftur á 4runner, það er gott að fella maskínuna niður samt, þannig að öxullinn neðan úr sé lóðréttur, þá verður ekki eins mikill halli á togstönginni. Það er hægt að færa festinguna ofan á grindinni neðan á grind og bora nýtt gat á grindina og setja í það rör, þá verður það gat fyrir efra gatið og neðra gatið fer í festinguna sem þú færðir.
Ég þurfti ekki einu sinni að stilla stýrið eftir þetta hjá mér, ég setti 70 cruiser dótið undir og fyrir algera tilviljun þá var stýrið réttEf þú sendir mér einkapóst með E-mail hjá þér þá get ég sent þér myndirnar af breytingunum hjá mér, þá geturu kannski áttað þig betur á þessu
12.02.2010 at 19:21 #682614Þetta er flott strákar þarna er vefurinn að virka rétt:)
kv Gísli
12.02.2010 at 22:17 #682616Ef armur af stýrismaskínu úr 70 crúser finnst ekki þá er Árni Brynjólfs líka að breyta orginal IFS arminum.
taka stýrisendan úr og setja kónískt gat…
12.02.2010 at 23:01 #682618Takk fyrir flott svör
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.