Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Vantar uppl. frá Hiluxfræðingum!
This topic contains 15 replies, has 1 voice, and was last updated by Atli Eggertsson 15 years, 8 months ago.
-
CreatorTopic
-
03.02.2010 at 21:05 #210467
Er nokkur svo fróður um Hilux, að vita hvort er hægt að nota no-spin læsingu úr framdrifi á Hilux diesel model 1981 í Hilux diesel model 1996? Það eru há hlutföll í gömlu hásingunni en 5:29 í þeim nýrri! Kv,Kári.
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
03.02.2010 at 21:38 #681412
Er ´96 ekki klafabíll?
03.02.2010 at 22:01 #681414
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Ef þú ert að spyrja um "Fram > Fram", þá er svarið nei, nema komin sé hásing að framan, ef svo er, þá eru yfirgnæfandi líkur á að þetta passi.
Ef þú ert að spyrja um ’81 drifið > Afturhásingu ’96, þá er líklegt að þetta passi. Þori samt ekki að hengja mig uppá það.
03.02.2010 at 22:23 #681416Þetta er fram í fram, hvoru tveggja heilar hásingar úr diesel bílum, ég ætlaði bara að flytja no-spin læsinguna yfir, en ég var að velta fyrir mér hvort drifin séu eins og læsingin gengi á milli þessara árgerða? Kv,kári.
03.02.2010 at 22:29 #681418
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Næstum 100% öruggt að þetta passar

kkv
Grímur
03.02.2010 at 23:11 #681420passar..
ekkert næstm því

03.02.2010 at 23:55 #681422það þarf náttúrulega að rífa allt í tætlur og stilla drifið inn aftur til að fá þetta yfir ef þú ætlar að taka bara lásinn á milli. þá er líka athugandi að skipta um legur og pakkdósir svona fyrst þú ert að opna þetta á annað borð…. bara svona point í umræðuna

04.02.2010 at 00:12 #6814241981 bíllinn er með gamla drifinu, og því eru öðruvísi legur í því enn í þeim sem komu ca. 1986-.
Því þarft þú fóðringar svo þetta gangi saman.
Svona fóðringar voru í gangi á tímabili og í vesta falli þarft þú að láta smiða þetta.Ég man ekki stærðirnar á þessu í mm, enn það munar nokkrum mm. á legusætinu á gömlu-keisingunni og svo aftur þeirri nýju, nema nátturlega að þú sért með "gamla" drifið í báðum bílum.
Vona að þetta skiljist.
kv. Atli E.
04.02.2010 at 09:38 #681426Það er ekki einhugur í nefndinni um þetta. En skil ég Atla rétt, að það séu minni legur inn í keisingunni í gamla drifinu eða drifum fyrir 1986. Er ráðlegt að plata það með fóðringum? Get ég ekki bara fært hluföllin yfir og notað 1981 drifið með no-spin í orginal 1996 hásinguna? Kv, Kári.
04.02.2010 at 09:42 #681428Það eru ekki eins kambur og pinnjón á milli þessara köggla, þó gír-hlutfallið sé það sama.
Kamburinn er mun þynnri í gamla sýsteminu, enn eins að öðruleiti.
það er lítið mál að mæla þetta ef þú ert með þetta opið.
04.02.2010 at 10:34 #681430Þú ættir að geta skrúfað gamla köggulinn í nýju hásinguna (been there, done that). Ekki viss með að það gangi að færa bara læsinguna á milli. Eins og Atli segir þá getur verið að hlutfallið sé öðruvísi, og svo eru verulegar líkur á að hliðarlegurnar í 96 hásingunni séu stærri (svokallaðar v6 legur). Þetta þyrfti barasta að skoðast og mælast.
04.02.2010 at 11:25 #681432Þó að kambur og pinnjón séu ekki eins, passar drifhúsið, með drifköglinum í, milli hásinganna og koma öxlarnir á réttan stað? Kv, Kári.
04.02.2010 at 11:32 #681434Rúnar, þegar þú settir gamla köggulinn í nýrri hásinguna, settir þú þá nýrri kamb og pinnjón í gamla köggulinn? Kv, Kári.
04.02.2010 at 11:33 #681436Já, köggullinn passa á milli hásinga og rillur fyrir öxla eru eins.
Þannig að þú getur þannig lagað vippað kögglunum á milli, svo lengi sem það er ekki einhver afbrygðileg gata-deiling á jókanum og annar köggullinn er ekki "Revers".
(hef stundum séð mism. deilingu á götum t.d. krúser vs. hilux, enn þá ætti að vera nóg að víxla jókum)
Litla sýstemið er alveg nóg og sterkt í framdrif á Hilux.
04.02.2010 at 12:33 #681410Ég setti köggul úr 85 bíl í 95 bíl að framan. Köggullinn var bara með öllu, No-spin og 5.71 hlutfalli. Hann var bara skrúfaður beint í og passaði flott. Var mjög hissa þá að gamli köggullinn var allur efnisminni en sá sem ég tók út. Hliðarlegurnar eru einnig stærri í nýrri kögglinum.
Er með 95 köggulinn lausan inni í skúr núna ef þú vilt eitthvað mæla. Er reyndar til sölu ef einhver vill
Opinn með 5.71 hlutfalli.
04.02.2010 at 12:49 #681408Ganga þá kambur og pinnjónn á milli gamla og nýja vandræðalaust? Kv, Kári.
Takk fyrir boðið Rúnar en þetta verður rifið um helgina og fært á milli ef engin vandamál koma upp. Kv, Kári.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
