This topic contains 1 reply, has 1 voice, and was last updated by Benedikt Magnússon 17 years, 3 months ago.
-
Topic
-
Þannig er mál með vexti að ég hef hug á að kaupa jeppa. Valið stendur á milli nýs Landruisers 120 GX eða Patrol dýrari útgáfuna en ég á afar erfitt með að gera upp hug minn einkum vegna þess að ég hef verið svikinn í 6 mánuði af Toyota umboðinu um nýjan bíl sem átti að afhendast í sept.
Það sem ég mun helst gera með bílnum er að vera á hringveginum og fara eitthvað inn á landið, helstu staði til að byrja með.
Ég verð með 1300 kg fellihýsi í eftirdragi nema þar sem slíkt er ekki hægt.
Nú eru spurningar mínar eftirfarandi.
1. Hvað hefur helst ráðið úrslitum hjá ykkur sem hafa verið í svipuðum sporum
2. Hvor bílinn er líklegri til að vera hentugri við að draga fellihýsi.
3. Hvað er það sem bilar helst í þessum bílum?
4. Hvort umboðið er í dag líklegra til að veita betri þjónustu eða er hún í lagi hjá báðum.Mér þætti vænt um leiðbeiningar ef þið treystuð ykkur til og líka þætti mér vænt um ábendingar um aðra kosti sem þið teljið ekki síðri en þessa tvo.
Bestu þakkir
Árni Stefán Árnason
You must be logged in to reply to this topic.