Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Vangaveltur um myndir
This topic contains 21 replies, has 1 voice, and was last updated by Gísli Örn Arnarson 15 years, 10 months ago.
-
CreatorTopic
-
13.01.2009 at 12:11 #203550
Hvað voru menn að brasa með þessum búnaði og hver var árangurinn?
https://old.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=ferdamyndir/6464/55463
https://old.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=ferdamyndir/6464/55464
https://old.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=ferdamyndir/6464/55465
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
13.01.2009 at 13:29 #637226
Þeir eru að mér sýnist að tengja bílana saman. þ.e.a.s sá aftari ýtir fremri bílnum áfram. Virkar víst ágætlega í vondu færi. Mig leikur reyndar forvitni á vita hvort ekki sé atriði að hafa bílana svipað gíraða.
13.01.2009 at 13:36 #637228Eða Gleðigöndull er notaður eins og þú sér til að tengja saman tvo bíla til að auka drifgetu í mjög erfiðu færi. Annar ýtir og hinn togar og þú ert í raun kominn með farartæki með drifi á átta hjólum.
Hef ekki séð þetta virka í eigin persónu en las skemmtilega frásögn í bókinni hans Ofsa (Á fjöllum) um notkun á þessum grip og þar virtist þetta virka vel.Kv. BIO
13.01.2009 at 13:48 #637230[img:1u0c69u7]http://f4x4.is/new/files/photoalbums/6464/55474.jpg[/img:1u0c69u7]
13.01.2009 at 13:49 #637232[img:25jowlw0]http://f4x4.is/new/files/photoalbums/6464/55467.jpg[/img:25jowlw0]
13.01.2009 at 13:51 #637234[img:1esm54ee]http://f4x4.is/new/files/photoalbums/6464/55463.jpg[/img:1esm54ee] [img:1esm54ee]http://f4x4.is/new/files/photoalbums/6464/55464.jpg[/img:1esm54ee] [img:1esm54ee]http://f4x4.is/new/files/photoalbums/6464/55465.jpg[/img:1esm54ee]
Gleðigöndull:)
13.01.2009 at 13:59 #637236Meira [u:ff7b2x19][b:ff7b2x19][url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=oldsite/853/5264:ff7b2x19]hér[/url:ff7b2x19][/b:ff7b2x19][/u:ff7b2x19] og [u:ff7b2x19][b:ff7b2x19][url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=ferdamyndir/4165:ff7b2x19]hér[/url:ff7b2x19][/b:ff7b2x19][/u:ff7b2x19].
-haffi
13.01.2009 at 15:00 #637238Þeir smíðuðu svona búnað og eru að nota þetta á Hilux pólbílonum. Vírkar víst svaka vel miðið við bloggið þeirra.
http://www.antarcticachallenge.com/pages/3639/cat/385#
Afhverju virkar ekki að setja link eða mynd. Virkar stundum en oftast ekki.
Kv óskar
13.01.2009 at 15:33 #637240Ein pæling með þetta,
Þegar færið er orðið það þungt að þeir drífa ekki af eigin færni, þá geta bílar auðveldlega komið sér í sjálfheldu þegar færið þyngist enn meira…
bara smá pæling að menn fari ekki að nota gleðipinnan án skilnings á hvað tekur við næst.
kv
Gunnar
13.01.2009 at 17:20 #637242núna langar mig að spyrja … eiga þessar pælingar nokkuð rætur sínar að rekja í Hagglund snjóbílana?
[img:1q6z3gz9]http://www.pinzgauercanada.com/Hauglund-1.jpg[/img:1q6z3gz9]
13.01.2009 at 20:25 #637244Sælir, ég var í ferð með tveim 80 Cruiserum sem talað var um í bókinni hans Ofsa, það virkaði vel að tengja bílana saman með gleðigöndlinum þegar færið var farið að þyngjast en svo á endanum fórum við varla áfram vegna snjóþunga, ss komum okkur í sjálfheldu.. En mjög góð ferð samt sem áður
56 klst ferð, frá skála í hús, án þess að stoppa!!Marteinn
R-2444
14.01.2009 at 00:01 #637246Ég hef notað þetta nokkrum sinnum með flottum árangri. Snilldar búnaður.
Það er mun auðveldara að nota þetta ef að a.m.k. annar bíllinn er sjálfskiptur og okkur reyndist betra að hafa öflugri bílinn aftar.
Hef þó ekki notað þetta síðan ég fékk mér bíl sem bara drífur….
Benni
14.01.2009 at 00:10 #637248Ég á tvö 50mm kúlutengi fyrir 50×50 prófíl, og er að spá í að smíða svona göndul, haldið þið að álprófíll 50×30 3mm efnisþykkt ca 1,5m langur dugi í þetta.
14.01.2009 at 14:14 #637250Það er einnig séns að sleppa þessum gleðipinna og fá mun meira út úr þessu með 6×6 lausn.
Það bara virkar.
[img:3r93s5kz]http://www.f4x4.is/new/files/photoalbums/5357/41376.jpg[/img:3r93s5kz]
14.01.2009 at 14:35 #637252Sæll
ég held að 50x30x3 ál sé ekki nógu sterkt… ég myndi aldrei nota minna en 50x50x4 járn í þetta, þótt þyngdin sé þá orðin leiðinleg. það eru gríðarleg átök á þessum hlutum….
ég hef notað svona til að ýta bíl uppá kerru (nema bíllinn var fastur að framan, brotnar pinnjónstennur) og bílilnn hjá mér prjónaði bara… og hann er ekkert léttur að framan
notið líka sterkustu tegund af kúlutengjum
14.01.2009 at 15:40 #637254Ég er sá sem ýtti og get staðfest að það var ekki mikil átök, kom mér einmitt á óvart. Og Benni það er ekki nema von að þú drífir, eins fullur af lofti og þú sjálfur ert, Fordinn hlýtur bara að svífa yfir.
14.01.2009 at 16:04 #637256jæja, það getur svosem verið að það sé ekki mikið átak á þessu þegar þetta er notað í snjóakstri, ég hef aldrei prófað þetta þannig.
ég veit bara að ég tók engan sjens þegar ég bjó mér til minn eigin göndul, og gerði hann úr 50x50x5 og sterkum tengjum til að vera viss
14.01.2009 at 16:07 #637258Heyrði nú einhverntíman að herinn í ameríkuhreppi hefði nú oft gert þetta milli stóru 6×6 trukkana. Þá reyndar bættu þeir við drifskafti líka á milli þeirra, en hásingarnar á þeim eru jú með auka flangs ofaná drifkúlunni.
Sel það ekki dýrara en ég heyrði það.
Rúnar.
14.01.2009 at 19:37 #637260Nú man ég ekki hversu mikil átök þessi tiltekni prófíll þolir. En AT menn notuðu Álrör (að mig minnir rör, frekar en fýrkantsrör (prófíla)) fyrir suðurskautið. Nema minnið sé svona svaðalega að svíkja mig. En annars ætti svert álrör að þola þetta vel, og mjög líklega prófíllinn líka.
Annars má líka prófa og beygja, bara vita af því að þetta gæti "bognað" við átök =)
.
kkv, Úlfr
E-1851
14.01.2009 at 20:45 #637262Notuðum rör á milli tveggja Willis jeppa á 35" í gamladaga þegar menn voru fyrst að byrja að hleypa úr, línu sexan var látin vera á undan og V6 buic sá svo um restina fyrir aftan, þetta bara virkaði.
14.01.2009 at 21:43 #637264Það þarf nú að hafa í huga, að eftir því sem fróðir menn segja, þá minnkar brotþol álsins með auknum kulda. Annars er mjög algengt að nota svona stangir milli vörubíla þegar þarf að draga, en sá sem dreginn er er vélarvana. Þá fara nefnilega bremsurnar líka og stýrið verður ansi erfitt viðfangs. Þá er öruggara að hafa þá fasttengda saman.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.