This topic contains 8 replies, has 1 voice, and was last updated by Hafsteinn Þór Hafsteinsson 21 years, 3 months ago.
-
Topic
-
Sælir félagar
Ég er að brasa með vakúm læsinguna í pattanum mínum. Virðist sem að það sé komið gat á membruna í vakúm rofanum á hásingunni (blæs í gegnum hana í báðar áttir). Þeir í okkar „ástkæra“ Datsún umboði vilja bóða mér svona rofa fyrir einhvern 60 kall, en ég er nú ekki alveg á þeim buxunum að taka því. Því er mín spurning hvort einhver hafi prófað að mixa svona membru rofa til þess að stjórna læsingunni og þá úr hverju. Annað, er það ekki rétt að það þarf að taka köggulinn úr til þess að ná rofanum (sveppnum) af hásingunni (ró innaná)?
Datsún kveðjur…
You must be logged in to reply to this topic.