FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Útkall

by Guðmundur Á Guðlaugsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Færð á fjöllum › Útkall

This topic contains 27 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Kristófer Karlsson Kristófer Karlsson 17 years, 5 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 30.12.2007 at 10:41 #201476
    Profile photo of Guðmundur Á Guðlaugsson
    Guðmundur Á Guðlaugsson
    Participant

    Bara til að undirstrika hverja eigi að styrkja með flugeldakaupum.
    Það er EKKI mannskapur frá Einari áttavillta,Gullborgu eða íþróttafélögunum
    á leiðinni í þetta útkall.

    Innlent | mbl.is | 30.12.2007 | 10:14
    11 bíða björgunar

    Björgunarsveitarmenn vinna nú að því að koma 11 manns til bjargar sem er fast á Langjökli. Aftakaveður er á svæðinu og bíða björgunarsveitarmennirnir nú eftir því að vind fari að lægja, en þeir eru staddir við brúna yfir Geitlandsá. Ekkert amar að fólkinu sem bíður björgunar.

    Að sögn Slysavarnarfélagsins Landsbjargar eru björgunarsveitarmenn frá björgunarsveitunum Heiðari og Ok á leiðinni upp jökulinn á tveimur jeppum og snjóbíl.

    Fólkið sem bíður björgunar er staðsett rétt fyrir ofan skálann Jaka. Það er á sjö bílum en hefur nú komið sér fyrir í þremur bílum til að halda sér hita. Björgunarsveitarmenn eru í sambandi við fólkið og vita hvar það er staðsett. Búast má við því að það muni taka lungann úr deginum að koma fólkinu til aðstoðar, en gríðarlega hvasst er á svæðinu og ofankoma mikil.

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 27 total)
1 2 →
  • Author
    Replies
  • 30.12.2007 at 10:59 #608164
    Profile photo of Magnús Hallur Norðdahl
    Magnús Hallur Norðdahl
    Participant
    • Umræður: 713
    • Svör: 2671

    Hvað er menn að hugsa það var vitað að þarna mun verð leiðinda veður hvað skildi svona bjána skapur kosta það væri gott að taka nokkra fluelda pakka og selja þeim á staðnum svona til að stirkja svona útkall ( veðrið á ekki að bana á næstu verður svona yfir áramótinn )

    kv,,,MHN





    30.12.2007 at 11:35 #608166
    Profile photo of Ingi Björnsson
    Ingi Björnsson
    Participant
    • Umræður: 73
    • Svör: 1022

    Við skulum nú allveg vera spakir með stóru orðin, svona á meðan ekki er vitað hvað er að.
    Þetta gætu til dæmis verið 2 stk patrol með change engine ljós í mælaborðinu, 2 stk barbíkrúser með brotin framdrif, 2 stk Ford annar með grillaða skiptingu og hinn með úrbræddan motor svo síðast en ekki síst cherokee með brotna frammhásingu :)

    En það eina sem við getum gert er að fara og versla flugelda við rétta aðilla.





    30.12.2007 at 11:35 #608168
    Profile photo of Magnús Guðmundsson
    Magnús Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 141
    • Svör: 1565

    Er þetta ekki vesurulandsdeildin sem er föst á Langjökli? Þeir ætluðu allavega þangað.
    Agnes og fleiri sem eru með Tetra hafið þið heyrt eitthvað?

    Bkv. Magnús G.





    30.12.2007 at 11:52 #608170
    Profile photo of Benedikt Jón Guðlaugsson
    Benedikt Jón Guðlaugsson
    Participant
    • Umræður: 0
    • Svör: 60

    sælir.
    Við erum í sambandi við þá sem eru á jökli og erum að undirbúa björgun á bílum þegar veður lægir,erum að ath með 44" dekk á 6 gata felgu ef eitthver skyldi eiga svoleiðis á lausu.
    Hafa samband í síma 8615178.
    kv Benni.





    30.12.2007 at 12:34 #608172
    Profile photo of Atli Eggertsson
    Atli Eggertsson
    Participant
    • Umræður: 220
    • Svör: 1627

    Auðvitað kvetjum við alla að kaupa til að kaupa flugelda af björgunarsveitunum,
    svo þær geti haldið áfram að leika sér á fjöllum og bjarga mönnum úr glæfralegum ferðum, við og við,
    á tækjum og tólum sem eru fjármagnaðar af öðrum enn félagsmönnum sjálfum.
    .
    Það má ekki gleymast í umræðunni um glæfraleg ferðalög og frækna björgunarleiðangra, að það fólk sem er að standa í þessu björgunar vesenni, hefur gríðarlegan áhuga og löngun í svaðilfarir sem þessar, annars væri Þetta fólk ekki starfandi innan björgunarsveita.
    .
    Það hlýtur til dæmis að vera alveg gríðarlega gaman og spennandi áskorun að fara upp á Langjökul núna í dýrvitlausu veðri í hetjuferð,
    á best búnu bílum og tækjum landsins, með fólki sem er búið að vera að leika sér saman í gegnum tíðina og því orðið vel samstilt.
    .
    Með von um góða flugeldasölu og gleðileg áramót,
    Atli E.





    30.12.2007 at 12:43 #608174
    Profile photo of Rúnar Ingi Árdal
    Rúnar Ingi Árdal
    Participant
    • Umræður: 39
    • Svör: 421

    Hvernig er það, eru þeir sem tala mest hérna í björgunarsveit, þetta er sjálfboðaliðastarf og ég er viss um að þeir sem hafa mest útá þetta "leikfélag" að setja langar ekkert til að vera uppá langjöklp núna, hvort sem það er á eigin kostnað eða annara. Samkvæmt textavarpinu mælist vindhraðinn uppí 100 metra á sek í snjóbílnum og samkvæmt þessu http://www.visir.is/article/20071230/FRETTIR01/71230005 er aðeins 1 bíll eftir í gangi hjá ferðalöngunum.
    Kv. Dúddi sem er í björgunarsveit og 4×4





    30.12.2007 at 13:05 #608176
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Á forsíðu F4x4 er að finna þessa [url=http://www.f4x4.is/new/news/default.aspx?file=426:13jakm37][b:13jakm37]auglýsingu[/b:13jakm37][/url:13jakm37] :

    22. desember 2007 | Vesturlandsdeild

    Ferð milli hátíða
    Ferðin okkar á milli hátíða að þessu sinni verður farin Laugardagin 29 Desember.

    Sælir Félagar.
    Ferðin okkar á milli hátíða að þessu sinni verður farin Laugardagin 29 Desember.
    Stefnan er tekin til fjalla þar sem vænta má að við getum ekið á snjó. ( Líklegastur er Langjökull)
    Lagt verður af stað frá Olís kl. 9.30.

    kv. Stjórnin"

    Hér er klúbburinn að auglýsa ferð sem hefði átt að fresta, en hér er
    [url=http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2007/12/30/unnid_vid_erfidar_adstaedur/:13jakm37][b:13jakm37]frétt[/b:13jakm37][/url:13jakm37] í MBL um umrædda ferð:

    "Innlent | mbl.is | 30.12.2007 | 11:24
    Unnið við erfiðar aðstæður

    Tveir jeppar frá björgunarsveitinni Ok, með fimm manns innanborðs, og snjóbíll frá björgunarsveitinni Heiðari, með tveimur innanborðs, berjast nú í gegnum óveðrið á jöklinum. Tveir snjóbílar frá Reykjavík hafa jafnframt lagt af til aðstoðar þeim sem þegar eru á jöklinum.

    Þeir eru nýfarnir af stað aftur, en beðið var við Geitlandsá eftir að veðrið myndi ganga aðeins niður. Snjóbíllinn komst ekki yfir brúna og fór því á ís yfir ána. Að sögn Davíðs Ólafssonar, hjá björgunarsveitinni Ok, tók kröftuglega í jeppana er þeir fengu öfluga vindhviðu á sig þegar þeir voru að aka yfir yfir brúna. "Þetta er rosalegt veður," sagði hann í samtali við mbl.is.

    Auk hvassviðris er ofankoma mikil og skyggni því mjög slæmt. Ekki er útlit fyrir að veðrið muni lagast í bráð.

    Björgunarsveitarmennirnir eru í talstöðvarsambandi við fólkið á jöklinum. Það var á ferðalagi á sjö jeppum. Það hefur nú komið sér fyrir í einni bifreið til þess að halda sér hita, en það hefur setið fast í allan nótt.
    Búist er við því að björgunaraðgerðirnar muni standa yfir í allan dag."

    Aðvaranir um verulega slæmt veður hafa verið í öllum fjölmiðlum síðan í gærmorgun, en félagar okkar virðast ekki hafa tekið eftir því.

    Er ekki rétt að skipuleggjendur ferða á vegum klúbbsins taki tillit til veðurspár, en fyrrvarandi nefndarmenn okkar í Litlunefnd gerðu [url=http://www.f4x4.is/new/forum/default.aspx?file=ferdir/10786:13jakm37][b:13jakm37]svipað[/b:13jakm37][/url:13jakm37] fyrir nokkru síðan og hlutu ekki sóma af.

    kveðja Dagur





    30.12.2007 at 13:10 #608178
    Profile photo of Ellert V. Harðarson
    Ellert V. Harðarson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 32

    Það er staðreynd að stór hluti jeppamanna eru núverandi eða fyrverandi björgunarsveitamenn og öfugt.

    Hvað mig varðar, þá vil ég vita af vönum mönnum og konum sem eru tilbúinn að taka sé frí frá því sem þau eru að gera, hvort sem er vinna, jól eða aðrar athafnir, og hafa aðgagn að bestu mögulegu tækjum og tólum til að koma mér og mínum til aðstoðar ef á þarf að halda. 7-9-13

    Til að verða vanir, þarf æfingar sem kosta fjármagn og til að kaupa bestu mögulegu tæki og tól þarf fjármagn.

    Við jeppamenn sem og aðrir ferðamenn ættum náttúrulega ekki að þurfa að vera að taka þessa umræðu.

    Verslum við björgunarsveitirnar.





    30.12.2007 at 13:16 #608180
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Ég hef hvergi fengið það staðfest að þetta sé vesturlandsdeildin þannig að eigum við ekki að spara stóru orðin þangað til að annað kemur í ljós.
    Og annað ég hef nú lært það að taka fréttum frá fréttamiðlum með vara því að reynslan hefur sýnt að áreiðanlegar fréttir eru ekki alltaf áreiðanlegar…
    –
    Ég veit að það er gaman að vera í björgunarsveit og fara í útkall en öllu gamni fylgir alvara…
    kv. stef.





    30.12.2007 at 13:20 #608182
    Profile photo of Guðmundur Á Guðlaugsson
    Guðmundur Á Guðlaugsson
    Participant
    • Umræður: 14
    • Svör: 141

    það er ekki bara jeppafólk og Rjúpnaskyttur sem þurfa á aðstoð að halda.
    .
    Útköllum fer fjölgandi
    Útköllum vegna veðursins hefur verið að fjölga síðustu klukkustund.
    Nú hafa björgunarsveitir og slökkvilið sinnt rúmlega 80 útköllum frá kl. fjögur í morgun þar af 40 frá 11.

    Flest útköll eru á höfuðborgarsvæðinu en einnig eru verkefni á Suðurnesjum, Akranesi, Borgarnesi, Blönduós og Selfossi

    Veðrið er enn slæmt og fer núna versnandi austanvert á landinu.

    Ekkert ferðaveður er sem stendur.

    Frárennslislagnir hafa ekki undan og er því gríðarlegur vatnselgur á götum. Þetta skapar hættu og dæmi er um bifreiðar hafi stöðvast í stórum pollum sem hafa myndast.

    Búið er að loka Fífuhvammsvegi við Smáralind vegna vatnselgs.

    Ökumönnum er bent á að fara með mikilli gát þar sem skyggni er slæmt og pollar sjást illa fyrr en ekið er ofan í þá.

    Björgunarsveitir er enn á leið að ferðamönnum á Langjökli. Ferðinni miðar hægt vegna ofsaveðurs sem er þar.





    30.12.2007 at 13:41 #608184
    Profile photo of Uni Hrafn Karlsson
    Uni Hrafn Karlsson
    Member
    • Umræður: 44
    • Svör: 306

    Fórum á langjökul í gær og var það mjög erfitt færi upp.
    Gaman samt að sjá þennan gamla jálk drífa þarna upp :). Affelgaði einn og þá fraus hjá mér olían meðan beðið var eftir honum. Síðan þegar við komum niður í húsafell var veðrið skollið á.

    Finnst að fólk ætti að fylgjast aðeins betur með veðrinu áður en það leggur í svona ferðir. Lögðum mjög snemma af stað til að geta verið komin niður áður en veðrið kæmi.





    30.12.2007 at 13:44 #608186
    Profile photo of Guðmundur Á Guðlaugsson
    Guðmundur Á Guðlaugsson
    Participant
    • Umræður: 14
    • Svör: 141

    Hann Sóti er svo fjandi drifgóður :-)





    30.12.2007 at 14:13 #608188
    Profile photo of Guðmundur Magni Helgason
    Guðmundur Magni Helgason
    Participant
    • Umræður: 82
    • Svör: 767

    Ég hitti hóp jeppamanna í Kaldadalnum í gær sem var að fara yfir jökul og innað Hveravöllum, getur verið að þetta sé hópurinn? ef ekki veit einhver hvar þeir eru?





    30.12.2007 at 14:23 #608190
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    RÚV segir á heimasíðu sinni að ferðafólkið á Langaskafli sé komið yfir í bíla björgunarsveitanna.
    Við óskum þeim öllum góðs á heimleiðinni.





    30.12.2007 at 14:43 #608192
    Profile photo of Höskuldur Ólafsson
    Höskuldur Ólafsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 78

    við fórum í gær á þremur bílum upp að Jaka og eyddum nokkrum tímum í að spóla í brekkunni fyrir ofan skálann. við töldum a.m.k. 50 bíla og mjög líklega voru mun fleiri. Færið var mjög þungt og gerði það að verkum að flestir fengu næga útrás í fyrstu brekkunni og fáir fóru inn á jökul sem var ef til vill eins gott, annars væru þá kanski fleiri björgunarleiðangrar í gangi núna. Eins og spáð hafði verið brast á leiðinda veður með skafrenningi seinnipartinn og voru þá flestir á förum og komnir af jöklinum. Vona að vel gangi að bjarga strandaglópunum.

    Gleðileg áramót!





    30.12.2007 at 21:18 #608194
    Profile photo of Páll K Kristófersson
    Páll K Kristófersson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 276

    Sælir félagar við erum búnir að vera nokkrir uppí Húsafelli síðan á annann í jólum og erum búnir að fara uppeftir á jökul alla dagana og færið var skást í gær en samt var hundleiðinlegt að hjakka þó maður hafi ekki farið nema uppá hábungu og tók það hellings tíma. Þannig að ekki hefði ég talið það minna en sólarhrings ferðalag að fara yfir á Hveravelli. Við ætluðum að fara Kaldadalinn heim seinnipartinn í gær en þar var örtöð af bílum og förin orðin leiðinleg þannig að við snérum fljótlega við, þá var aðeins farið að blása og skarðið í veginum fyrir neðan stóru brekkuna orðið að vaði. Þannig að ekki hefði ég viljað fara þarna uppeftir í dag, miðað við veður lýsinguna og það sem við heyrðum í talstöðinni frá björguninni í dag.

    Eru menn annars eitthvað búnir að heyra hverjir þetta voru sem lentu í þessum hremmingum?

    Palli Kristó





    30.12.2007 at 23:32 #608196
    Profile photo of Gísli Örn Arnarson
    Gísli Örn Arnarson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 80

    Þetta ku vera partur af Seinagenginu Létti og svo einhverjir 3 bílar sem ég þekki ekki deili á. Þeir eru greyin eitthvað SEINIR að skilja veðurspá eða eru kannski bara ævintýraleitarmenn fram í fingur góma. Kv. Halla Kr.
    p.s. Þeir voru varla stignir út úr björgunarsveitabílunum þegar þeir fóru aftur upp á jökul til að sækja bílana. Frekar kaldhæðnislegt!! (Gott að eiga viðbragðsfljóta vini og ættingja að). En þar sem þarna eru snillingar á ferð ætlar þeim að takast ætlunarverk sitt og þurfa kannski aðeins að skilja 1 bíl eftir af 7.





    31.12.2007 at 00:38 #608198
    Profile photo of Helena Sigurbergsdóttir
    Helena Sigurbergsdóttir
    Member
    • Umræður: 115
    • Svör: 2416

    veðrið ku vera örlítið farið að skána á vettvangi
    4 bílar komnir upp það rétt var hægt að finna á þeim toppana.
    Sem sagt allt að gerast.
    Kveðja Lella





    31.12.2007 at 05:39 #608200
    Profile photo of Benedikt Jón Guðlaugsson
    Benedikt Jón Guðlaugsson
    Participant
    • Umræður: 0
    • Svör: 60

    Björgun gékk vel, öllum bílum náð upp og allir nema einn komnir til byggða.
    Sá sem varð eftir er með bogna þverstífu að framan.
    kv
    Benni





    31.12.2007 at 08:17 #608202
    Profile photo of Magnús Dan Bárðarson
    Magnús Dan Bárðarson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 62

    Það er alveg magnað hvað sumir eru barnalegir
    Sjá hér :
    "Leikfélögin
    30. desember 2007 – 12:34 | Atli Eggertsson, 391 póstar

    Auðvitað kvetjum við alla að kaupa til að kaupa flugelda af björgunarsveitunum,

    svo þær geti haldið áfram að leika sér á fjöllum og bjarga mönnum úr glæfralegum ferðum, við og við,

    á tækjum og tólum sem eru fjármagnaðar af öðrum enn félagsmönnum sjálfum.

    .

    Það má ekki gleymast í umræðunni um glæfraleg ferðalög og frækna björgunarleiðangra, að það fólk sem er að standa í þessu björgunar vesenni, hefur gríðarlegan áhuga og löngun í svaðilfarir sem þessar, annars væri Þetta fólk ekki starfandi innan björgunarsveita.

    .

    Það hlýtur til dæmis að vera alveg gríðarlega gaman og spennandi áskorun að fara upp á Langjökul núna í dýrvitlausu veðri í hetjuferð,

    á best búnu bílum og tækjum landsins, með fólki sem er búið að vera að leika sér saman í gegnum tíðina og því orðið vel samstilt.

    .

    Með von um góða flugeldasölu og gleðileg áramót,

    Atli E."

    Magnað
    Magnús Dan





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 27 total)
1 2 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.