This topic contains 2 replies, has 1 voice, and was last updated by Hjálmtýr Guðmundsson 18 years, 9 months ago.
-
Topic
-
Í ljósi þeirra hræðilegu atburða sem gerðust á Hofsjökli um helgina langar mig að heyra í mönnum um útfallið úr Grímsvötnum. Eins og fram kom í Jökli sem kom út um daginn var ákoma á Vatnajökul mjög léleg á síðasta ári. Það eru því líkur til að sprungur og svelgir séu ekki eins vel þjappaðir af snjó og þeir hafa verið oft áður. Vatnajökull var einu sinni (þegar hlýrra var) kallaður Klofajökull og dettur manni í hug að það hafi verið vegna þess að vatnsrásin úr Grímsvötnum hafi verið opin og „klofið“ jökulinn niður í sjó. En þetta er nú bara mín tilgáta.
Eins og við vitum er oft mikil umferð yfir snjóbrúna sem er yfir útfallinu og engin ein leið sem er farin þar yfir. Með minnkandi ákomu (auknum hita) á jökulinn gæti maður gert ráð fyrir að snjóbrúin yfir útfallið væri að þynnast sem gæti skapað aukna hættu á slysum.
Þess vegna spyr ég: Hefur eitthvað verið kannað hvað er undir sjóbrúnni? Má ekki gera ráð fyrir að þar sé heljarmikill hellir vegna jarðvarmans sem þarna er?
Það væri gaman að heyra í mönnum um þetta.Og svo í lokin:
Hvað eru menn að fara sunnarlega frá húsunum þegar þeir fara yfir snjóbrúna?Förum varlega á fjöllum
Kveðja Sveinn G
R-2000
You must be logged in to reply to this topic.