Forsíða › Forums › Spjallið › Umhverfismál › Utanvegaakstur
This topic contains 21 replies, has 1 voice, and was last updated by Ólafur Hallgrímsson 16 years, 10 months ago.
-
CreatorTopic
-
01.01.2008 at 00:41 #201491
Eins og glöggir menn tóku eftir í áramótaskaupi sjónvarpsins var framkvæmdur utanvegaakstur í leitinni að Lúkasi á björgunarsveitarbíl.
Finnst mér í allri umræðunni þetta ekki beint til fyrirmyndar!! HVAÐ FINNST YKKUR?nýárskveðjur
Ægir SævarssonPS svo getur vel verið að þetta atriði hafi verið tekið á nýskipulögðu svæði fyrir utanvegaakstur!
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
01.01.2008 at 00:49 #608430
þetta er nú orðið rosalegt björgunarsveitirnar fá eingöngu að selja flugelda og nú líka að stunda utanvegaakstur,ætli maður þurfi að ganga í björgunarsveitina til þess að komast uppá fjöll í nánustu framtíð.
kv bæbæ
01.01.2008 at 00:53 #608432Mér finnst nú bara ótrúlegt að fyrstu póstarnir á nýju ári skulu byrja eins og síðasta ár endaði… á neikvæðri umfjöllun.
Er ekki málið að byrja á einhverju jákvæðu…
kv. stef
01.01.2008 at 00:55 #608434hvað er nú orðið neikvætt að ganga í björgunarsveit
01.01.2008 at 00:56 #608436LÍTU Á BJÖRTUHLIÐARANAR ÞAÐ VANTAR BARA AÐ BROSA ÚT Í ANNAÐ HA
Á EINKVERJU VARÐ AÐ BIRJA EN EINGASÍÐUR STAÐREINDÁRAMÓTAKVEÐJA ÆGIR
01.01.2008 at 01:10 #608438Ég tók strax eftri þessu og fannst þetta ekki gott að sjá í sjónvarpi allra landsmanna
01.01.2008 at 01:30 #608440
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Hæ hæ og gleðilegt nýtt ár:):)
Ég ók einum af þessum bílum og þetta var allt í löglegu gert,það var fengið leyfi fengið til að keyra 2 ferðir þarna á frosinni jörð fyrir þetta show…
Og svo bara skál:):):)
KV:Matti
01.01.2008 at 01:30 #608442
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Hæ hæ og gleðilegt nýtt ár:):)
Ég ók einum af þessum bílum og þetta var allt í löglegu gert,það var fengið leyfi fengið til að keyra 2 ferðir þarna á frosinni jörð fyrir þetta show…
Og svo bara skál:):):)
KV:Matti
01.01.2008 at 01:59 #608444Það sáust samt greinileg för eftri bíla sem ekki á að sjást í náttúru íslands
01.01.2008 at 02:20 #608446
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Það var eftir fyrri ferðina og þú mátt alveg reyna að sjá þetta núna.Við sem vorum á bílunum vorum ekki alveg til í þetta fyrst og neytuðum en eftir að ég labbaði niður hallan sem er að mestu á mel og ekki mikið að skemma í frosti þá var ákveðið að halda áfram með þetta og er ég búinn að fara þarna síðan og ég get ekki fundið förin svo það yrði erfitt að taka þetta upp aftur…
Kveðja :Matti
01.01.2008 at 11:59 #608448Ef þú ferð þarna næsta vor Martein þá verður væntanlega litamun á mosanum í hjólförunum og utan þeirra og líklegt að hjólförin verði því mjög greinileg þá, en þau hverfa svo á nokrum árum þar á eftir. Mosi er nefnilega mjög seinn til bæði að drepast og að lifna. Það sem er athugavert við þetta er að þessi jeppar eru greinilega á harðpumpuðu. Hefðu þið haft rænu á að vera á undir 3 pundum hefðuð þið losnað við öll ummerki.
01.01.2008 at 12:51 #608450Þetta er rétt hjá Guðmundi. Land sem er þakið mosa er viðkvæmara en að annað fyrir spjöllum af völdum aksturs og annarar umferðar, og áhrifin koma ekki strax ljós.
Það dregur ekki úr skaðanum þó menn séu á stórum dekkjum, ef menn nenna ekki að hleypa úr þeim.
Þetta sem sást í Skaupinu á ekki að sjást, og það er lítil afsökun þó eitthvert möppudýr hafi gefið leyfi.Ákstur á flestum öðrum tegundum lands getur skilið eftir sig ljót sár, en þau hverfa oftast á fáeinum missirum, nema þar sem þau breytast í vatnsfarvegi.
-Einar
01.01.2008 at 19:11 #608452Vá hvað ég visi að einhvermyndi væla yfir þessu!!
11.01.2008 at 10:38 #608454[url=http://www.dv.is/frettir/lesa/3909:26xq4s7h][b:26xq4s7h]http://www.dv.is/frettir/lesa/3909[/b:26xq4s7h][/url:26xq4s7h]
–
Bjarni G.
11.01.2008 at 12:56 #608456Daginn
Mér finnst það sérstaklega jákvætt að tæpum klukkutíma eftir að atriðið var sýnt voru félagsmenn 4×4 byrjaðir að ræða um þetta á vefnum, sínum miðli.
Það sýnir að hjá allflestum félagsmönnum er þetta orðið eðlislæg viðbrögð að finnast eitthvað athugavert við þetta.
Kv Izan
11.01.2008 at 15:26 #608458En miðað við hvaða fréttir hafa borist af þessu þá finnst mér sökin vera hjá þeim sem töldu sig bæra til þess að gefa leyfi fyrir þessu. Fyrirsvarsmenn áramótaskaupsins voru þó í góðri trú.
11.01.2008 at 15:56 #608460Hárrétt sem Izan segir að viðbrögðin hér sýna að félagsmönnum 4×4 finnst það verulega stinga í augu að sjá menn aka svona utan vega og yfir gróið land. Svona atriði í þætti sem öll þjóðin horfir á er hins vegar afskaplega skaðlegt á tvennan hátt. Annars vegar sendir þetta almenningi þau skilaboð að ef þú ert á stórum jeppa sé bara allt í lagi að aka yfir hvað sem er. Fyrir þá sem ekki eru inni í málum með sama hætti og menn eru hér, gefur þetta því villandi mynd. Svo er hitt að þetta ýtir undir fordóma gagnvart jeppamönnum, eða kannski björgunarsveitum sérstaklega. Ég er nokkuð viss um að einhver sem horfði á þetta hefur bölvað stórum jeppum að þessu tilefni. Ég get því ekki sagt að ég gráti það ef Ust gerir mál úr þessu.
Kv – Skúli
11.01.2008 at 16:33 #608462
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Ég ætla ekki að verja þetta á nokkurn hátt,en þeir sem sáu um þetta hefðu kannski á að vinna sína vinnu betur og hafa þetta annarsstaðar.En varðandi UST væri þeim nær ef þeir ætla að gera stórmál úr þessu og það er að ráðast ekki á garðin þar sem hann er lægstur!! þeir mættu fara með hörku á hin stóru umhverfisspjöll sem eiga sér stað á Hellisheiði og þar má sjá ljót för hér og þar sem eru ekki eftir jeppamenn heldu menn frá OR og öðrum og ekki er nú mikið hamast yfir því og ekki eru þau för öll með leyfum.
KV:Matti
11.01.2008 at 17:21 #608464Það var gjörsamlega óháð tilgangi atriðisins að keyra á grónu landi. Þetta hefði vel mátt taka annars staðar þar sem engin för sáust, þetta atriði stakk mig svo í augun! (sem voru að mestu annars lokuð yfir skaupinu…)
Mér finnst þetta vera skammarlegt, og skiptir engu þó að árið þurfi að byrja á neikvæðri umfjöllun. Þarna var um HREINAN OG KLÁRAN utanvegaakstur! Annað en mörg dæmi um meintan utanvegaakstur.Mér finnst þetta mál ekki vera til framdráttar fyrir bæði björgunarsveit er átti hlut að máli og lögreglu- og bæjaryfirvöld.
kkv, Úlfr
E-1851
11.01.2008 at 17:26 #608466Þetta var einmitt frekar tilgangslaust og kannski fannst manni verst að sjá þrjú ökutæki keyra í breiðfylkingu yfir mosann. Ekki það að ég ætlaði að nöldra yfir þessu eða fordæma sérstaklega en þegar ég horfði á þetta fann ég örlítið til með náttúrunni.
Kveðja
Tryggvi (sem er að verða illa vinstri grænn…)
11.01.2008 at 17:38 #608468Hæ, smá innlegg í þetta.
Ég segi eins og Tryggvi, af hverju þurftu þau að gera þetta svona, aka í breiðfylkingu þarna niður og ég hugsaði strax, hvaða kjánar eru þetta á þessum bílum.
En allir hinir svo voru að horfa með mér (konan, bróðir minn, konan hans, mamma og pabbi, öll börnin), tóku ekki eftir neinu.
Sem segir mér það, að við jeppaliðið erum svo sannarlega að pæla í þessum hlutum og sennilega er þá þetta minna mál í hugum hinna sem eiga ekki jeppa og fara ekki mikið á fjöll.
Og þá er staðreyndin um utanvegakstur svona, ef marka má mína reynslu heima þetta kvöld:
Einhver framkvæmir, örfáir sjá, flestum er sama, enn færri vilja kæra, jeppakallinn fær sting að sjá. En samt hefur sýsli viljað eltast við þá…P
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.