Forsíða › Forums › Spjallið › GPS og leiðir › usb og gps
This topic contains 31 replies, has 1 voice, and was last updated by Anonymous 17 years, 10 months ago.
-
CreatorTopic
-
19.09.2006 at 09:13 #198570
sælir félagar
hvernig er það hvar fær maður usb kapal
til að tengja gps tækið við fartölvu sem er ekki með comportskari
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
19.09.2006 at 09:22 #560628
Sæll
Þetta fræðu hjá R.Sigmundssyni í Ánanaustum
(húsi "gömlu Vélarsölunar")
Kveðja
Steini
19.09.2006 at 12:04 #560630það fæst ekki hjá r.sigmunds
en það er hægt að fá breyti stiki fyrir þetta hjá tölvulistanum í nóatúnni skilst mér
skar
19.09.2006 at 12:09 #560632Þú ert með GPS tæki með serial og fartölvu ekki með serial en átt snúru úr GPS sem endar í RS232 kalli.
Þá viltu [url=http://tolvulistinn.is/vara/1631:r9y7ldvb]svona græju[/url:r9y7ldvb], rétt innan við 5.000kr.
19.09.2006 at 12:41 #560634fer á eftir og versla þetta
skari
19.09.2006 at 12:52 #560636Hjá Íhlutum fyrir lítinn pening
kv
Gísli
19.09.2006 at 21:59 #560638Annars sá ég USB GPS græju til sölu hjá R.Sig. Semsagt GPS móttakara (lítil pung) sem maður tengir í USB portið á fartölvu. Hvernig hefur svona lausn verði að koma út ? Hafið þið prófað þetta. Svona græja kostar um 10 þús. Það er nokkru ódýrara en 60 þús kr. GPS tæki. Sérstaklega ef menn ætla sér eingöngu að nota fartölvu í bílnum.
19.09.2006 at 22:11 #560640en hver er hættan á því að músin fari fillerý.
Er þessi gps pungur ræstur sér, eða hvernig er þetta útbúið. Mín reynsla er sú að mikilvægt sé að ræsa Nobeltekkið áður en kveikt er á gps tækinu til þess að koma í veg fyrir músar vesen
19.09.2006 at 22:17 #560642Ég var með svona hjá mér þangað til talvan dó og virkaði þetta mjög vel en þetta var í serial tengi á tölvunni.Eins þurfti ég að starta up Nobeltekkinu áður en ég kveikti á móttakaranum til að hafa músina til friðs.
19.09.2006 at 22:22 #560644Ég held að músavandamálið komi eingöngu þegar menn eru með serial tengdan gps. Það leysast svo mörg vandamál við að gera þetta svona. Ekki þarf að tengja þetta í rafmagn, þar sem GPS móttakarinn tekur þá rafmagn frá tölvuni. Þessi pungur tekur mun minna pláss. Allavega væri gaman að heyra reynslu frá einhverjum sem hefur prófað þetta !!!
19.09.2006 at 22:27 #560646Þessi móttakari sem ég var með var frá r.sigmunds og var hann tengdur við sígarettukveikjarann til að fá straum, en já móttakarinn tekur mjög lítið pláss eiginlega ekki neitt en talvan tekur náttúrulega slatta pláss og hugsa ég að korta tæki sé besta lausnin ef menn eru að spá í plássi eða vera með tölvuna afturí og lítin skjá bara frammí.
19.09.2006 at 22:51 #560648Það er til móttakari frá Garmin sem fer í USB og tekur líka rafmagnið í USB þ.e notar bara 1 USB tengi. Var að skoða þetta áðan niður í búð hjá mér en sá eitt svona kvikindi á borðinu þar. Hann kostar einhvern 8-9þ kall ef ég man rétt.
20.09.2006 at 09:28 #560650Þeir sem fá brjáluð mús einkenni frá gps tækinu þurfa að kveikja á tölvunni og láta stýrikerfið ræsa sig áður en gps tækinu er stungið í serialportið eða þá kveikt á gps tækinu eftir að stýrikerfið er komið í gang.
Sé tölvan ræst með gpstækið tengt og í gangi heldur tölvan að gpstækið sé mús.
GPStækið sendir gögn á serialportið á sekúndu fresti og músin hreyfist í takt við það. Frekar pirrandi…Kveðja
Elvar
20.09.2006 at 10:21 #560652þetta virkar þrælvel
20.09.2006 at 11:45 #560654Hef notað þetta aðeins með n route. og þetta virkar bara fínt. bara að stinga usb tenginu í tölvuna og þá ertu kominn með gps signal. setti franskan rennilás á mælaborði og undir músina þannig að músin er alltaf inni í hlýjunni.
20.09.2006 at 12:06 #560656Ég notaði USB GPS pödduna frá Rikka í vetur á þvælingi um mest alla Evrópu, með NRoute. Þetta var algjör snilld.
20.09.2006 at 12:07 #560658Hef notað svona með n-route. Þræl virkar. Henti mýslunni bara á toppinn (er með segli) og snúrunni inn um hurðarfalsið.
Er reyndar einnig alltaf með Garminn 12xl með mér, svona ef talvan eða spennirinn skyldu gefa upp öndina, sem gerist stundum.kv
Rúnar.
20.09.2006 at 14:36 #560660ég keypti á sínum tíma usb í com breyti í íhlutum en rikki benti mér á að versla það þar, þeir hefðu reynst best.
þessum usb í com breyti þurfti ég að installa í tölvuna og gekk það vel fyrir sig með plug and play.
hinnsvegar kannast ég aðeins við þessa geðveiku mús sem um hefur verið rætt hér að ofan. og hef komist að því að ef ég set gpsið í samband í annað usb port en það sem notað var þegar ég installaði breytinum þá verður músin geðveik. ef ég hinnsvegar nota sama port þá skiptir engu máli hvort kveikt er á tölvu eða gps eða nobeltek fyrst. mjög athyglisverð fræði.
20.09.2006 at 16:16 #560662hver er munurinn á þessu forritum ? er með þau bæði en veit ekki alveg hvort er þægilegra að nota… er svo líka með navtrek. hvað á ég að nota ?
20.09.2006 at 23:31 #560664bæði, notaði bara mapsource til að finna id númerið á gps loftnetinu til að virkja kortið í tölvunni, svo nota ég bara nroute sem er algjör snilld. loftnetið (pungurinn) er bara á sogskálastandi upp í glugga og tengist tölvunni með usb og tekur rafmagn frá henni. Svo getur þú bara beðið forritið um að lóðsa þér þangað sem þú þarft að fara (þ.e. ef slóðinn er á annað borð inn á kortinu).
kv. Þorvaldur
27.01.2007 at 17:53 #560666þegar ég er með kveikt á nroute í tölvunni hjá mér og ætla að zooma út þá hverfa allar hæðalínur ef ég fer yfir 1.5 km.
en í mapsource get ég zoomað út í 5 km án þess að missa hæðarlínurnar.
Er þetta einhver stilling eða er nRoute bara svona takmarkað, einnig eru hæðarlínur þéttari í maps, heldur en í nR, ef maður skoðar sama svæðið.Hvort eru menn að nota maps eða nR. á fjöllum, mér finnst nRoute með þægilegri fídusa til að vinna með t.d takka til að snúa korti alltaf upp í norður eða láta bílinn keyra upp og kortið snúast um bílinn.
Mér finnst kortið hinsvegar svo miklu betra í maps, að mér finnst betra að hafa það opið til að keyra eftir.Eitt að lokum á ekki að vera skála skrá í þessum foritum, hef ekki séð neina skála merkta inn hjá mér, það er reyndar skrifað á kortið (ef maður rínir vel) skáli , setrið en það er ekki gott að sjá hvar er skáli er ef maður veit ekki hvar hann er.
með von um smá froðleik frá ykkur.
kv. Hilmar Örn
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.