Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Úrhleypingar ?
This topic contains 12 replies, has 1 voice, and was last updated by Davíð Örvar Hansson 18 years, 3 months ago.
-
CreatorTopic
-
30.10.2006 at 23:45 #198856
AnonymousGetur einhver sagt mér hvað er óhætt að hleypa mikið úr 35″ á 17″ álfelgum ?
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
31.10.2006 at 00:09 #566000
fer eftir þyngd bíls…… bara ekki fara svo neðarlega að þú fáir krumpu í dekkið….
31.10.2006 at 03:58 #566002Það er hægt að finna út hversu mikið er hægt að hleypa úr með einfaldri tilraun. Fyrst er að fá sé góðan loftmæli, sem hægt er að lesa af lítinn þrýsting, helst með upplausn upp á brot úr psi, eða fáein kiloPascal.
Síðan er farið að góðri loftdælu, t.d. á bensínstöð, og ollu lofti hleypt úr öðru eða báðum hjólum á þeim enda bílssins sem er þyngri. Nú er bætt lofti í hjólið, þangað til bíllinn er greinilega farinn að lyftast, t.d. um 2-5 cm.
Þrýstingurinn sem nú er í hjólinu, er sá þrýstingur sem gefur mest flot í snjó. Ef meira er hleypt úr en þetta, þá dregur það úr drifgetu. Það þarf að hafa í huga, að við þessar aðstæður hafa hita og hæðarbreytingar hlutfallslega mikil áhrif á loftþýstinginn sem mælist í dekkjunum.
Við úrhleypingu kólnar loftið í dekkinu, þegar það síðan hitnar aftur, til jafnvægis við umhverfið, þá eykst þrýstingurinn.Staðhæfing um að ekki megi koma kryppa á dekkið, bendir til að viðkomandi hafi aldrei ferðast á snjó 😉
-Einar
31.10.2006 at 08:19 #566004Þegar ég átti LC120 á 35 fór ég allveg niður í 3 pund. Gerði það oft og var ekki að sjá að dekkin skemmdust neitt við það
31.10.2006 at 12:31 #566006
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
ég er nú eingin nýgræðingur í að hleypa úr ég bara þekki ekki til þessara álfelgna og hvað er óhætt að fara neðarlega á þeim en ég þakka samt góð svör
02.11.2006 at 18:13 #566008EIK er eitthvað vesen heima hjá þér… líður þér svo illa að þú getir ekki sett inn jákvætt viðhorf á einn eða neinn hlut hér inná spjallinu… ef það er ekki drullan sem þú ert að ausa yfir TETRA að þá eru það ásakanir um ritstuld og að endingu staðhæfingar um að ég hafi sennilega aldrei ferðast í snjó… líður þér svona illa??? það sem ég var að meina með krumpu á dekkið er nákvæmlega það sama og þú sagðir með einhverri fáránlegri sentimetratölu… ef farið er of neðarlega byrjar dekkið að krumpast og þú missir flot þessi sentimetratala hjá þér er mjög misjöfn eftir stærð dekkija og varðandi hitabreytingarnar að þá er það nú alveg rétt en fyrst þú ert svona svakalegur spegúlant því ekki að minnast á hæðarbreytingar líka og ytri loftþrýsting… hann hefur heilmikil áhrif líka ??? ótrúlega leiðinlegt að lesa orðið allt sem þú setur hér á vefinn…
02.11.2006 at 18:36 #566010Sé þessi texti ekki persónulegt skítkast veit ég ekki hvað það er. Ef Vefnefnd lætur svona óátalið, þykir mér bleik brugðið.
02.11.2006 at 19:59 #566012hvar var verið að kasta skít ?
kv Ási:-)
02.11.2006 at 20:13 #566014Þegar menn hætta að skiptast á skoðunum um umræðuefnið og fara að gera lítið úr persónu viðmælandans er umræðan komin út í skítkast.
02.11.2006 at 20:16 #566016
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Hvernig fór þessi þráður úr úrhleypingum og yfir í skítköst maður bara spyr sig !
02.11.2006 at 20:25 #566018..hvað maður hleypir mikið úr ..;o)
Ég hleypti nú úr mínu fyrsta dekki fyrr á þessu ári samkvæmt leiðbeiningum frá mínum frábæru ferðafélögum og urðu þessi klassísku 3 pund fyrir valinu (miðað vð 38") og hefur það bara reynst þokkalega.
02.11.2006 at 21:08 #566020Álfelgur er ekki sama og álfelgur.
og stálfelgur er alls ekki það sama og álfelgur.Það er mjög misjafnt hvað álfelgurnar þola að hleypa miklu úr. Ég á td einar álfelgur sem ég get ekki farið undir 10 pundinn þá affelgast.
svo átti ég aðrar þar sem ég gat farið niður í 2 pund. Ef þú límir dekkin á felguna hjálpar það til.
bottom line. Þú verður bara að prófa sjálfur að fikra þig niður og finna mörkin.
þetta er samspil dekkja og felgna. Sumar felgur eru ómögulegar til úrhleypinga aðrar ekki.
02.11.2006 at 22:33 #566022Heyrðu, er einar álfelga eitthvað tengdur Einari eik? Annars var þetta skemtilegt komment frá eik því að það má alveg koma krumpa í dekkið!!! Merkilegur maður sagði mér einu sinni að maður ætti að hleypa úr þangað til að það kæmi krippa en hvað veit ég..
–
Kv. Davíð
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.