FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Úrhleypibúnaður.

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Úrhleypibúnaður.

This topic contains 8 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Guðmundur Guðmundsson Guðmundur Guðmundsson 18 years, 7 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 04.11.2006 at 18:36 #198889
    Profile photo of
    Anonymous

    Sælir félagar, getur einhver sagt mér hvað verkfræðingurinn hér á síðunni heitir sem er með teikningar af úrhleypibúnaði í LC 80 í myndaalbúminu hjá sér.

    Með fyrirfram þökk.

  • Creator
    Topic
Viewing 8 replies - 1 through 8 (of 8 total)
  • Author
    Replies
  • 04.11.2006 at 18:53 #566608
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Member
    • Umræður: 48
    • Svör: 705

    það myndi vera stórvinur minn hann gundur sem þú ert að leita eftir, prófíllinn hans [url=http://www.f4x4.is/new/profile/default.aspx?file=3663:2ksbd55c]hér[/url:2ksbd55c]





    04.11.2006 at 20:56 #566610
    Profile photo of Guðni Grímsson
    Guðni Grímsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 120

    Þessi líka.
    https://old.f4x4.is/new/photoalbum/defau … =cars/3697





    04.11.2006 at 23:35 #566612
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Takk fyrir þetta, endilega koma með fleiri uppl. og myndir ef einhverjir vita.





    04.11.2006 at 23:44 #566614
    Profile photo of Kristján Arnór Gretarsson
    Kristján Arnór Gretarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 971

    já, endilega segja frá hvernig þróun á þessum búnaði gengur, menn eru jú með mismunandi pakkdósir, ofl

    Hvað er að endast best? Og hvers vegna? …og auðvitað viðhaldið





    05.11.2006 at 00:06 #566616
    Profile photo of Þorsteinn Svavar McKinstry
    Þorsteinn Svavar McKinstry
    Member
    • Umræður: 6
    • Svör: 162

    Á móti 4×4 í Húsafelli sumarið 2005 sá ég einfaldan úrhleypibúnað á Toyota jeppa. Þennan búnað hafði eigandinn sett saman sjálfur úr sennilega bremsurörum og tengjum (loftbremsubúnaður) sem fá má t.d. í Landvélum og eflaust fl. stöðum fyrir lítið. mér fannst þetta einfalt og snjallt. Menn hafa verið að nota sömu lausn í Baja, Raid, og Safari-Rally keppnum í söndum Norður-Afríku fyrir jeppa eins og Landróverættuðu Bowler- og Tomcat-jeppana og svo framv. með góðum árangri. Kann ekki einhver frá að segja um reynsluna af þessu hér heima og etv. uppskriftina (íhlutalista).

    Kveðja

    Steini





    05.11.2006 at 11:41 #566618
    Profile photo of Guðmundur Guðmundsson
    Guðmundur Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 90
    • Svör: 1091

    Sælir félagar, ég hef verið að fá fyrirspurnir um þennan búnað.
    Þetta kom frá Glanna.
    Spurt: Ég skrifa þetta bara hér fyrst það er nú þráður hér í gangi sem er tileinkaður þér,en þar sem ég er mikill áhugamaður um úrhleypibúnað þá langar mig að forvitnast aðeins um þennan búnað hjá þér,hvernig hann er uppbyggður og eins hvernig hann hefur reynst hjá þér.
    Svar: Þessi búnaður er utanáliggjandi úrhleypibúnaður sem var hugsaður í byrjun til þessa að nota þegar menn fara að klifra jökulinn td. upp um 1000 mertra í mjög bröttum og erfiðum akstri. Þá þarf jú að hleypa úr reglulega og oft þegar maður vildi helst ekki stoppa vegna aðstæðna, slöngurnar voru klárar í bílnum og þú plöggaðir þeim í við rætur jökuls og tóks þær af þegar þú komst niður aftur.
    Hugmyndin af þessum búnaði kemur frá Dakar 2000 og einnig eru flutningabílar með sambærilegan búnað í útlandinu enn þeir nota þetta til að halda fullum þrýsingi ef gat kemur á dekk.
    Ég er með loftpúða að aftan, loftkút 20 l. og tannlækna loftpressu sem dælir 120 psi inn á kútinn. Mælar fyrir þetta eru þrír, einnig fyrir kútinn og svo fyrir hvorn loftpúðann, einnig er eru rofar til að dæla í og tapa af púðunum, enn síðan er ég með skiptiloka á hvorri lögninni fyrir púðanna þannig að ég get skipt yfir á framhjól og afturhjól. Þá virka mælarnir og rofarnir fyrir dekkin.
    Flest allir hlutir í þetta eru keyptir í Landvélum (Snæþór) og TNT hjá Stýrivélaþjónustinni smíðaði það sem þurfti að smíða, langar felgurær og fl.
    Spurt: Mig þyrstir að vita hvort slöngurnar sem eru frá brettakantinum og niður í hjól eru þetta slöngur sem þurfa að vera tengdar þegar úr/ípumpunarbúnaðurinn er virkur?
    Svar: Já þegar þú ætlar að fara að nota búnaðinn þá tengir þú slöngurnar, enn ég hef próða þær viða td. keyrt hér í bænum á góðum hraða með allt tengt og dundað mér við að hleypa úr og dæla í og snúningstengið sem hannað er fyrir iðnvélar sem snúast mun meira það hitnaði ekki neitt.
    Spurt: Og ef svo er hvernig er þegar felgan fyllist af snjó og íshröngli eða krapa flækjast ekki slöngurnar í hjólunum og slitna frá?
    Svar: Við tengjum ekki slöngurnar á lálendi í krapa það er engin þörf á þeim þar. Ég notaði þetta í nokkrum ferðum til prufu td. Höfsjökulsferðina og síðan heim yfir Langjökul og ég var með búnaðinn meira og minna á og þetta virkaði ótrúlega vel.
    Það var á einum stað enn það var inni í geylinni í Þursborg á Langjökli alveg inni í botni á henni enn þar er mjög þraungt að snúa enn þá gleymdi ég því að ég var með búnaðinn tengdan og slangan náði að krækja aðeins í dekkið að framan enn í gegnum takinu í brettinu er öryggi sem ég vissi ekki um enn það plöggaðist úr og ég smellti því bara í aftur.
    Spurt: Eins ef þú ert að fara td. yfir ísilagða á á veikum ís og pompar niður eins og maður lendir alltof oft í þá er náttúrulega ekki mikið svigrúm fyrir svona slöngur nema að vöðlast í dekkin eða hvað því ekki riðja þær frá sér klakanum.
    Svar: Við notum búnaðinn ekki, þ.e.a.s að við tengjum ekki slöngurnar á láglendi og ekki í ám og vötnum.
    Spurt: Svo er ein spurnig að lokum, hvernig tengir þú slönguna í hjólið? Er þetta einhverskonar hjámiðja sem snýst eða hvað?
    Svar: Slöngurnar eru tengdar í snúnigstengið með hraðtengi 6 ? 8 mm á 44? er kanski best að nota í þetta allt 8 mm loftslöngur, 6 mm var gott fyrir 38?.
    Varðandi myndir þá hafa þær nú byrst víða, eitthvað er í mína albúmi hér á vefnum.
    Þeir sem áhuga hafa á að fá sér svona búnað geta talað við Tryggva / http://www.styri.is
    kveðja gundur
    [img:1y18ynqh]http://www.f4x4.is/new/files/photo/default.aspx?file=files/photoalbums/4876/35273.jpg[/img:1y18ynqh]





    05.11.2006 at 12:27 #566620
    Profile photo of Kristján Arnór Gretarsson
    Kristján Arnór Gretarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 971

    Hér er hub sem er notaður í Dakar rallinu, og hann notar pakkdósir og slífar sem þær renna á.

    http://www.ftlseals.co.uk/pdf/ctiseal.pdf





    05.11.2006 at 13:30 #566622
    Profile photo of Guðmundur Guðmundsson
    Guðmundur Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 90
    • Svör: 1091

    Hér koma nokkrar myndir

    [url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=skyrinarmynd/4876:2hlgjc3z]">[b:2hlgjc3z]Myndir af úrhleypibúnaði[/b:2hlgjc3z][/url:2hlgjc3z]
    kv gundur





  • Author
    Replies
Viewing 8 replies - 1 through 8 (of 8 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.