FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Úrhleypibúnaður

by Hjörtur Sævar Steinason

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Úrhleypibúnaður

This topic contains 4 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Baldur Gunnarsson Baldur Gunnarsson 19 years, 5 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 19.12.2005 at 21:59 #196889
    Profile photo of Hjörtur Sævar Steinason
    Hjörtur Sævar Steinason
    Participant

    Góðan daginn,
    ég finn ekki spjallið um úrhleypibúnaðinn sem var utanáliggjandi, það er að segja sá sem var festur utaná brettakant og þaðan niður í felgu enhvernveginn.
    Var ekki mynd af búnaðinum með í spjallinu.
    Kveðja Hjörtur og JAKINN.

  • Creator
    Topic
Viewing 4 replies - 1 through 4 (of 4 total)
  • Author
    Replies
  • 19.12.2005 at 22:11 #536630
    Profile photo of Bjarki Clausen
    Bjarki Clausen
    Participant
    • Umræður: 158
    • Svör: 1709

    Sæll Hjörtur
    þú ættir að geta flétt upp póstum frá Gundi,
    td:
    https://old.f4x4.is/new/forum/?file=bila … ingar/5103
    Hvernig gengur annars með trukkinn og stórubarðanna ?

    kv
    Burban





    20.12.2005 at 00:24 #536632
    Profile photo of Hjörtur Sævar Steinason
    Hjörtur Sævar Steinason
    Participant
    • Umræður: 89
    • Svör: 1242

    Góðan daginn,
    mig vantar enn mynd af þessum búnaði.
    Varðandi stóru barðana og allt það dæmi þá sofnaði það um tíma en er vonandi að vakna.
    Annars er ég búinn að vera að kaupa hlutföll, loftlása, 35" yrtri öxla, lokur, legusett og eitthvað fleira er núna að bíða eftir framhásingu frá USA, þannig að það er flest að verða komið sem notast við smíðina.
    Kveðja Hjörtur og JAKINN.





    20.12.2005 at 01:35 #536634
    Profile photo of is
    is
    Participant
    • Umræður: 71
    • Svör: 994

    Utanáliggjandi úrhleypibúnaður
    Sælir félagar, ég hef verið að fá fyrirspurnir um þennan búnað.

    Þetta kom frá Glanna.

    Spurt: Ég skrifa þetta bara hér fyrst það er nú þráður hér í gangi sem er tileinkaður þér,en þar sem ég er mikill áhugamaður um úrhleypibúnað þá langar mig að forvitnast aðeins um þennan búnað hjá þér,hvernig hann er uppbyggður og eins hvernig hann hefur reynst hjá þér.

    Svar: Þessi búnaður er utanáliggjandi úrhleypibúnaður sem var hugsaður í byrjun til þessa að nota þegar menn fara að klifra jökulinn td. upp um 1000 mertra í mjög bröttum og erfiðum akstri. Þá þarf jú að hleypa úr reglulega og oft þegar maður vildi helst ekki stoppa vegna aðstæðna, slöngurnar voru klárar í bílnum og þú plöggaðir þeim í við rætur jökuls og tóks þær af þegar þú komst niður aftur.

    Hugmyndin af þessum búnaði kemur frá Dakar 2000 og einnig eru flutningabílar með sambærilegan búnað í útlandinu enn þeir nota þetta til að halda fullum þrýsingi ef gat kemur á dekk.

    Ég er með loftpúða að aftan, loftkút 20 l. og tannlækna loftpressu sem dælir 120 psi inn á kútinn. Mælar fyrir þetta eru þrír, einnig fyrir kútinn og svo fyrir hvorn loftpúðann, einnig er eru rofar til að dæla í og tapa af púðunum, enn síðan er ég með skiptiloka á hvorri lögninni fyrir púðanna þannig að ég get skipt yfir á framhjól og afturhjól. Þá virka mælarnir og rofarnir fyrir dekkin.

    Flest allir hlutir í þetta eru keyptir í Landvélum (Snæþór) og TNT hjá Stýrivélaþjónustinni smíðaði það sem þurfti að smíða, langar felgurær og fl.

    Spurt: Mig þyrstir að vita hvort slöngurnar sem eru frá brettakantinum og niður í hjól eru þetta slöngur sem þurfa að vera tengdar þegar úr/ípumpunarbúnaðurinn er virkur?

    Svar: Já þegar þú ætlar að fara að nota búnaðinn þá tengir þú slöngurnar, enn ég hef próða þær viða td. keyrt hér í bænum á góðum hraða með allt tengt og dundað mér við að hleypa úr og dæla í og snúningstengið sem hannað er fyrir iðnvélar sem snúast mun meira það hitnaði ekki neitt.

    Spurt: Og ef svo er hvernig er þegar felgan fyllist af snjó og íshröngli eða krapa flækjast ekki slöngurnar í hjólunum og slitna frá?

    Svar: Við tengjum ekki slöngurnar á lálendi í krapa það er engin þörf á þeim þar. Ég notaði þetta í nokkrum ferðum til prufu td. Höfsjökulsferðina og síðan heim yfir Langjökul og ég var með búnaðinn meira og minna á og þetta virkaði ótrúlega vel.

    Það var á einum stað enn það var inni í geylinni í Þursborg á Langjökli alveg inni í botni á henni enn þar er mjög þraungt að snúa enn þá gleymdi ég því að ég var með búnaðinn tengdan og slangan náði að krækja aðeins í dekkið að framan enn í gegnum takinu í brettinu er öryggi sem ég vissi ekki um enn það plöggaðist úr og ég smellti því bara í aftur.

    Spurt: Eins ef þú ert að fara td. yfir ísilagða á á veikum ís og pompar niður eins og maður lendir alltof oft í þá er náttúrulega ekki mikið svigrúm fyrir svona slöngur nema að vöðlast í dekkin eða hvað því ekki riðja þær frá sér klakanum.

    Svar: Við notum búnaðinn ekki, þ.e.a.s að við tengjum ekki slöngurnar á láglendi og ekki í ám og vötnum.

    Spurt: Svo er ein spurnig að lokum, hvernig tengir þú slönguna í hjólið? Er þetta einhverskonar hjámiðja sem snýst eða hvað?

    Svar: Slöngurnar eru tengdar í snúnigstengið með hraðtengi 6 ? 8 mm á 44? er kanski best að nota í þetta allt 8 mm loftslöngur, 6 mm var gott fyrir 38?.

    Varðandi myndir þá hafa þær nú byrst víða, eitthvað er í mína albúmi hér á vefnum.

    Þeir sem áhuga hafa á að fá sér svona búnað geta talað við Tryggva / http://www.styri.is

    kveðja gundur





    20.12.2005 at 02:49 #536636
    Profile photo of Baldur Gunnarsson
    Baldur Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 43
    • Svör: 821

    https://old.f4x4.is/new/photoalbum/?file=carmembers/3565

    hér hefurðu þær, góða skemmtun 😉





  • Author
    Replies
Viewing 4 replies - 1 through 4 (of 4 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.