Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Undirvagn
This topic contains 11 replies, has 1 voice, and was last updated by Sigurður Árni Friðriksson 19 years, 9 months ago.
-
CreatorTopic
-
12.01.2006 at 20:06 #197038
Gott kvöld
Ég er að fara að taka undirvagninn í gegn á jeppanum mínum.
Ég ætla að pússa burt allt ryð og gera fínt, en ég er að spá hvernig best er að verja þetta aftur.Er einhver sem lumar á góðri lausn í þeim efnum?
Þetta má vera hundleiðinlegt og tímafrekt bara að þetta verði eins öflugt og völ er á.Kveðja
Izeman -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
12.01.2006 at 20:22 #538692
Sendu grindina til þeirra í Sandblástur & Málmhúðun á Akureyri og láttu sandblása og zinkhúða þetta. Sendu þeim allavega fyrirspurn og spurðu hvað það kostar.
12.01.2006 at 21:58 #538694Góðan daginn,
jú rétt er það að sndblástur og Zink húðun er mjög góð en ég tel að Sandblástur og Galvanesering sé betri.
Vissulega er þetta tímafrekt og leiðinlegt og það er hægt að útvega sér litla sandblásturs könnu og taka verstu ryðblettina annars dugar Slípirokkur mjög vel, rauði ætigrunnurinn frá Slippfélaginu er mjög góður og endist vel en enn betur Epoxy Zink grunnurinn frá sama félagi þar sem 4 lítra dósin er 12 kíló vegna zinkinnihaldsins en þá mæla þeir frekar með sandblæstri undir hann og sennilega alltaf bestur.
Kveðja Hjörtur og JAKINN.
12.01.2006 at 21:59 #538696Sæll Guðbrandur
Ég þakka fyrir þessa hugmynd en því miður verður hún illframkvæmanleg í þessu tilviki. Ég gleymdi auðvitað að minnast á það hér að ofan að ég er með sambyggða grind og boddý, Cherokee.
Kveðja
Arnór
12.01.2006 at 22:06 #538698Sælir
Mér lýst vel á þessar hugmyndir Hjörtur, kanski maður ætti bara að reyna að sandblása þetta. Veist þú (eða einhver hér) hvað sandblástursgræjur kosta (svona bílskúrs útgáfa) og einnig hvar svoleiðis fengist?
Kveðja
Arnór
12.01.2006 at 22:27 #538700Góðan daginn,
ég held að ég hafi keypt mína í Orku Snorri Guðmundsson en þessi fyrirtæki sem sinna bílum (fyrir utan umboðin) eiga þetta eða vita hvar þetta fæst.
Þessi græja sem ég á og virkar ágætlega er lítil bissa fyrir eina hendi og taupoki undir sand rétt fyrir framan gikkinn, með skiptanlegum gúmísmokkum fyrir kverkar og misstóra bletti.
Kveðja Hjörtur og JAKINN.
12.01.2006 at 22:47 #538702Sá svona græjur í Poulzen (skeifunni) um daginn.
Af hverju betra að sandblása en að pússa með slípirokk? Meiri viðloðun?
Hvað segja menn um öll þessi underbody-protection efni sem allir eru að selja, grjótvarnir og svoleiðis?
kv
Rúnar.
13.01.2006 at 20:09 #538704Sælir
Mér var sagt frá einni útfærslu á svona undirvagnsvörn.
Pússa – öflugan grunn (epoxy zink…) – hammerite – underbody coating (einhverskonar svart gums sem er til í einhverjum útgáfum)
Þetta hljómar ágætlega, en fleiri hugmyndir væru vel þegnar.
Kveðja
Arnór
13.01.2006 at 20:32 #538706Þessar litlu sandblásturs byssur eru frekar takmarkaðar í svona vinnu. Þær eru yfirleitt mjög loftfrekar, afkasta litlu og svo er alveg endalaus sóðaskapur af sandblæstri. Ég myndi í öllu falli reyna ap sprauta grunn á grindina, frekar en pensla.
Góðar stundir
13.01.2006 at 22:15 #538708Góðan daginn,
aðal ástæða þess að betra er að sandblása er sú að þá tætist eingöngu skemmt efni í burtu, viðloðun er kannski betri, ekki víst. Það eru til ýmis efni sem mörg eru góð, það er ekki þörf á að setja þessi grjótvarnarefni nema á álagsstaði sílsa, hjólskálar og þessháttar, nægir að hreinsa allt ryð og skít vel í burtu grunna vel, lita og setja svo ryðvörn yfir. Á álagsstaði myndi ég pússa allt ryð grunna, setja svo grjótvörn og lita svo yfir.
Já þessar byssur hafa sína annmarka, en reynast engu að síður mjög vel bara að passa vel að sé þétt við stútinn (oft mjög erfitt) á byssunni annars spillist mikið af sandi og lofti. þegar sprautað er á svona svæði eins og undirvagn er mikið af kverkum og skotum þar sem myndast mikið frákast og þarf þá að pensla þá staði til að fá nægilegt efnismagn, en þar sem mikið er af þvílíku myndi ég bara pensla allt. Það þarf yfirleitt ekki að hreinsa allt gamalt lakk af nægir að hreinsa ryðblettina, en maður þarf að vega og meta það hverju sinni.
Betri stundir Hjörtur og JAKINN.
14.01.2006 at 01:53 #538710Eru þessar vélaleigur ekki með græjur til að sandblása og jafnvel góðar loftdælur? Er sandurinn endurnýtanlegur? Gaman væri að vita hvað svona mundi kosta þegar upp er staðið.
Bkv.
Magnús G.
14.01.2006 at 08:20 #538712Sælir…
Vil bara benda mönnum góðfúslega á það að ef þeir ætla að leigja sandblástursgræjur og loftpressur, að þá má reikna með mörgum mörgum þúsundum í það, og þar sem að þetta er eitthvað sem tæki 1 – 3 daga að þá er spurning hvort að það borgi sig??
Ég myndi eins og Hjörtur sagði, nota ætigrunn, það er fjandanum sterkara efni sé það notað rétt.
Mín reynsla af Hammerite er sú að ég myndi ekki nota þá málningu nema að nota ætigrunn undir. Þó svo að framleiðandinn segji að það sé óþarfi að grunna vegna ryðvarnareiginleika hennar.
Ætigrunnur er einhver albesti grunnur sem hægt er að nota í svona, og ekkert svo hræðilega dýr miðað við margt annað efni á markaðnum.
Kveðja
Siggi
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
