This topic contains 10 replies, has 1 voice, and was last updated by Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060 12 years, 9 months ago.
-
CreatorTopic
-
15.02.2012 at 14:50 #222579
Vefnefnd er að bæta við fleiri tenglum á forsíðu vefsins. Það sem komið er, er Umræður Deilda og Nýjir Pistlar. Auk þessa bætist við myndrænt auglýsingasvæði sem ætlað er fyrir ýmsar uppákomur á vegum klúbbsins. Síðan koma tenglar á nýjar myndir og að lokum fyrir ný myndskeið. Öll Þessi atriði verða í sér kössum eða reitum og eru neðst á síðunni.
Kv. SBS.
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
15.02.2012 at 21:28 #750073
sæll Sigurður
Er okkur deildarfélögum (sem þó erum félagsmenn) ætlað að nota sérstakan umræðureit, þeas umræður deilda, neðst á síðunni?
Eru virkar umræður þá ekki lengur fyrir deildarfélaga?Í tölvupósti sem mér barst í dag, eru rökin fyrir breytingunum að: "Þetta er gert til að opna betur almenn tengsl á milli félaga í klúbbnum."
Mér sýnist þetta leiða frekar til þess að loka almennum tengslum milli félaga í klúbbnum, þar sem allflestir skoða virkar umræður sem eru ofarlega á síðunni en eru ekki að scrolla niður í leit að þráðum. Þeir sem skráðir eru í deild eru líka félagar í klúbbnum.
Með öðrum orðum, okkur líður eins og það sé verið að henda okkur út í horn
kv
Björn Pálsson
formaður Eyjafjarðardeildar
15.02.2012 at 22:18 #750075Meyningin er nú að gera svo öllum líki. Það er gott að fá umræðu um þetta því þessi vinna okkar er fyrir félagsmenn gerð. Okkur hefur fundist að spjall deilda sé falið bak við á síðunni og erum við að reyna að koma henni á forsíðu. Þar sem þessi breiting er aðeins í byrjunarferli er ekki beint að marka staðsetninguna á reitnum.
Síðan er frekar plásslítil á breiddina og er erfitt að riðla efri hlutanum í einum grænum. Virkar umræður er auðvitað fyrir alla félagsmenn hvar sem þeir eru á landinu. Á vefnum eru deildarsíður og vilja margir ef ekki allir þróa þær þar í spjalli og myndum. Þess vegna erum við að koma þeim á framfæri á forsíðu en hver deild verður að þróa sína deildarsíðu eins og þeir vilja hafa hana.
Ég get vel skilið gremju að hafa reitinn neðst og út í horni. Nærtækasti möguleikinn er að færa auglýsingareitinn og setja spjall deilda þar í staðin. Það er erfitt að gera í þessu plássleysi svo öllum líki en þetta verður tekið fyrir á næsta vefnefndarfundi. Ég vil endilega fá álit félagsmanna á uppröðun reitanna en endanleg ákvörðun er hjá vefnefnd og reynir hún að gera sitt besta.
Kv. SBS.
16.02.2012 at 10:21 #750077Ég held að menn eigi nú ekki að líta svo á að þeir séu skyldugir til að halda sig utangátta og innan á sínum deilarþráðum, hinsvegar er má líta svo á að þarna fá deildirnar sitt "pláss" til að skjóta inn þráðum sem tengjast meira sinni deild, ræða sín á milli og svo geta að sjálfsögðu allir almennir félagsmenn fylgst með því og tekið þátt í umræðunni.
Séu menn frekar sáttir við að nota almenna spjallið undir þræði sem tengjast frekar deildunum, er það sjálfsagt mál að nýta það. Vefsíðan er fyrir félagsmennina sem nota hana og um að gera að skjóta athugasemdum að sem fyrst, í þessu opna samráðsferli, svo ekki þurfi að gera athugasemdir við breytingar sem þegar er búið að gera. 😉
kkv, Samúel
17.02.2012 at 18:51 #750079Núna virkar ekki tengilinn á forsíðu á nýjar auglýsingar, fæ bara auglýsingar en ekki [b:1fa8jpum]Nýjar[/b:1fa8jpum] auglýsingar.
17.02.2012 at 20:10 #750081Sæl öll.
Margt hefur verið gert á vefnum okkar, sumt afleitt og annað bara mjög gott. Aðskilnaður deildaumræðu er við fyrstu sýn ein versta hugmynd og framkvæmd sem vefnefnd hefur dottið í hug.
Margur gæti skilið þetta sem svo að "101 liðið" eigi vefinn og hinir landsbyggðar-púkarnir geta svo sem verið þarna líka… en í sér herbergi.
Mér finnst þetta fúlt, ljótt og illa ígrundað.
17.02.2012 at 21:15 #750083Já Erlingur, svona lítur þetta einmitt út. Og "samráðið" svipað og í kringum lokanir á fjallaslóðum. Margt gott hefur verið gert á þessum vef undanfarið, enn nú urðu vevnefndini i á "samráðs mistök"
Kv.
17.02.2012 at 21:18 #750085Það er greinilega ekki að fara vel í alla að deildaspjall sé ekki inni í ‘virkar umræður’.
Er þá ekki fínt að koma með tillögur? Hér eru tvær:
1. Deildaspjall komi með í ‘virkar umræður’. Þráðum sem þar birtast verði fjölgað. Flokkurinn komi líka fram t.d "Austurlandsdeild: Skúrabras" og "Vefsíðan: Umræður Deilda og fl."
Spurning hvað það er mikið mál að framkvæma það síðasttalda – finnst samt að það hljóti að vera hægt án stórkostlegra tilfæringa.2. (Þetta er kannski ekki auðvelt þó það sé eflaust hægt; einhvernveginn) Skráðir notendur geti auk þess að hafa virkar umræður auglýsingar og það allt, sér ramma með flokkum sem þeir vilja fylgjast með hvort sem það eru deildir, auglýsingaflokka eða spjallflokka.
kv.
ÞÞ
18.02.2012 at 21:36 #750087Ég er ekki alveg að fatta þessa umræðu, deildarþræðir eins og allir aðrir undirflokkar spjallsins koma inn í virkar umræður og hafa alltaf gert. Var einhvern tíman lokað á það ?
Mér finnst þetta flott breyting fyrir deildirnar, kominn tengill á forsíðuna beint inn í deildarflokkana í spjallinu. Mönnum er svo auðvitað í sjálfvald sett að nota þessa undirflokka eða bara almennu flokkanna.
19.02.2012 at 21:06 #750089[quote="SBS":34i30twa]Meyningin er nú að gera svo öllum líki. Það er gott að fá umræðu um þetta því þessi vinna okkar er fyrir félagsmenn gerð. Okkur hefur fundist að spjall deilda sé falið bak við á síðunni og erum við að reyna að koma henni á forsíðu. Þar sem þessi breiting er aðeins í byrjunarferli er ekki beint að marka staðsetninguna á reitnum.
Síðan er frekar plásslítil á breiddina og er erfitt að riðla efri hlutanum í einum grænum. Virkar umræður er auðvitað fyrir alla félagsmenn hvar sem þeir eru á landinu. Á vefnum eru deildarsíður og vilja margir ef ekki allir þróa þær þar í spjalli og myndum. Þess vegna erum við að koma þeim á framfæri á forsíðu en hver deild verður að þróa sína deildarsíðu eins og þeir vilja hafa hana.
Ég get vel skilið gremju að hafa reitinn neðst og út í horni. Nærtækasti möguleikinn er að færa auglýsingareitinn og setja spjall deilda þar í staðin. Það er erfitt að gera í þessu plássleysi svo öllum líki en þetta verður tekið fyrir á næsta vefnefndarfundi. Ég vil endilega fá álit félagsmanna á uppröðun reitanna en endanleg ákvörðun er hjá vefnefnd og reynir hún að gera sitt besta.
Kv. SBS.[/quote:34i30twa]Sæll SBS
ég biðst afsökunar á gremju minni, eftir að breytingarnar hafa gengið í gegn að fullu er ég mjög sáttur við útkomuna. Mér leist ílla á að hafa deildarspjall neðarlega á síðunni.kv
Björn Pálsson
19.02.2012 at 21:38 #750091Sæll Björn.
Þakka þér fyrir þetta. Við verðum ætíð góðir félagar í klúbbnum.
Kv. SBS.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.