FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Um loftdælur

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Um loftdælur

This topic contains 9 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of  Anonymous 20 years, 7 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 28.10.2004 at 16:14 #194746
    Profile photo of
    Anonymous

    Ég er að leita mér að ódýrri loftdælu og eina svoleiðis fann ég í Bílanaust áðan. Hún kostar um 6600 kr og tölurnar sem gefnar upp á henni eru: 22 l á mínútu, 150 psi og 10 bar. Hún er tengd í vindlakveikjarann.
    Ég var að vonast til að þið gætuð sagt mér eitthvað um hvað það tekur svona dælu langan tíma að dæla t.d. úr 5 í 20 pund í 30″ dekk.
    Fyrirfram þakkir, Jói

  • Creator
    Topic
Viewing 9 replies - 1 through 9 (of 9 total)
  • Author
    Replies
  • 28.10.2004 at 16:45 #507282
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Svo ég bæti nú aðeins meiru við þá sá ég aðra dælu í Olís sem á stóð: 250 psi og 18 bar. Er það að segja mér að hún dæli meira magni en hin eða ekki…? Hún kostar um 5000





    28.10.2004 at 17:02 #507284
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sæll

    Þegar þú kaupir loftdælu í bílinn þá er óhætt að segja að verð og gæði fara saman. Það er ekkert að ástæðulausu að menn hafa verið að kaupa sér dælur á tugiþúsunda.

    Bestu rafmagnsdælur sem þú kaupir í dag heita Fini en þær eru ekki svo dýrar. S.s. góð kaup en þær kosta engu að síður tæpann 30 þúsund kall.(held ég)

    Ég hef átt nokkrar "bensínstöðvadælur" sem hafa í sjálfu sér reynst bærilega en þær dæla engum 18 börum. Venjulegar iðnaðarloftpressur ná fæstar 10 börum. Dæla sem fer í samband í sígarettukveikjarann getur ekki verið að taka meiri straum en ca. 10 amper á meðan quickair 2 er varin með 40 ampera öryggi. Þ.e. sígarettukveikjarinn er varinn með 10-15 ampera öryggi.

    Ef þú ætlar að geta treyst á þennann búnað þá skaltu borga svolítið meira og fá þér góða dælu.

    Kv Isan

    P.s. L/min segir til um hversu miklu lofti hún dælir á minútu (lítrar á mínútu) en psi og bar segir til um hámarksþrýsting sem dælan er að ráða við. Ætli menn aki ekki jeppana sína að meðaltali í 20-25 psi svo að maður nýtir sjaldan 250 psi….





    28.10.2004 at 17:19 #507286
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Afhverju ekki að safna í nokkrar vikur og kaupa fini. Eða tímirðu ekki að kaupa dýra dælu. Eða hvað er málið??

    Efast um að þú getir fengið ágætis dælu fyrir 5-10.000 krónur. Svo er ekker leiðinlegra en að vera með lélegar græjur!!

    Jónas





    28.10.2004 at 17:37 #507288
    Profile photo of Elvar Níelsson
    Elvar Níelsson
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 649

    Sæll,

    Ég er sammála því að ekki sé vit í því að treysta einvörðungu á þessa dælu þegar þú ferðast einn. Þetta er eflaust góð dæla til að nota til vara ef alvöru dælan bilar.

    Kunningi minn er með svona litla dælu og 33" dekk. Hann er lítið lengur en 38" bílarnir með alvöru dælur að setja loft frá 5 uppí 12".

    Kveðja
    Elvar





    28.10.2004 at 18:10 #507290
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Ekki hef ég séð dekk sem er 250 psi þrýstingur í, ég fatta ekki alveg hvað framleiðendur eru alltaf að státa sig af 300 punda sígarettukveikjaradælum.

    meginmálið er að það eru lítrar per mínútu sem telja í þessu, ekki endinlega þrýstingurinn sem næst.

    á alvöru loftpressum td fyrir verkstæði er oftast gefið upp (dæmi) 800 lítrar inn per mín, 680 lítrar út v 8 bör per mín.





    28.10.2004 at 18:28 #507292
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Það sem ég er að pæla í er að…ég er Lödu og fer örugglega lítið út fyrir eyjafjörðinn ef ég ætla eitthvað að leika mér í snjó. Vantar bara eitthvað einfalt og ódýrt sem þarf ekki að vera hægt að treysta á því ég er aldrei langt frá bensínstöð. Bara svona svo ég þurfi ekki að keyra á malbiki eða nánast auðum götum með undir 5 pundum í dekkjunum.





    28.10.2004 at 18:52 #507294
    Profile photo of Helgi Þór Heiðarson
    Helgi Þór Heiðarson
    Member
    • Umræður: 11
    • Svör: 150

    Sæll

    Ég keypti í vor dælu hjá verkfæralagerinum sem heitir MPVsuperliner og hún er mæld 20 min og 19 sek að dæla 44" frá 2 psi í 20 psi. Hún kostaði rétt yfir 6000 kallinn. Hún er tengd beint á geyminn og er með 30A öryggi. Mæli með henni ef þú vilt fara ódýrt út úr þessu.

    Kveðja
    Helgi





    28.10.2004 at 19:47 #507296
    Profile photo of Vilhjálmur Ingi Halldórss
    Vilhjálmur Ingi Halldórss
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 86

    Ég var að taka úr bíl loftdælu sem er um 65 Amp. Kostar ný um 27.000 Fæst á 15.000. Er ekki með l/mín en var snöggur með 4 stk 44".
    Halldór 892 0080 eða Villi 862 0080





    29.10.2004 at 09:38 #507298
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Ódýr dæla ætti alveg að duga fyrir þínar þarfir eins og þú lýsir þeim. Það er annað að pumpa upp 30? Lödudekk en 38? eða 44?, þarf ekki að gera sömu kröfur. Ég er alveg sammála því sem hér er sagt að ofan, góð dæla gulli betri og Fini bestar af öllum rafmagnsdælum, en ódýr bensínstöðvadæla og hæfilegur skammtur af þolinmæði getur alveg dugað fyrir 30? dekk. Þetta er kannski frekar spurning um hvernig reynsla er á endingu á þessum dælum, sárt að þurfa að endurnýja þær aftur og aftur og vera kominn upp í meiri kostnað en Fini dæla.

    Annars [url=http://www.arctictrucks.is/template3.asp?PageID=1001:2i81b0v1]er hérna[/url:2i81b0v1] mjög athyglisverð loftdæluprófun sem Freyr í AT gerði einhvern tíman. Segir að vísu ekkert um endingu en heilmikið um afköst.

    Kv – Skúli





  • Author
    Replies
Viewing 9 replies - 1 through 9 (of 9 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.