Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Ultimate Build
This topic contains 228 replies, has 37 voices, and was last updated by Ingibjörg Erna Sigurðardóttir 9 years, 9 months ago.
-
CreatorTopic
-
13.08.2015 at 16:12 #226393
Jæja þá er komið að því.
Þessi verður rifinn og hann fær að halda hurðunum og gluggastykkinu óbreyttu…..
Verkefnalisti:
Lenging í unlimited
CJ 7-væðing (nýr plastframendi og auðvitað skottlokið og nýtt mælaborð..)
LS2 (430 hö)
Coilover + bypass framan og aftan. (fjöðrunarlengd : 30cm framan og 50cm aftan)
46″ barðar
hásingabreikkanir.
já og allt hitt sem fylgir… úff.Ég ætla að vera með smá build(smíða) þráð um jeppann minn hérna í spjallsvæðinu og bið ég því menn um að commenta aðeins um þennan bíl en ekki tapa þræðinum í eitthvað annað

Ég lofa mörgum skemmtilegum myndum um verkefnið og framvindu þess.
kv
Gunnar -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
18.08.2013 at 20:17 #378627
hehe

smá pása um helginafleiri myndir koma á þriðjudaginn

reyndar kom vélin+gírkassi+millikassi + fullt af öðru dóti til landsins í dag
fæ það bráðum
kv Gunnar
21.08.2013 at 09:12 #37862823.08.2013 at 16:57 #378629Smá update…
Búið er að rífa allt rafmagn sem tengdist fyrri vél úr boddýinu, ég sé að ég var greinilega mjög þolinmóður maður þegar ég setti þessa vél í fyrir 11 árum síðan…rafmagnshrúgan, jæja það kemur mynd seinna.
Byrjað er að smíða hásingarnar og klárast afturhásingin um helgina líklegast…. síðan verður fremri tækluð.
kv
Gunnar
24.08.2013 at 23:00 #378630Flottur þráður Gunnar, gaman að því þegar menn setja svona breytingasögu inn á þráðinn – hleypir lífi í vefsíðuna sem ekki veitir af…meira meira…
Logi
R-148
25.08.2013 at 10:57 #378631Má spyrja hvar þú keyptir nýja kramið?
25.08.2013 at 19:57 #378632kramið kemur beint frá Ameríku hrepp. vél ls2. skipting 4l60E og millikassi np231c
afturhásingin breikkaðist í 66″ og verður síðan með 1.5″ spacerum til að ná 69″ lokabreidd
bremsudiskarnir koma af wj cherokee og ál bremsudælurnar frá renault hehe allt þarf þetta að vikta sem minnst
myndir koma fljótlega af því.
kv gunnar
27.08.2013 at 10:26 #378633Er langt í að hann fari að standa í hjólin? Það væri snilld að fá þennan á afmælissýninguna núna í haust sem verkefni í smíðum.
Bjarni G.
27.08.2013 at 11:45 #378634Sælir,
ég er einmitt búinn að vera í góðu sambandi við Krissa og Tedda um það hvort hann náist á hjólin, en það er orðið ansi tæpt á því að það takist, það er það mikil smíði eftir í grindinni til að hann standi í hjólin en allt er opið ennþá…. í nokkra daga í viðbót.
kv
gunnar
27.08.2013 at 19:38 #37863527.08.2013 at 20:37 #378636@Gunnar Ingi Arnarson wrote:
ég er einmitt búinn að vera í góðu sambandi við Krissa og Tedda um það hvort hann náist á hjólin
Já ég vissi að þeir voru búnir að tala við þig, vildi bara pota í þig opinberlega 😉 Það getur unnist ótrúlega mikið á fáum dögum ef maður er undir pressu, svona sýning er fín pressa ef þú ákveður að vera með

Bjarni G.
28.08.2013 at 23:29 #378637@Gunnar Ingi Arnarson wrote:
Annað sett af felgum þarna eru 16″ háar og 16″ breiðar en þær fara undir WK cherokee sem verður einnig breytt á 46″ með 426cc vél og coilover skemmtilegheitum.
kv
GunnarMig langar til að vita meira um þetta verkefni, við erum að tala um 2005 bíl eða nýrri með 5.7 lítra HEMI er það ekki ? …… kannski bara efni í nýjan þráð !
29.08.2013 at 01:18 #378638@agnarben wrote:
@Gunnar Ingi Arnarson wrote:
Annað sett af felgum þarna eru 16″ háar og 16″ breiðar en þær fara undir WK cherokee sem verður einnig breytt á 46″ með 426cc vél og coilover skemmtilegheitum.
kv
GunnarMig langar til að vita meira um þetta verkefni, við erum að tala um 2005 bíl eða nýrri með 5.7 lítra HEMI er það ekki ? …… kannski bara efni í nýjan þráð !
426cc Hlýtur að vera srt8 Grand, áhugavert, mjög áhugavert…sem og þessi wrangler smíð : )
30.08.2013 at 16:56 #378639Þetta er 5.7 hemi cherokee, skipt verður um blokk og sett 6.1 síðan strókuð í 426 7.0 lítra hp sirka 550-580 með öflugum togás, ef heitari ás yrði valinn væri þetta 680 hp rella. Það verður líklegast ekki build þráður um þennan bíl.
Annað tengt þessum þræði.. hehe
reif gamla rafmagnið sem fylgdi 4.7 vélinni úr bílnum… ég greinilega nennti ekki að hreinsa mikið úr því þegar ég var tvítugur að setja þetta í
þetta viktaði um 7 kg… af hágæða koparþráðum og tölvubúnaði.. sem kom innan úr bílnum.annað, afturfjöðrunin fékk að fjúka undan bílnum, ps ég á 5 link stífur úr ryðfríu ef einhver hefur áhuga.. 4 linkið er með cherokee fóðringum sem þyrfti mögulega að skipta út… annars eru ódauðleg gúmmí í hliðarstífunni. prís : 5 þús.. ps þetta er ekki fyrir bíla yfir ca 2 tonn… þetta er smíðað létt hehe. en dugir vel fyrir 1600 kg 41″ 250 hp bíl..
Eingöngu stífur í boði.. festingar þarf að smíða.góða smíðahelgi
Gunnar
04.09.2013 at 08:50 #378640Jæja nú fer hönnunin að taka enda… já svona er þetta gert árið 2013…
Allt teiknað upp í þrívídd, hásingin látin fjaðra eins og demparar leyfa , ótrúleg þessi nýju forrit = Autocad inventor. Þetta gerir hann Guðmundur hjá http://www.gjjarn.com Síðan eru allar stífur og festingar álagsprófaðar. Eins og einn sagði , það verður ekki farið inn í bílskúr og slökkt ljósin og sett 46″ undir líkt og maður gerði þetta í gamla daga. Í dag er hægt að sjá fyrir flest af þeirri endursmíði sem maður þurfti að gera því maður var að setja eitthvað saman sem aldrei áður hafði verið gert á þeim bíl og því sparar þetta bæði tíma og peninga.
04.09.2013 at 08:53 #37864104.09.2013 at 09:56 #378642Verður efri stífan skrúfuð saman? Ég held að hún liðist fljótt í sundur í keyrslu. Álagsstefnan á henni er stanslaust að breytast fram/aftur og hægri/vinstri. Svoleiðis losar upp á öllum boltum á mettíma. Það þarf annaðhvort að sjóða hana eða útbúa stýringar þar sem hún er boltuð saman. Kannski eru þið búnir að sjá við því öllu.
Bjarni G.
04.09.2013 at 10:14 #378643Þetta er svo hrikalega flott hjá ykkur að maður þarf að skipta um nærbuxur eftir að hafa skoðað þetta

04.09.2013 at 11:04 #378644Hvað verður þessi A-Stífa þung?
og eins langstífurnar?kv
Maggi
04.09.2013 at 11:28 #378645Sæll Bjarni,
Ég var með A stífu á mínum bíl í 6 ár og kúluliðurinn á henni var boltaður með 2 boltum 10mm og splittróm. Ég smíðaði flans.. úr tveimur flatjárnum og með engum stýringum og þetta þagði öll þessi ár, þannig að ég hef ekki miklar áhyggjur að þetta liðist í sundur. Allavega er álið í þessu svipað hart og stál 52 og það gefur sig seint þó svo að þetta gæti jú losnað en þá skiptir sköpum að götin séu 100% rétt og þétt og fylgjast vel með þessu. Það er ekki hægt að sjóða þetta ál. Það eru 45mm af áli í kringum hvern bolta og því þarf mikið að ske til að það fari í sundur.
Neðri stífurnar vikta 11kg hvor, þær eru smíðaðar extra sterkar til að þola það að þegar bíllinn kemur upp úr skör í á að þær þoli viktina á bílnum, semsagt þola það að bera bílinn.
Kiddi það er útsala í Dressmann á naríum
04.09.2013 at 13:20 #378646Jæja 100% réttar þyngdir.
Neðri stífurnar vikta hvor 11.5 kg með boltum og fóðringum.
A stífan er 10.4 kg með boltum og fóðringum.Dempararnir vikta um 10 kg per stykki, + gormar á öðrum.
kv
Gunnar
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.












