This topic contains 21 replies, has 1 voice, and was last updated by Grimur Jónsson 15 years, 9 months ago.
-
Topic
-
ég er með smá spurningu varðandi drifsköft, liði og legur..
málið er það að eftir að ég setti bílinn minn á fourlink að aftan þá tókst mér ekki alveg að halda sama gráðufjölda á hjöruliðnum uppvið gírkassa og útvið hásingu.
þetta veldur skemmtilegum víbring auk þess sem blessaður bíllinn er að eyðileggja bæði pinnjónsleguna og leguna í millikassanum.
.
spurningarnar eru:
1. get ég eitthvað bætt stöðuna í þessu máli með því að setja tvöfaldan lið á drifskaftið án þess að breyta hallanum á hásinguni þannig að neðri liðurinn sé í beinni línu við skaftið?
2. ef það er ekki hægt, er þá eini möguleikinn til þess að laga þetta að velta hásinguni fram þar til gráðurnar við drifskaftið eru eins bæði uppi og niðri? (þá með tilheyrandi lagfæringum á loftpúðafestingum ofl).
.
endilega komið með hugmyndir og/eða svör.lalli
p.s. með 2falda liði að ofan, hver í fjandanum er tilgangurinn með neðri liðnum í svona setuppi ef hann þarf alltaf að vera 0° á skaft? má þá ekki bara bolta þetta helvíti fast beint við pinnjóninn?
You must be logged in to reply to this topic.