Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Túrbó boost
This topic contains 12 replies, has 1 voice, and was last updated by Sveinbjörn Sveinbjörnsson 19 years ago.
-
CreatorTopic
-
23.11.2005 at 13:47 #196698
sælir
Veit einhver hvað org túrbína við 2.8 l Patrol vél (89-97) er ca að boosta frá framleiðanda?
kv
Aggi -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
23.11.2005 at 14:57 #533786
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Mig mynnir að það séu ein 7 psi.
ÓE
1bar=14,5psi
23.11.2005 at 17:07 #533788
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
er að boosta 0,7 bar sem er ca. 10-11 psi 2.8 l Patrol “95, þekki ekki standard boostið, kv.Benedikt.
23.11.2005 at 17:11 #533790Orginal er þetta að boosta ca.10pund…en hægt að láta hana blása uppí 15psi.
23.11.2005 at 17:27 #533792Takk fyrir svörin, ég sjálfur hélt að það væri 7-8 psi. Túrbínan hjá mér er að blása um 12-13 psi og því líklegt að það sé eitthvað búið að eiga við kellinguna. Er það ekki wastegate ventillinn sem stýrir þessu ?
kv
Aggi
23.11.2005 at 22:37 #533794Í mínum var upphaflegur hámarksþrýstingur 0,55 bar eða tæp 8 psi.
Með því að setja ca 1,5 mm skífu á milli belgsins (sem stýrir wastegate ventlinum) og brakketsins þá fór þrýstingurinn í 0,9 bar eða tæp 13 psi.
Við að aftengja belginn (og þar með wastegate ventillinn) fór þrýstingurinn í tæp 20 psi. eða 1,4 bar, að vísu eftir aðrar aðgerðir líka.
Kveðja.
Elli.
23.11.2005 at 22:58 #533796ég er með patta 91 með 2,8 og hann er að blása hjá mér um 1,2 bör og svo er ég með loka eða ventil veit ekki alveg hvort á að kala það og með honum ef ég opna firir hann þá næ hann að blás um 1,8 til 2 bör en ég þori ekki að nota hann er bara búinn að prófa einusinni að opna firir hann ætli mani sé óhæt að nota hann???
23.11.2005 at 23:15 #533798
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Bara svona spurning fyrir mig, hvað er þolanlega safe að láta þetta blása og aðferðin við að auka þrýstinginn? Er mikill kraftmunur við nokkur psi í patrol? kv. Benedikt.
23.11.2005 at 23:17 #533800Maður skyldi aldrei fikta með þrýstinginn á túrbínu án þess að hafa afgashitamælir uppsettann. Í sjálfu sér gerir hækkun á túrbínuþrýsting ekki mikið nema ef aukið er við díeselmagnið í leiðinni, nema ef búið hefði verið að auka við olíumagnið áður og loft vantaði til að brenna umframeldsneyti. Að vísu verður bruninn eitthvað hreinni og eitthvað bætist við aflið en aðalkikkið kemur ef aukið er við olíumagnið. En það borgar sig ekki að fikta við þetta nema með afgashitamæli. Believe me, I learned it the hard way. Held að allt uppfyrir 0,95-1,00 bar (14,5 psi) sé risky og alveg örugglega ef ekki er afgashitamælir, styttir pottþétt líftíma vélarinnar.
kv Agust Thor.
23.11.2005 at 23:31 #533802Það þarf ekki að bæta mikilli olíu við olíuverkið til að ná túrbínuþrýstingnum upp í ca 1 bar. Á olíuverkinu er membra sem tengist við ferskloftshlið túrbínunar og gefur þannig aukið olíumagn þegar þrýstingur fer upp. Nú er það svo að ég er búin að prófa þetta í nokkrum bílum og allir hafa þeir verið að opna Wastegate ventilinn í kringum 0,5 bar þrýsting. Ef þú setur stífari gorm í wastegate ventilinn þannig að hann opni við ca 1,0 bar þá fylgir olíuverkið með á eftir. Einnig hef ég kannað við hvaða þrýstingi öryggislokinn framan á soggreininni er að opna og það hefur verið í kringum 1,2 bar. Að mínu mati er ekki ráðlegt að fara upp fyrir 1 bar. Þeir bílar sem ég hef hækkað túrbó þrýsting hafa menn verið ánægðir með aflaukningu og það sem meira er að vélaranr hætta að mökkreykja við álag. Þannig að ég vill meina að air fuel ratio ventillinn í olíuverkinu geti koverað 1 bar. Ætli menn hins vegar hærra en það þarf að fara að skrúfa upp olíu á verkinu.
23.11.2005 at 23:32 #533804ef svarti reykurinn aftan úr bílnum er mikill ættirðu að finna mun á krafti við að auka boostið. Því svarti reykurinn segir til um að það sé að fara of mikil olía inn á vélina miðað við loftið. Svo ef þú eykur loftið þá brennu þessu umfram olía og þú færð eitthvað aðeins meira afl.
Svo er bara að stilla þetta saman svo maður sé ekki renna óþarfa olíu þarna í gegn. Hún er víst nógu dýr.En veit þá nokkur hvað er óhætt að láta súbaru túrbínuna blása á 2.4 diesel? Ég veit ekkert hvað hún er að blása nú þegar og ætla ekkert að eiga við hana nema með öllum mælum
23.11.2005 at 23:41 #533806en eit sem mig lagar að spirja um er mér óhæt að nota kranan sem var setur við túrbæinuna og ef hann er opnaður í botn þá slær hún ekki út
24.11.2005 at 23:25 #533808Það ættu menn ekki að gera nema með mikilli varúð og þá helst að hafa öryggisloka sem blæs út. Það eru dæmi um að vélar hafi sveifarásbrotnað þegar boostið fer upp úr öllu valdi. Einnig verður mikið álag á stangarlegur og heddpakningar.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.