Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Tröllin/ þyngd
This topic contains 17 replies, has 1 voice, and was last updated by Anonymous 18 years ago.
-
CreatorTopic
-
13.01.2007 at 18:44 #199369
AnonymousMig langaði að forvitnast hvað 44″ og uppúr eru að vikta þá helst pallbílarnir ?
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
13.01.2007 at 21:19 #575314
Þeir virka ekkert við hliðina á patrol. Þú finnur ekki betri bíla í snjó en patrol 89 til97 á 38"
13.01.2007 at 21:22 #575316minn bill er á 44" hann er 2200 + farangur í lengri ferðum þetta hleypur svo til um hundruðir kiloa eftir stærð og dekkjum
Ps patrol á 38 er þungur hlunkur og þarf 44"
13.01.2007 at 21:28 #575318Hafa menn ekki verið að tala um 4-5 tonn klárir á fjöll með öllu og samt með ca.100 hö.á tonn(eða helmingi meira afl en patrol)
Kveðjajeepcj7
13.01.2007 at 22:10 #575320Minn Ford F-250 á 46" dekkjum viktaði klár á fjöll um daginn með 350 lítra af olíu 4,3 tonn.
Hann er samt að ekkert að eyða miklu meira enn LC 80 bíllinn hjá Benna Akureyring. Samt er vonlaust fyrir hann að reyna að ferðast á sömu yfirferð og ég.
Hafið ánægulega helgi.
LG
13.01.2007 at 22:13 #575322Svona svona.
Einga öfund lúddi minn.
13.01.2007 at 23:01 #575324Það er nú skiljanlegt að hann eyði ekki meira en 80 Cruser, þegar hann er dreiginn dauður um alla jökla ;’) Þú munt sjá ljósið einhvern daginn Lúddi minn, og átta þig á að japanskt er málið, skilar sér allavega frá A – B yfirleitt.
kveðja, Guðni
13.01.2007 at 23:02 #575326Hvað eru svona Fordar síðan þungir original?
kv. Kiddi
13.01.2007 at 23:38 #575328
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
feingi mér frekar lödu sport en patrol !
kv Hjalti
14.01.2007 at 09:54 #575330Meginreglan hefur verið sú að dodsinn er léttari en lettinn og fordinn. Það er mjög mismunandi hvað þessir bílar vigta, léttasti bíllin er sennilega 1500 ram með 5.7 Þeir geta verið vel undir 2.5 t á 44" og drifa þá venjulega ágætlega, 350 ford er svo lang þyngstur eða nálægt þriðjungi þyngri þó svo hann sé ekki neitt stærri að ráði. Svoleiðis bíla er eiginlega varla hægt að nota í snjó á 44" því þeir drífa einfaldlega ekki. Nú er mér kunnugt um að verið sé að setja gamlan cumins ram á 46" það er bíll sem gæti orðið undir 3 t. Það er þá meira en tonni léttari bíll en bíllin hans lúters. Þú þarft að fara að drífa þig í 49" uppfærslu svo einhverjir sveitalúðar rúlli ekki yfir þig Lúter. : )
14.01.2007 at 10:35 #575332
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Björgunarsveitin Ingunn á Laugarvatni var með 350 Ford ´96 á 44" og hafði sá bíll mikla drifgetu og var mjög öflugur í snjó og það geta margir vitnað um það. Erum svo með 2003 bíl núna, 250 Ford og er hann bara að virka ágætlega líka, en mér fannst gamli vera seigari. Tímarnir breytast og tækin með og þróunin orðin þannig í dag að menn fara enþá lengra á þessum bílum með stærri dekkjum.
En því miður höfum við ekki viktað bílana tilbúna á fjöll.P.S Þegar á reynir snýst þetta allt um bílstjórann, það felur sig enginn á bakvið stýrið og þykist geta keyrt…..alveg sama hvaða bíll það er.
Amerískar kveðjur
Eyþór
14.01.2007 at 12:10 #575334Sælir félagar
Ég var niður á höfða á föstudagskvöldinu, og sá þar tvo Dodge Ram… annan 1500 og síðan 2500 bíl, 1500 bíllinn var af eldri týpunni og sýndist mér á 46" hlemmum… Sá síðari. alveg splunkunýlegur að sjá (nýja boddíið) 2500 var á 49" að mér sýndist… en það var dimmt og þeim lá eitthvað á þessum tröllum..
Eða hugsanlegt að sá gamli hafi verið 2500 líka… frekar dimmt.veit einhver eitthvað um þessa félaga tvo.
kv
Gunnar
14.01.2007 at 13:17 #575336Það stendur einn 1500 Ram bensín á bílasölu AT og er til sölu. Það er a.m.k. einn nýlegur RAM 2500 til á 46" (blár) og svo er til einn silfurlitaður 3500 bíll held ég á 49". Svo veit ég um a.m.k. einn 2002 breyttan fyrir 44" (ljósbrúnn minnir mig) en sá ekur um á 41" þessa dagana….
Sástu kannski einn af þessum ?
kv
AB
14.01.2007 at 13:43 #575338Gaman að sjá allan þennan áhuga á USA pickuppum sem komnir eru á stóra hjólbarða. Þetta eru ofsalega glæsilegir bílar sem vonandi verður framhald á í breytingu, það eru ekki margir stórir komnir á 46-49" dekk.
Annars sá ég einn hvítann Patrol nýlegann að mér sýndist í gær ók um á 44" dekkjum, getur einhver gefið mér nánari upplýsingar um hann?
LG
14.01.2007 at 14:25 #575340En ég var eiginlega að tala um gamlan cumins 1993 eða eldri eins þennan sem mér finnst hafa mikinn sjarma yfir sér eini gallin við þessa bíla er að það er helvítis hávaði í þeim.
[img:2xs1x130]http://www.classytrucks.usa-hero.com/Dodge/dodge.johnfox.jpg[/img:2xs1x130]
14.01.2007 at 14:51 #575342Minn er að vigta 3.2 tonn með ca. 100-150 l af olíu á 49"
Krossdal
14.01.2007 at 15:17 #575344[img:2jus24qm]http://www.ntwonline.com/uploadedimages/xxIM000771.JPG[/img:2jus24qm] þá ekki næst,54 tommu bogger.
Kveðja jeepcj7
14.01.2007 at 22:04 #575346
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
þetta er örugglega snilld, ég get ekki beðið eftir að prófa svona 46 49" græju í snjó, endalaust power og lúxus dauðans að hlammast um í þessu, hef keyrt svona pikka með 5 til 10 tonn í eftirdragi ca.200.000 km og ekkert vesen, eyðslan er ekkert svo slæm miðað við hverju apparatið skilar, ég segi bara rock on, þessir bílar eru komnir til að vera.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.