Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Trexxus 39,5″
This topic contains 10 replies, has 1 voice, and was last updated by Ásgrímur Stefán Reisenhus 20 years ago.
-
CreatorTopic
-
09.04.2005 at 02:23 #195808
Sælir
ég hef kanski ekki verið að fylgjast nógu mikið með en er það rétt að þessi dekk séu að hvellsprynga og með fleiri leiðinlega galla????
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
09.04.2005 at 17:40 #520836
Sæll Bassi
Framleiðandi gefur upp að ekki megi hafa undir 35 psi í dekkjunum og þess vegna spryngi þau(38") allavega.
Í DV byrtist grein um þetta og ástæður þess að þau eru að springa og vill framleiðandi meina það að loftleysi sé eina ástæðan fyrir því að þau spryngi enda er víst hætt að flytja þessi dekk inn út af öllum tilfellum hér á landi. (Vona að ég sé að fara með rétt mal)
09.04.2005 at 19:57 #520838Gildir þetta ekki um öll Super Swamper dekk, er Trxus eitthvað spes?
-Einar
09.04.2005 at 21:42 #520840Ég hef heyrt um 38" TrXus dekkin, þau hafa reynst hættuleg og þekki ég það að eigin raun (eða konan) þar sem 2 stk hvellsprungu hjá henni í kvennaferðinni.
Enn einnig hef ég heyrt að annað gildi um 39,5" og 44" TrXus þau hafa ekki verið að hvellspringa og hef ég talað við nokkra sem aka um á þeim stærðum og eru þeir mjög ánægðir og einhverjir hafa sagt mér að annað lögmál gildi um þær tvær stærðir.
Mér myndi mikið langa til að þeir GVS menn myndu kannski svara því hér á vefnum hvort þeir eru hættir að panta öll TrXus dekk eða bara 38" dekkin.
Enn gleymum ekki félagar að þeir í GVS tóku sjálfir þá ákvörðun um að hætta að flytja inn 38" af fenginni reynslu
Kveðja
Lúther
10.04.2005 at 00:02 #520842Ég sé að það er LC á uppboði hjá TM þessa helgi, ein myndin af honum sýnir 38 trexus sem lítur út fyrir að hafa hvellsprungið.
Þar sem bæði spjall og myndakerfið hér er ekki upp á marga fiska þá er einfaldast að skoða myndina bara hjá TM.
http://tmnotes.tmhf.is/brunnar/utbod.ns … M820-9.jpgKannski er rétt að fara að skrúfa þetta undan áður en fleiri óhöpp verða?
10.04.2005 at 17:57 #520844Eftir því sem mér skilst á fréttum eru það eingöngu 38" dekkin sem eru svona gölluð en hvorki 39,5" eða 44". Allavega er ég núna á 39,5" trxus sem eru orðin töluvert slitin og hafa bara reynst vel.
Kv Hjalti
22.04.2005 at 11:11 #520846Ég er nýbúinn að kaupa 39,5 trxus og ætla að nota þau sem sumardekk er einhver hætta á ferðum með þessi dekk . Þetta eru auðvitað ekki radial.
22.04.2005 at 11:28 #520848Þessi vandamál tengjast innri byggingu dekksins frekar en mynstrinu. Því getur vel verið að diagonal dekkin séu í lagi, sérstaklega ef leiðbeiningum framleiðanda varðandi loftþýsting er fylgt. Af sömu ástæðu myndi ég gera ráðfyrir að það að radial dekk hvellspringi eftir nokkurra mánaða notkun, ef þau eru notuð úrhleypt, eigi jafnt við hvort sem mynstrið heitir Irok, Trxus, SSR, eða eitthvað annað.
En er ekki frekar óhagstætt að nota diagonal dekk sem sumardekk, manni hefur skilist að þau endist mun minna og séu ekki eins rásföst og radíal dekk?
-Einar
22.04.2005 at 16:23 #520850Sælir,
Varðandi 39,5" Trxus þá hefur Halli "Ditto" keyrt á þessum dekkjum vandræðalaust á sínum Pajero síðasta árið og er mjög ánægður með þau.
En varðandi slit – hafa menn einhverjar sögur eða prófanir sem sýna hvort og þá hversu mikið diagonal dekk slitna meira en radial ?
Ég er mikið að spá í að keyra minn bíl bara á 44" DC í sumar – mér finst fátt sorglegra en að sjá bíla á minni dekkjum en þeir eru breyttir fyrir og langar því alls ekki að setja bílinn á 38" – Spurning hvort maður spæni gangnum þá upp á einu sumri eða hvort þetta endist eitthvað….
Það vantar eiginlega einhver 40 – 42" fínmunstruð dekk til að vera á – þetta má ekki vera of gróft upp á hávaða.
Benni
23.04.2005 at 18:25 #520852Reynslan þótt stutt sé er ágæt var á 38 haugslitnum mudder á sumrin þau voru reyndar rásfastari en ekki jafn kringlótt , svo vildi ég aðeins meiri hæð því bíllinn er lágt gíraður .Svo eru 38 tommu dekkin mjög lítil undir bílnum en þessi aðeins skárri . Mér var reyndar sagt þegar ég keypti þau að það heyrðist ekkert í þeim og þau væru alveg kringlótt en það afsannaðist á nokkur hundruð metrum.
03.05.2005 at 23:39 #520854jæja nú get ég loksins svarað .það hafa ekki komið fram nein vandamál með önnur trxus dekk en 38×15,5r15 svo þú þarft ekki að hafa áhyggjur af þeim.
kv Ási
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.