FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Toyotu meistarar?

by Hjörtur Logi Dungal

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Toyotu meistarar?

This topic contains 10 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Atli Eggertsson Atli Eggertsson 17 years, 1 month ago.

  • Creator
    Topic
  • 05.03.2008 at 10:39 #202024
    Profile photo of Hjörtur Logi Dungal
    Hjörtur Logi Dungal
    Participant

    Þar sem maður er algjör nýgræðingur í svona málum, þá lærir maður víst ekkert nema spurja.

    Er með Toyota 4Runner 3.0 V6 ’94 á 35″ og hann er svo hundleiðinlegur í utanbæjarakstri, alltaf að skipta sér þegar maður er að lulla á löglegum hraða, tel nokkuð víst að hann sé bara á orginal hlutföllum (er það ekki 4.10) og var að velta fyrir mér hvort 4.56 væri ekki hentugra?

    Ég sá auglýsingu hérna inni með slíka köggla til sölu úr Hilux 8″ drifi og var að velta fyrir mér hvort þetta passaði á milli?

  • Creator
    Topic
Viewing 10 replies - 1 through 10 (of 10 total)
  • Author
    Replies
  • 05.03.2008 at 12:43 #616574
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ef mig misminnir ekki, þá var 4runner með ssk annaðhvort með 4,56:1 eða 4,88:1.
    Mæli með að þú tjakkir bílinn upp að aftan á, minnir að bæði hjól verði að vera á lofti, (útaf LSD dótinu) og snúir hjólinu einn hring á meðan telur þú hve marga hringi pinjónninn snýst. Ættir að fá út 4,5 hringi eða rétt tæpa 5 (fyrir 4,88) eða rétt svo rúmlega 4 (fyrir 4,10, þykir þó hæpið að 4,10 hafi verið í 4runner, minnir að hiluxarnir hafi verið þeir einu sem komu á 4,10 og svo þeir örfáu annarar kynslóðar rönnerar sem komu með 2,4EFI (22RE))
    .
    Eitthvað grunar mig að 4,88 ætti að vera alveg nóg fyrir ssk 4runner á 35", þó ég þori ekki að fara með það, enda aldrei átt við slíkan. (veit bara af einum á 35" ssk með 4,88hlutföll og virkar þokkalega).
    .
    8" toyota úr hilux passar ekki á milli NEMA það sé úr IFS bíl, og jafnvel þá, myndi ég ekki taka það drif því það er ,,veikara“ drif. (Veit ekki hvort það sé sláandi munur, sverari legur í V6 drifinu).
    Er reyndar ekki *alveg* viss á að það passi en ég held samt því öxlarnir eru að ég held þeir sömu.
    .
    Annars er ég með bók um þetta hérna einhverstaðar á flækingi sem þér er velkomið að blaða í hana ef þú vilt.
    .
    Kkv, Úlfr.
    E-1851
    S:848-2317
    P.S. Ég á einhverstaðar framdrif með 4,56:1 ef það er 4,10:1 eða jafnvel 4,30:1 (sem mér þykir afar hæpið reyndar).





    05.03.2008 at 13:38 #616576
    Profile photo of Hjörtur Logi Dungal
    Hjörtur Logi Dungal
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 184

    nú verð ég aðeins að spurja meira, en ég stóð í þeirri meiningu að bíllinn væri ekki með LSD þar sem hann spólar á öðru í góðum festum, ætti hann ekki að spóla á báðum með LSD?
    .
    svo var ég að muna að ég á einhversstaðar Haynes manuallinn fyrir þennan bíl, stendur ekki þar hver hlutföllin eru í þessu?
    .
    það er ekki hægt að kvarta undan virkni, hún er svo sem ágæt, en ástæðan fyrir þessum stöðugu skiptingum á ca 90 km/h er klárlega vegna þess að vélin er bara lullandi í ca 2000 rpm og nær því ekki að halda sæmilegum snúningi og fer að erfiða við minnstu breytingu á undirlagi.
    .
    kærar þakkir fyrir gott svar og vonandi bætist eitthvað meira við í viskubrunninn í framhaldi af þessu.





    05.03.2008 at 13:53 #616578
    Profile photo of Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Participant
    • Umræður: 124
    • Svör: 2697

    [u:1otaepau][b:1otaepau][url=http://home.4x4wire.com/erik/diffs/:1otaepau]Hér[/url:1otaepau][/b:1otaepau][/u:1otaepau] eru sennilega meiri upplýsingar en þú kærir þig um :)
    -haffi





    05.03.2008 at 18:31 #616580
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    LSD er = tregðulæsing. Þessar læsingar svíkja og það getur vel verið að það sé tregðulæsing í hjá þér. Þó svo að hann spóli á öðru. Það er einmitt eiginleiki tregðulæsinga að svíkja og þá sérstaklega ef á þarf að halda.
    Niðurstaðan tregðulæsing = drasl sem á heima hjá Góða hirðinum sem blómavasar eða öskubakkar, allt eftir smekk





    05.03.2008 at 19:41 #616582
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Er það ekki bara fínt á 90KMH með OD á ?? Myndi frekar halda að það væri eitthvað að stríða þér með skiptinguna, pikkið eða eitthvað svoleiðis eða jafnvel overdrive relayið.

    Ég er með óbreyttan Grand Cherokee sem mallar 1800Rpm á 90 og skiptir sér ekki niður á leiðini austur fyrir fjall í crúsinu, tekur ekki einusinni lockupið af í skíðaskálabrekkuni. Ég myndi kíkja betur á skiptinguna.





    05.03.2008 at 19:55 #616584
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Sko… það er ekkert flóknara en það að vinnsla í Grand Cherokee annarsvegar og Toyota 4Runner V6 hinsvegar, er bara engan veginn samanburðarhæf!!! Kaninn nýtur þess að lulla niður í rauðan dauðan en þessi japanska rella gerir ekki nokkurn skapaðan hlut nema í hvínandi botni! (já ég hef keyrt svona bíl.. og langt frá því hrifinn af vinnslunni!)
    Það væri kannski bara "lausn" að sleppa því að keyra í overdrive??





    05.03.2008 at 20:15 #616586
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Geri mér alveg fyllilega grein fyrir því að Grandinn hefur meira að hnoða úr en toyotan en hann er líka á 3.73 hlutföllum til að jafna leikinn aðeins. Svona rönner á alveg að halda 90 án þess að vera skipta sér upp og niður á 2000sn vandræðalaust. Ég myndi skjóta á það á miðað við 2000rpm í 90 í OD þá væri bíllinn annað hvort á 4.88 eða 5.29 hlutföllum.





    05.03.2008 at 21:39 #616588
    Profile photo of Atli Eggertsson
    Atli Eggertsson
    Participant
    • Umræður: 220
    • Svör: 1627

    4Runner V6 ssk. kemur orginal á 1:4,56 hlutföllum og 29" dekkjum og er hann frekar laus í OD og ekki batnar það við að setja hann á stærri dekk.
    .
    Þetta þíðir að þegar bíllinn er kominn á 35" dekk að þá er drifhlutfallið um 20% of hátt, ætti þá að vera um 1:5.50 svo það sé í samræmi við bílinn eins og hann var orginal.
    .
    Það eru ekki til 1:5.50 hlutföll þannig að þú verður að verlja á milli 1:5.29 eða 1:5.71, mæli með frekar 1:5.29 eða jafn vel 1:4.88
    .
    Sjálfur er ég á 38" ssk. V6 4Runner og nota hlutfallið 1:4.88.
    Kostir: Mjög sterkt, er til orginal út t.d. LC 70. og minni eyðsla á langkeyrslu, því snúningur fer niðru fyrir 2000 sn/mín á 100km/h
    Gallar: Þungur af stað og mæðir meira á ssk.
    .
    Sjálfskiptingarnar í 4Runner eru mjög góðar og þú þarft ekki að hafa áhyggjur af henni, nema að heitthvað slys hafi orðið með hana. Þá mundi það ekki lýsa sér sem erfiðleikar að hanga í OD.
    .
    Lausnirnar eru þá:
    1. Reyna að æfa sig að keyra þannig að hann tolli í OD, sjálfur er ég kominn með gott lag á því.
    2. Skipta út 1:4.56 fyrir t.d. 4.88, 5.29 eða 5.71.
    3. Sætta sig við þetta og nota "O/D off" meira, því þá læsri hann sér í 3. gír sem er skárra enn að hafa hann alltaf snuðandi á milli 3. og 4. Gírs.
    .
    Kv. Atli E.





    06.03.2008 at 16:58 #616590
    Profile photo of Hjörtur Logi Dungal
    Hjörtur Logi Dungal
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 184

    rosalega er gott að fá svona greinagott svar frá einhverjum sem greinilega veit hvað hann er að tala um.

    en nú verður spurningaflóðið að halda áfram,
    hvað er ásættanlegt að borga fyrir svona hlutföll, eða köggul með 1:4.88 eða 1:5.29?

    Enn og aftur, kærar þakkir fyrir svörin.





    06.05.2008 at 19:36 #616592
    Profile photo of Atli Eggertsson
    Atli Eggertsson
    Participant
    • Umræður: 220
    • Svör: 1627

    Sæll.
    .
    Ég var að vinna í því um daginn í svona bíl að breyta "O/D off" takkanum í "O/D ON" takka.
    .
    Þetta þýðir að eftir þessa breytingu þá ert þú búinn að "læsa" bílnum í 4.gír og þar með á hann að hætta að skipta sér stöðugt á milli 3. og 4.
    .
    Ef þú vilt eitthvað skoða þetta mál, þá er þér velkomið að hafa samband.
    .
    Kv. Atli E.





  • Author
    Replies
Viewing 10 replies - 1 through 10 (of 10 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.