Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Toyota umboðið
This topic contains 42 replies, has 1 voice, and was last updated by Anonymous 18 years, 11 months ago.
-
CreatorTopic
-
01.02.2006 at 14:22 #197213
Ég keypti Landcruiser 2002 módelið sl. vor. Bíllinn er nokkuð keyrður 106 þús þegar hann var keyptur og er kominn í 120 þús núna. Þegar ég keypti hann fór ég með hann í umboðið og bað þá að yfirfara bílinn og kom þá í ljós að nauðsynlegt vær að „renna“ bremsurnar ásamt öðrum smáviðgerðum (hosur o.þ.h). Fór með bílinn í 120 þús skoðun hjá Toyota nýlega og kom þá í ljós að splittunin að aftan er ónýt, hosa ónýt, spindilkúlur ónýtar og einhverskonar „kælitengningar“ í sjálfskiptingunni. Ég spyr er þetta eðlilegt slit eða er Toyota að „búa“ sér til verkefni? Þetta er bíll sem hefur varla farið út fyrir malbikið eða eru þessir bílar svona óáræðanlegir?
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
01.02.2006 at 14:42 #541046
Ég hef heyrt að þessi læsing að aftan skemmist vegna notkunarleysis og varla telst það stórmál að gúmmíhosa gefi sig á 120 þús km. er svo spindilkúla ekki bara skemmd að því að það hefur ekki verið skipt um hosu?
01.02.2006 at 15:04 #541048er vart að búa sér til verkefni.
Rafmagnslæsginarmótorinn á öllum þessum blessuðu Toyotum er svartur blettur á annars ágætum bílum. Aldrei til friðs í hinum blautari löndum. Ef bílinn er ekkert notaður í ófærð er svo sem engin ástæða til að skipta um hann (rándýr).
Spindlar, öxluhosur og nú síðast stýrisvélafóðringar er eitthvað sem slitnar almennt í bílum með "þróaða fjöðrun".
Afturljósin (þessi í stuðaranum) er einnig fræg fyrir að rotna frekar hratt. Reyndar sammerkt með flestum frændum þeirra á öðrum bíltegunum. Getum víst þakkað einhverri EU reglugerð fyrir það.Ef menn vilja bíla með xtra litlum viðhaldskostnaði þá mæli ég með hásingar-hilux. Sá "fákur" verður seint toppaður hvað viðhald varðar
kv
Rúnar.
Þetta eru jú allt bara bílar.
01.02.2006 at 15:13 #541050Svo er líka spurning hversu djúpt er verið að taka í árina…. eru t.d. spindilkúlurnar ónýtar eða bara slitnar… er mótorinn í læsingunni ónýtur eða þarf kanski bara að þrífa hann??
01.02.2006 at 15:49 #541052Það var nú ekki ætlunin að vera með neina fordóma gagnvart einum eða neinum. Mig langaði bara að fá upplýsingar frá mér reyndari mönnum þar sem ég verð að teljast nýliði í þessum bransa
01.02.2006 at 16:10 #541054Ekki taka það inn á þig sem moggi segir…. honum hefur langað svo mikið í Toyotu eftir að hann fékk sér patrol að hann hefur látið svona síðan…
En svona er þetta… sumir eru bara seinni að fatta heldur en aðrir…Stuð!
Óskar Andri
01.02.2006 at 16:49 #541056
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Sælir allir
Í gamla daga var alltaf talað um það sem kost "aldrei farið út fyrir malbik"
Ég tel það ókost í dag, bílar sem eru að keyra í þessum helv… saltdrullu alla vetra eru miklu verri en þeir sem eru að aka útí á landi lausir við saltógeð.
Svo þetta er orðin mjög öfugsnúin kenning "bíll sem hefur varla farið út fyrir malbikið"Kv.
Dóri
01.02.2006 at 17:51 #541058Er þetta breyttur jeppi ?
Hlynur
01.02.2006 at 19:35 #541060VDO breytti bílnum – skrúfaður upp og 35 tommu dekk.
01.02.2006 at 22:24 #541062Þó að hann sé nú þegar í uppáhaldi þeirra sem þekkja til fjórhjóladrifinna bíla þá eru núna sterkari rök fyrir því að þú veljir Nissan Patrol GR en nokkru sinni fyrr.
3.0 lítra, túrbó díselvélin með beinni innspýtingu, er með allt að 40% meira tog og 20% meira afl en eldri vélar. Hún er um leið sparneytnari, hröðunin er meiri og dráttur eftirvagna auðveldari.
Hafi það einhvern tíma verið vafa undirorpið þá er nú ljóst að Patrol GR er konungur á vegum og vegleysum.
Öllum til góða er yfirdrifið pláss til að teygja úr sér, þú getur notið leðursæta með rafstillingu, hita og hliðarloftpúða fyrir ökumann og farþega í framsæti.
Patrol GR er hlaðinn aukabúnaði og í innréttingunni er öllu haganlega fyrir komið. Til dæmis finnur þú skynsamlega stærð á geymsluhólfum og glasahöldurum við hverja sætaröð. Hin rökræna og skýra uppstilling mæla og stjórntækja auðveldar aksturinn og gerir hann öruggari – eitt af þessum atriðum sem auðveldar þér að aka á vit nýrra ævintýra.
ABS (með gaumljósi)
Loftpúðar fyrir ökumann og farþega í framsæti
NATS ræsivörn með gaumljósi
Höfuðpúðar með hæðarstillingum að framan og aftan
Forstrekkjarar á hleðslujafnara á beltum við framsæti
Framsæti með mjóhryggsstuðningi og hæðarstillingu
Hitastokkar í afturrými
Sjálfvirk loftlagsstýring
Upphituð afturrúða með tímarofa
Rafdrifnar rúður (einstillt upp/niður hjá bílstjóra)
6 hátalarar
6 glasahaldarar
12v raftengi
Leðurklætt stýri, gír- og drifstangir
Viðarklæðning í mælaborði
100% læsing að aftan og framan
Fjöðrun – framan : Heil hásing, 3ja liða, gormar með jafnvægisstöng
Fjöðrun – aftan : Heil hásing, 5 liða, gormar með jafnvægisstöng
Hemlar : Diskar að framan og aftan, aflátak (Rafeinda, 3ja ása, 5 skynjara ABS)
Veffang
http://www.morgankane.no/Bílategund
Nissan Patrol #44#Ágerð bíls
2001Bílnúmer
MOGGI………………………………………………..BRÁÐFINDIÐ EINS OG ENDURBÆTT ..DBS..
Vertu feginn að hafa ekki keypt svona bíl
keyrðan 120000 þá værir þú með hedd vél kassa í og fleirra höndunum…………..
Þetta er nú ekki svo stórt hjá þér lagar þetta, eða lætur laga þetta
Og láttu ekki einhverja fúl karla koma þér úr jafvægi
Mundi
01.02.2006 at 22:56 #541064Ég var ekki búinn að sjá þessa auglýsingu hjá Björgvini.
Góðar stundir og friður á jörð
Bæring
02.02.2006 at 08:17 #541066Samkvæmt [url=http://www.thedesertsun.com/apps/pbcs.dll/article?AID=/20060108/BUSINESS06/601080319/1003/business:2oxfd1c5]þessari frétt[/url:2oxfd1c5], þá á Nissan við alvarlegan vanda varðandi gæðamál að stríða. Í fréttinni var þó aðeins verið að fjalla um bíla sem seldir eru ( og settir saman) í USA. Þriggja lítra dísel vélin hefur aldrei verið í boði þar.
Amen
02.02.2006 at 09:43 #541068væri þetta hægt á pjattrollu (I even drove it out of the river and back home!!!) neiiiii held nú ekki.
02.02.2006 at 10:09 #541070Með frábærri markaðssetningu og góðri þjónustu hefur Toyota á Íslandi komið sér upp góðu orðspori, og að mínu mati eru þeir það umboð sem hefur staðið sig langbest hér síðustu áratugi. Bæði gagnvart hagsmunum sinna kúnna, en ekki síður gagnvart eigin hagsmunum.
Ef þeir eru farnir að framleiða bilanir á verkstæðinu þá er það nýtt fyrirbæri og alger kúvending á stefnu fyrirtækisins. Slíkt kæmi mér mjög á óvart og ég hef enga trú á því að það sé tilfellið.
Vandi þeirra er hins vegar sá að þeir eru að selja bíla, og bílar bila, slitna og úreldast, jafnvel þó að þeir heiti Toyota, og raunar engu síður.
Bremsudiskar hafa verið vangæfir í þessum bílum, að skipta reglulega út spindilkúlum í þeim er sjálfsagt öryggisatriði vegna hönnunar framfjöðrunarinnar sem er óvenjuleg. Driflæsingar hafa líka verið erfiðar í þessari tegund.
Held að þetta sé bara nokkuð "eðlilegt".
02.02.2006 at 10:09 #541072Þetta er náttúrulega fyrir neðan allar hellur, það þurfti að skipta um dempara í 160 þúsund og vélin fór eftir að bílnum var velt út í á þegar hún var keyrð 270 þúsund. Samt keyrði hann heim undir eigin afli.
Amen
02.02.2006 at 10:28 #541074Það besta við Toyota bíla eru ekki gæðin, heldur umboðið. Oftar sem ekki er ódýrara eða jafn dýrt að kaupa orginal varahluti í þá heldur en frá þriðja aðila.
Já, og maður þarf ekkert að borga fyrir DHL’ið hjá þeim, og það er hægt að skila "sérpöntuðum" varahlutum.Umboðið er nægjanlega ástæða fyrir mig til þess að langa ekkert í aðrar tegundir þó svo að maður gæti hugsanlega vanist því að aka um á Ni$$an.
(Að sjálfsögðu hef ég náttúrulega enga reynslu af því að kaupa varahluti hjá umboðinu þar sem bílinn minn er svo fullkominn að hann bilar að sjálfsögðu aldrei
kv
Rúnar.
02.02.2006 at 10:30 #541076Það eru aldeilis viðbrögð og ákveðnar skoðanir …..
Ég tel mig vera búinn að ná áttum. Þeir veita góða þjónustu og útskýrðu vel og vandlega allt það sem þeir framkvæmdu á bílnum. Það kostaði náttúrulega nokkuð – en ég geri ráð fyrir að allt það sem þeir gerðu flokkist undir fyrirbyggjandi aðgerðir.
02.02.2006 at 19:51 #541078Lang besta bílaumboð á Íslandi og víðar. Ef að það vantar varahluti eða aukahluti þá eru þeir nánast undantekningarlaust til og á mjög samkeppnishæfu verði á við Bílanaust, Stillingu og fleiri. Í flestum tilfellum borgar sig ekki að skoða annarstaðar.
Nú hef ég ekki farið inn í hin umboðin í soldin tíma en ég er nokkuð pottþéttur á því að besta kaffivélin er á Nýbýlaveginum. Svo eru þeir líka með þjónustuver sem ég held að enginn annar sé með.
02.02.2006 at 20:50 #541080Ég verð að taka undir með því að munurinn á þessum bílum sé kannski ekki endilega í gæðunum. Mín reynsla af Toyotu var sú að hún bilaði rétt eins og aðrir bílar (og meira fannst mér reyndar) en það var alveg fyrirgefið þar sem umboðið var svo gott. Það meira að segja innkallaði bílinn reglulega til að skipta um legur, hringi og þess háttar.
Ég sem Patrol eigandi og aðdáandi vildi óska þess að Ingvar Helgason stæði við bakið á okkur ens og P. Samúelsson stendur með sínum mönnum. Svo mættu þeir líka taka upp verðlagninguna hjá Toyota.Kveðja,
Klemmi.
02.02.2006 at 21:37 #541082Ég skipti við heklu einfaldlega útaf því að ég fann enga toyotu á því verði sem ég var að leita af. Og mig langaði til að prufa eitthvað nýtt. Ég hef einu sinni þurft að fara þangað að kaupa varahluti og hef svosem ekki mikið útá það að setja. Ef ég hefði fengið jafn gamlan 4-runner diesel áður en ég fann bílinn sem ég á í dag hefði ég keypt 4-runner.
En afhverju er þetta svona mikið hitamál hjá þér að drulla yfir Toyota ?
02.02.2006 at 21:51 #541084Það er nú spurnig hvernig á að reikna út verðmæti bíla. Hins vegar er ég viss um að þjónustan sem Toyota eigendur njóta skilar sér í verði bílanna. Þeir eru eftirsóttari, eðlilega, ef það er alvöru umboð fyrir viðkomandi tegund.
Kveðja,
Klemmi.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.