FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Toyota Tacoma bensín???????

by Lúther Gestsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Toyota Tacoma bensín???????

This topic contains 25 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Lúther Gestsson Lúther Gestsson 19 years, 7 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 17.11.2005 at 23:53 #196657
    Profile photo of Lúther Gestsson
    Lúther Gestsson
    Member

    Nú skilst mér að það gangi eitthvert æði yfir nokkra jeppamenn í klúbbnum, reyndar eru þetta ekkert alvöru jeppafólk heldur svona wanabee jeppafólk sem safnar að sér myndum með hárband og dýrum flíspeysum upp á jöklum.

    Enn nóg um það þetta fólk eða bara Flugsveitin EJS og nokkrir úr Jeppaklúppnum Heimsgir eins og það kallar sig hafa tekið höndum saman og safnað saman aur í nokkrar Toyotur TACOMUR.

    Ég get bara ekki orða bundist yfir þessari ákvörðun þessa ágæta fólks, fyrir það fyrsta getur þetta aldrei gengið á 38″ hjólum, það er bara búið að sanna það eins og HALLI Gulli í KT fyrir norðan hefur reynt, hann drífur ekkert, eyðslan ótæpileg og reyndar sést drengurinn nánast ekkert á fjöllum lengur.
    Bíllinn er að mínu mati alltof dýr, ca 3.2 m óbreyttur miða við að þetta er bara Toyota Hilux með bensín mótor sem reyndar P. Samúelsson hyggst ekki einu sinni flytja inn hvað þá meira.

    Enn maður situr og spyr sig og sína nánustu hvað fær fólk til að ana út í svona vitleysu, er það til að sýnast flottari á myndunum með frosið bros í rándýru flíspeysunni. Er þetta lið að reyna að komast á forsíðu Útiveru eða í 66″ N bækling. Innan um þetta ágæta fólks hélt maður að væri ein og ein skynsöm manneskja sem sæji þetta allt saman, þarna má finna lögfræðing, fisksala, eldvarnarlöggu og fl og fl.

    Nei Takk félagsmenn reynum að breyta rétt þegar okkur langar til að breyta. Breytingar eiga að vera af hinu góða ekki slæma.

    Virðingarfyllst
    Lúther

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 25 total)
1 2 →
  • Author
    Replies
  • 18.11.2005 at 00:08 #532926
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    Hvaðan hefur þú það að Halli Gulli drífi ekkert?

    Ég er búinn að keyra með honum og að mínu mati er hann að skila sér mjög vel áfram.

    Kveðja
    Elli.





    18.11.2005 at 00:16 #532928
    Profile photo of Lúther Gestsson
    Lúther Gestsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 1860

    já já þú hefur keyrt með honum og allt saman bara, veit ekki betur enn ég hafi verið að horfa á myndband af þér og þá keyrðir þú nú ekki mikið kallinn minn.

    Nei nei grínlaust þá hefur mér bara verið bent á að þó að Halli Gulli sé einn af okkar betri jeppamönnum og frábær bílstjóri, þá því miður valdi hann bara vitlausan bíl núna. Góður bílstjóri þarf bíl sem drífur ekki satt.

    Kveðja Lúther





    18.11.2005 at 02:19 #532930
    Profile photo of Baldur Gunnarsson
    Baldur Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 43
    • Svör: 821

    ég held að góður bílstjóri þurfi ekkert bíl sem drífur. Kannski eru þessir menn bara svona góðir bílstjórar að þeir vilja bíla sem drífa ekki mikið, svona til að hafa meira challange.
    Því góður bílstjóri á að gera komið hvaða druslu sem er áfram í ófærum.

    kv
    Baldur skáti





    18.11.2005 at 09:11 #532932
    Profile photo of A Patrolman
    A Patrolman
    Member
    • Umræður: 2
    • Svör: 12

    Þvílíkt nafn á fólksbifreið. Eru þetta ekki tiltölulega sprækir bílar og léttir. Það ætti að auðvelda manni að draga þá á og af fjöllum. Sá hokni hefur held ég skælt yfir sig og kerlingin er að launa honum lambið gráa með þessari rennireið.

    Samhryggist þessum hóp en annars er þetta gott fyrir okkur á Patrolum til að hægja á okkur. Það er jú bannað að aka of hratt.

    Tooooooooooooooooogkveðja, Patrolman.





    18.11.2005 at 09:39 #532934
    Profile photo of Bergþór Júlíusson
    Bergþór Júlíusson
    Participant
    • Umræður: 40
    • Svör: 761

    Viltu virkilega að ég svari þessu ?





    18.11.2005 at 10:22 #532936
    Profile photo of Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Participant
    • Umræður: 28
    • Svör: 553

    Hvað er oft búið að þurfa senda björgunarleiðangur til að koma þér og þínum faraskjótum heim í hús? Ég hef nú alltaf komist heim aftur þegar ég hef skroppið eitthvað.
    Hvernig fékkstu út að Tacoma væri að eyða miklu?
    Uppgefnar tölur frá Toyota eru á bilinu 10-12 lítrar á þjóðvegarakstri og það þykir frekar lítið með mótora sem eru að skila vel á þriðja hundruð hestöfl.
    Ég átti Hilux áður og hann dreif fínt en þessi drífur meira og er það ekki síst aflinu að þakka……. sem þú veist ekki hvað er því þú hefur aldrei átt aflmikla bíla.
    Á einhverjum þræði sá ég að þú ætlar að fá þér Ford F150 og breyta honum. Það verðu gaman að sjá veskið þitt eftir það. Ég hef ekki heyrt töluna undir 20ltr/100km í eyðslu á svoleiðis apparati.
    En þú færð að vera með á myndum ef þú færð þér svoleiðis en ekki vera keyra hann mikið.

    kveðja, :-)

    HG

    A-111





    18.11.2005 at 10:25 #532938
    Profile photo of Bjarni Gunnarsson
    Bjarni Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 78
    • Svör: 1462

    Ég held að menn ættu nú að innbyrða þessi skrif hans Lúdda með hæfilegum skammti af kaldhæðni. Hann er hérna á öðrum þræði að lýsa því yfir að hann sé sjálfur að fá sér bensínhák með litla burðargetu. Reyndar svo litla að þegar búið að er að setja í hann nauðsynlegan búnað til fjallaferða þá er svo lítið eftir af burðargetunni að Lúddi má ekkert borða í tvo daga fyrir ferð. Hann mun því hér eftir ekki verða þekktur sem Lúddi fasti heldur Lúddi fastandi :)
    –
    Bjarni G.





    18.11.2005 at 10:55 #532940
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Í USA gera stjórnvöld mælingar á eyðslu bíla sem seldir eru þar í landi. Sjá [url=http://www.fueleconomy.gov/feg/byclass.htm:22mpw360]hér[/url:22mpw360]
    Samkvæmt því er eyðir F150 beinskiptur, með 4L vél, nákvæmlega sama innanbæjar.(14.7 l/100km) og Takaoma beinskitpur með 4L vél. Í þjóðvega akstri eru tölurnar 12.4 og 11.8.
    Sem sagt, samkvæmt Sámi frænda er ekki marktækur munur á eyðslu þessara bíla, þegar þeir eru með jafnstórar vélar.

    Fordinn er fáanlegur með stærri vélum og Toyotan með minni. Munurinn á bensín og dísel bílum er að í þeim fyrrnefndu fer eyðsla bæði eftir vélarstærð og þyngd bíls, meðan eyðsla díselbíla fer eftir þyngd en lítið eftir vélarstærð.

    -Einar





    18.11.2005 at 11:01 #532942
    Profile photo of Agnar Benónýsson
    Agnar Benónýsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 3080

    svona til upplýsingar til þeirra sem ekki vita þá er opinber eyðsla bíla frá framleiðanda aldrei raunveruleikinn og getur aldrei orðið þar sem hún er mæld í einhvers konar "bekk" eftir samræmdum stöðlum bílaframleiðanda við kjöraðstæður.
    Aftur á móti þar sem framleiðendur mæla allir eins er þetta vel nothæft til að bera saman mismunandi bíla en þó held ég að þyngd þeirra og vélarstærð verði að taka að fullu inn í reikningsdæmið.
    Er nokkuð annað að gera en að keyra óbreytta Tacomu og F150 frá Akureyri til Rvk með einn bílstjóra í hvorum bíl og mæla ???





    18.11.2005 at 11:03 #532944
    Profile photo of Lúther Gestsson
    Lúther Gestsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 1860

    Sko þarna kemur þetta bara í ljós með ykkur, þið hafið greinilega afskaplega takmarkað vit á jeppum og ferðalögum um hálendið þó svo örugglega séuð þið með verðið á tískufatnaði í 66"N á hreinu.

    Hættu bara þessu röfli Halli Gulli minn og segðu bara sannleikann um eyðsluna á Tacomunni, og ef þú hreinsaðir allt þetta dekkjashine af dekkjunum myndirðu kannski fá grip í snjó og ef þú hreinsaðir eitthvað af þessum bláu og rauðu díóðu ljósum úr innréttingunni sæjirðu kannski á bensínmælinn.

    Ýktur minn þú átt að standa með mér í þessum Ford 150 hugleiðingum mínum því þú veist það allveg eins og ég að þú ert stútfullur af Ameríska draumnum.
    Hér er alger óþarfi að vera að tala um hremmingar sem maður sem ferðast um hálendið í gammalli lopapeysu hefur lent í, því þið Tacomudraugarnir eruð bara eins og uppstrílaðar barbídúkkur.

    Ferðakveðjur Lúther





    18.11.2005 at 11:10 #532946
    Profile photo of Gunnar Lár Gunnarsson
    Gunnar Lár Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 13
    • Svör: 102

    Æ hvað það er leiðinlegt að lesa hér pósta eftir menn sem eru með greindarvísitölu á við frostmark.





    18.11.2005 at 11:13 #532948
    Profile photo of Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Participant
    • Umræður: 124
    • Svör: 2697

    Agnar: Það verður að vera sami maðurinn sem keyrir bílana til að samanburðurinn sé marktækur. :)

    Smá saga um eyðslu. Pabbi á 1999 F-250 crew-cab með 5.4L vélinni (þá um 265hp frá verksmiðju ef ég man rétt) og stutta pallinn.

    Þessi bíll með full-size camper, tveimur fullorðnum og farangri vigtar skv. vigtinni við Hvalfjarðagöng, haldið ykkur fast, 4500kg (fjögurþúsundogfimmhundruð).

    Í tveimur 3-4 daga ferðum hefur mér tekist að ná meðal eyðslunni niður í 22-23L/100km (já tuttuguogtveir/þrír). Þetta er þó einungis hægt með því að halda snúningi niðri og nota krúscontrol og helst ekki keyra hraðar en 90. Ef það er mótvindur verður maður bara að keyra hægar. Þetta er náttúrulega allt saman langkeyrsla.

    En það er ekkert mál að láta hann eyða, t.d. að standa hann upp brekkuna við Búrfellsvirkjun þá hverfa hæglega 15lítrar…. Þetta er allt spurning um aksturslag.

    -haffi





    18.11.2005 at 11:17 #532950
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Þessar mælingar sem ég vísaði í hér að ofan eru ekki framkvæmdar af framleiðendum sjálfum, heldur af ríkisstofnun.
    Ég á 2001 árgerð af Toyota Corolla, eyðslan sem tölvan í þeim bíl sýnir, eftir að bíllin er orðin heitur, passar mjög vel það sem þeir fá fyrir samsvarandi bíl, reyndar munar aðeins á vélarstærð (1.8/1.6 l).
    Þegar bílar eru hækkaðir og sett undir þá stærri dekk, þá eykst loftmótstaða og þar með bensíneyðsla.

    -Einar





    18.11.2005 at 11:40 #532952
    Profile photo of Agnar Benónýsson
    Agnar Benónýsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 3080

    Haffi, ef þeir keyra í samfloti þá gæti það verið raunhæft þó að vísu þurfi akstursstíllinn ekki að vera eins :-)
    eik, ég var ekkert að vísa í þinn texta, ég var að tala um mælingar frá framleiðendum sem koma mælingum frá einhverri óháðri stofnun ekkert við.
    Ég held að það sé frekar óskhyggja hjá mönnum þegar þeir segjast ná sömu eyðslu og framleiðandinn segir, og það á enn frekar við um jeppa….. en það er bara mín skoðun.
    En snúum okkur aftur að Tacomunni, ég sá 40" Tacomu í köntun hjá Formverk ekki alls fyrir löngu, er hann kominn á götuna?
    kveðja
    Aggi





    18.11.2005 at 15:47 #532954
    Profile photo of Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Participant
    • Umræður: 28
    • Svör: 553

    Ég er ófeimin við að opinbera eiðslutölur. Ef ég hef ekki snyrtitöskuna og allann 66°Norður tískufatnaðinn með mér þá er ég í 13-15 lítrum á langkeyrslu. En ef ég gleymi að bóna og sérstaklega dekkinn þá er eyðslan gífurleg. Þetta er þörf athugasemd þetta með dekkjaáburðinn ég ætti að prufa hætta því og athuga hvort ég drífi ekki enn meir. Ég veit bara ekki hvar þetta endar þá. En án gríns af því sumir hérna eru farnir að koma með allskyns vísindalegar greiningar á eyðslu og jafnvel farnir að blanda fólksbílum í þetta þá er nýja Tacoman að eyða minna heldur en minn. Hann er gefin upp líter minna í eyðslu þó vélin sé 600 cc stærri og 40 hestum meyri. En að vísu setti ég öndunarvél á minn og fór 20 hestum framfyrir með það og á eftir að bæta um betur. Maður hættir ekki fyrr en eitthvað fer að brotna.
    Ég trúi því að Lúddi fari í 8 gata 5,4ltr bara til að fá að vera með á mynd. Þú verður bara að vera þokkalega til fara. Enga boli takk.

    kveðja

    HG





    18.11.2005 at 17:45 #532956
    Profile photo of Karl Guðnason
    Karl Guðnason
    Member
    • Umræður: 28
    • Svör: 1154

    Mikið finnst mér skrítið að lesa svona bull.
    Eru menn ekki enn búnir að skilja að bílategundir skipta ekki máli. Skil ég þó síst í mönnum eins og Lúffa sem hafa reynsluna að það er liturinn sem skiptir máli. Hef ég séð margar myndir af honum föstum á gráum patrol en eftir að hann fékk sér hvítan hefur ekki heyrst frá honum nema hann sé með annan jeppa í drætti. varðandi dýrar flíspeysur veit ég að þær eru betri.Ég fékk eina að gjöf frá "Reyknum"og hún er "bara" hlý. Varðandi eyðsluna þá skiptir hún engu máli ,þessir kallar (og konur) eiga nóg af peningum. en takið eftir mínum orðum sá hvíti fer mest síðan svartur og svo kannski speetway blue,nema að bílstjórarnir séu þeim mun lélegri!
    p.s BEGGI segðu meira.
    kveðja Kalli "góði"





    18.11.2005 at 18:03 #532958
    Profile photo of Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Participant
    • Umræður: 28
    • Svör: 553

    Andsk….ég vissi ekki þetta með litinn. Er þá nóg að mála bílinn hvítann eða þarf hann að hafa komið þannig frá verksmiðjunni?

    kv

    HG





    18.11.2005 at 20:45 #532960
    Profile photo of Eyþór Guðnason
    Eyþór Guðnason
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 459

    Er eini liturinn sem drífur ef þessar druslur drífa þá eitthvað.
    Frábær þráður hjá þér Lúther ég sé allt í réttu ljósi núna þú hefðir nú kannski átt að opna augun mín áður en þú seldir gamla bílinn minn.
    Ég sé stórlega eftir ferrarí rauða fáknum mínum sem reyndar sveif um á Trabant hraða en spurningin er sú hvort tacoma tækið komist yfir Trabant hraðan eða ekki ?
    En ég er vel búinn í nýju flíspeysunni minni og svo bíð ég bara eftir að Lúther komi að sækja mig þegar ég er búin að grenja mig rauðbólgin.
    En Lúter hefur þú ekki trú á hraðbrautar bláa bílnum mínum.

    Kveðja Eyþór.
    Heimsgir h/f 314.





    18.11.2005 at 20:48 #532962
    Profile photo of Theodór Skúli Þórðarson
    Theodór Skúli Þórðarson
    Member
    • Umræður: 0
    • Svör: 2

    Sjálfur á ég Tacomu og hef mælt hana 11,6 í þjóþvegakstri og milli 14 og 15 innanbæjar,sé ekki eftir dropa og bíllinn er einstaklega skemtilegur í aksri

    Kv.





    18.11.2005 at 22:10 #532964
    Profile photo of Lúther Gestsson
    Lúther Gestsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 1860

    Já Eyþór spekingar hafa verið að spá í þennan ljóta bláa lit sem enginn veit almennilega hvernig er á litinn samt, enn kannski er það hann sem blífar, ja það er vitað að vínrauður bíll hefur ekkert getað enn.
    Ég er svo sem ekkert hissa á að óðalsbóndinn hér á undan sé ánægður með sinn bíl enda bara á 29" og ekkert verið hreyft við einu né neinu sem betur fer, enn greinilegt er samkvæmt eyðslunni hjá honum að konan er frekar undir stýri enn hann sjálfur.
    Enn sorglegast við þetta allt saman er þegar hópur sem þessi leggur út í viðamiklar allt of kostnaðarsamar breytingar og svo kemur ekkert út úr neinu samanber Benni Ak, Ofsi, og Rúnar á misheppnaða Hiluxnum. Margir kannski sárir enn svona er þetta bara.

    Ferðakveðja Lúther





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 25 total)
1 2 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.