FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Toyota Hilux, ódrepandi bílar

by Sigurður Þór Magnússon

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Toyota Hilux, ódrepandi bílar

This topic contains 5 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Örn Gunnarsson Örn Gunnarsson 18 years ago.

  • Creator
    Topic
  • 12.06.2007 at 00:04 #200414
    Profile photo of Sigurður Þór Magnússon
    Sigurður Þór Magnússon
    Member

    Þeir sem hafa ekki séð þetta ættu að sjá.

    Hilux eigendum hlýtur að hlýna um hjartarætur þegar þeir sjá þetta. Það er töggur í gamla.

    Hægt að sjá allan eyðileggingarferilinn á YouTube

    Klesstur, drekkt, brunninn, laminn, kraminn.. enþá gangfær og keyrandi en fengi varla skoðun?

    Hilux – Aftaka

  • Creator
    Topic
Viewing 5 replies - 1 through 5 (of 5 total)
  • Author
    Replies
  • 12.06.2007 at 00:50 #592386
    Profile photo of Óskar Andri Víðisson
    Óskar Andri Víðisson
    Participant
    • Umræður: 51
    • Svör: 778

    þeir koma manni alltaf á áfangastað þessir bílar þrátt fyrir vonlausar vélar, enga fjöðrun, vond sæti, D/C með of stutta skúffu, riðga í haug já og var ég búinn að nefna vonlausar vélar! Ég hef að a.m.k. ekki upplifað það ennþá að þurfa að skilja fjósa minn eftir uppá fjöllum eða úti á landi og er hann nú orðinn 13 vetra og bara rétt tilkeyrðu eða 249 þús. km. á orginal fjöðrun og orginal vél og alla tíð hefur honum verið misboðið af eigendum sínum með loftköstum á fjöllum, hamrandi yfir fjallaslóða á methraða, keyrandi í botn snúning lengi, lengi, lengi, drekkjandi í ám og starfa við það í 2-3 ár að draga 2-3 tonna kerru í hverri viku….
    . Fyrst ég er byrjaður þá er nú ekki úr vegi að ég segi nú svona eins og eina frægðarsögu af honum fjósa mínum. Það gerðist á síðasta gæsaveiðitímabili að við vorum þrír félagar að keyra slóða í hrunamannaafrétt sem ég hafði farið margsinni áður og þekkti, að ég hélt, bak og fyrir og keyrði þess vegna doldið geyst. Það sem ég hinsvega reiknaði ekki með var að við vorum þrír í bílnum og ég var með úrhleypt í 15 pund og var bíllin þessvegna töluvert lægri en venjulega. Síðan kem ég að lægð/holu í veginum þar sem að það stendur steinn aðeins uppúr hryggnum, ég hafði keyrt margsinnis yfir þetta áður og hélt þessvegna áfram minni fleygiferð ofan í lægðina en nú fjaðri bíllin niður og lenti á grjótinu og skellurinn var svo svakalegur að þetta vera eins og ég hefði keyrt annan kyrrstæðan bíl plús það að höggið reif grjótið upp úr jörðinni sem reyndist síðan vera á stærð við 35" dekk og bíllin lyftist upp og rúllaði yfir grjótið með ólýsanlegum látum. Áður en að ég steig út úr bílnum var ég eiginlega búinn að ákveða í hvern í ætlaði aði hringja til að fá aðstoð ég var svo viss um að ég myndi sjá allan undirvagnin á bílnum fyrir aftan bílin…. en nei, örlítil dæld á spyrnufestingu og bogin demparafesting var allt holan eftir grjótið var nógu stór til að ég gæti sest ofaní hana…. síðan var keyrt í bæinn á mannlegum hraða….





    12.06.2007 at 17:21 #592388
    Profile photo of Einar Steinsson
    Einar Steinsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 752

    Þið ættuð að skoða [url=http://www.youtube.com/watch?v=YpI0q52wHxg:x2w6wkbb][b:x2w6wkbb]þennan[/b:x2w6wkbb][/url:x2w6wkbb]





    12.06.2007 at 19:24 #592390
    Profile photo of Rúnar Ingi Árdal
    Rúnar Ingi Árdal
    Participant
    • Umræður: 39
    • Svör: 421

    það er einn hilux hérn fyrir austan, vinnubíll á 33 tommu. hann er með orginal diesel vélina án túrbínu og síðast þegar ég kíkti iní hann var hann komin í 644,000 og það hefur aldrei verið farið í mótorin eða neitt, eina sem hefur verið skipt um í honum eru dísur (spíssar) ogí þokkabót þá er ann næstum eins og nýr að horfa á hann.





    12.06.2007 at 21:09 #592392
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Fyrir ekki svo mörgum árum voru þetta algengustu bílarnir á fjöllum og jöklum, hvar sem komið var sá maður Hilux í meirihluta. Nú eru breyttir tímar og allra gerða tíkur komnar í stað Luxa. Ég er hreint ekki frá því að í kjölfarið hafi bilanir á fjöllum stóraukist, enda tekur maður eftir því hér á vefnum að það er hending að maður heyri af túrum þar sem ekkert bilar eða enginn brýtur neitt.
    Kv – Skúli





    12.06.2007 at 21:37 #592394
    Profile photo of Örn Gunnarsson
    Örn Gunnarsson
    Member
    • Umræður: 9
    • Svör: 158

    Sælir félagar.

    Það var nú einn félagi minn sem byrjaði að kalla þessa bíla Talibanatrukka.

    Það var vegna þess þegar sýndar voru fréttamyndir frá Afganistan þá voru svo mikið af þessum bílum þar.

    Þegar ég hringdi í hann hróðugur að ég væri búinn að kaupa mér einn nýjan Hilux haust 2002 þá sagði hann " Hvað varast þú að kaupa þér Talibanatrukk ?"

    Eftir það hefur bill minn verið kallaður Talibanatrukkurinn.

    Síðan hringdi hann hróðugur í mig um daginn því að hann las grein í blaði þar sem var viðtal við mann frá AT sem var að selja breytta jeppa í Afganistan og hann hafði eftir honum :

    " þeir sem vinna stíðið eru þeir sem eiga flesta Hiluxa "

    Kveðja Örn.G





  • Author
    Replies
Viewing 5 replies - 1 through 5 (of 5 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.