Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › toyota hásingar undir willys?
This topic contains 20 replies, has 1 voice, and was last updated by Bæring J. Björgvinsson 15 years, 7 months ago.
-
CreatorTopic
-
25.01.2009 at 19:14 #203643
sælir
er að velta fyrir mer að versla gæluverkefni i skurinn…s.s cj5 willys m plastboddíi…..4.3 chevrolet i undir huddinu……..undir honum eru dana 44 gamla hasingin og dana 25 eða 27 að framan……spurningin er hvort hilux hasingar mundu þola 4.3 motorinn i þessum bil a 36 tommu dekkjum? ástæðan fyrir hilux vali a hasingum er su að i þær er gott að fa varahluti og annað……..:-)
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
25.01.2009 at 19:31 #638930
Alls ekki galin pæling.
Gæti samt trúað að 8" sé full veik fyrir þetta, ég myndi allavega reyna að finna "keisingar" úr 6cyl 4runner, þær eru miklu sterkari en ú 4cyl bílunum, svigna minna undir álagi og hlífa þar af leiðandi kambi/pinjón.Kannski er sniðugast að finna hásingar úr 60 cruser. Þær eru með töluvert hraustari drifum, oft barkalæsingar(traustur búnaður) og liggja trúlega víða núorðið.
Kosturinn við Toyota hásingarnar er vissulega sá að það fæst allt í þær og legur/pakkdósir eru mikið áreiðanlegri en ameríska dótið.
kv
Grímur
25.01.2009 at 19:53 #638932Bragi láttu mig endilega vita ef þú ferð út í þetta því ég get losað þig við gömlu hásingarnar
Kv. BIO
25.01.2009 at 21:43 #638934Hilux hásingar myndu ábyggilega virka fínt undir þetta
svo hef ég hingað til ekki vitað til þess að amerískar legur og pakkdósir séu neitt öðruvísi en þær japönsku….
25.01.2009 at 23:03 #638936Það eru nokkrir bílar sem ég veit um með bæði 4,3 og stærri mótora svo sem 305 (5,0) 327 (5.2) 350 (5,7) svo ekki sé minst á ford og mopar vélar og eru flestir þeirra með orginal Toyota hásingar
26.01.2009 at 00:52 #638938Mikið væri nú gaman að fá að vita hvar allar þessar hásingar og hásinga grams sem á að lyggja eins og hráviði út um allt séu, því ég hef verið að leita af framhásingu og 4:88 hlutfalli.
Ef menn eiga þetta þá kosta þær ekki nema 80-100,000.- kr.
Og eru bara 27 ára gamlar og jafnvel ó læstar, loku lausar og smávægilega bognar og vafnvel hægt að rétta þær.
Þá á eftir að taka þær í geg fyrir c.a.50 þúsog þá er hún farinn að kosta svipað og nothæf dana 60 .
Hvenær ætla menn að áttasig á því að þetta er ekkert gull heldur 30 ára gamallt stálrör sem þarf að laga.
26.01.2009 at 10:38 #638940Flottar hásingar, léttur bíll og 4.3 er nú enginn ofurmótor. Ef hlutföllin eru höfð hæfilega há þá myndi ég telja að þetta væri bara fínt. V6 eða læsingarköggullinn eru sterkari. Svo er jú alltaf hægt að fara gömlu leiðina og skipta kögglinum að aftan út fyrir 12 blota GM. Öxlarnir passa víst við hann.
Amerískar legur eru áræðanlega ekkert verri en þær japönsku, en þessi eina ameríska pakkdós sem ég keypti einu sinni fór aldrei í bílinn. Var bara fyndinn. Japanskir hjöruliðskrossar eru svo kapituli út af fyrir sig. Búinn að skipta um tvo krossa í bílnum hjá mér, eftir 260.000 km.Rúnar.
26.01.2009 at 18:17 #638942já er það góð eða slæm ending á hjöruliðskrossum? bara spyr.
26.01.2009 at 21:14 #638944Það er nú bara einhvern veginn þannig að frágangur á legum og pakkdósum er töluvert áreiðanlegri hjá Japananum heldur en Kananum. Hilux afturhásingin lekur t.d ekki inn vatni öðruvísi en inn um öndunina. Fljótandi hásingin er líka alveg pottþétt hvað þetta varðar. HIns vegar er úrval af öflugum drifum fáanlegt frá Kananum. 12bolta er gott dæmi, og já, Toyota öxlar passa í það, jafnt LandCruiser og Hilux öxlar.
Léttur bíll með 1:4.10 eða 1:4.56 hlutföllum og svo lógír gæti alveg funkerað á Hilux hásingum, það fer líka alveg eftir aksturslagi hvort það virkar eða ekki…kv
Grímur
26.01.2009 at 23:09 #638946Þetta er nú einfalt mál.
Toyota hásingar duga ekki undir toyota bíla, þá er ég að meina t.d. hilux, sem er með 2.4 bensín og diesel motora sem eru að skila rétt í kringum 100 hestöfl… þar eru drifin að mölvast hægri vinstri og jafnvel við minnstu átök.
Og þú heldur að þær geti dugað fyrir 190 hestafla vél, hugsaðu þig tvisvar um áður en þú ferð út í þetta.
Dana 44 er með 8.5" drifi, toyota 8". Þú værir að minnka styrkinn við að skipta yfir í toyota. Reyndar eru rillufjöldinn mun meiri í toyotu miðað við gömlu dana44 hásinguna en að mölva öxlana er ólíklegt vandamál miðað við léttleikan á bílnum þínum.
Ég myndi ráðleggja þér að halda þig við dana44 hásinguna sem þú ert með og skipta frekar bara út framhásingunnií Dana30 rev. Hún dugir flott hjá mér, létt og öflug hásing. (wrangler, v8 38").
En auðvitað er þetta álitamál hvað toyota 8" hásingar duga langt.. viðmiðið er út í sjoppu síðast þegar ég gáði…
Sumir nota þennan búnað alveg endalaust og brjóta aldrei neitt, fer auðvitað bara eftir aksturstíl.
kv
Gunnar
26.01.2009 at 23:27 #638948Blessaður ef þú kemst yfir hilux hásingar fyrir lítið er ekkert að því bara nota 4,88 eða hærri hlutföll.
Var með svona undir wrangler sem vigtaði 1520 kg.tómur og svo var ca.200 hestafla rover efi í húddinu og braut ekkert.
En ég myndi mæla með að vera með sverustu stýrisendana í þessu þeir grennri eru drasl sem ekkert endist.
27.01.2009 at 00:14 #638950Gunnar ingi, ég er með smá fróðleik um toy hásingar handa þér. Ef að 8" toy drif fer, er það bara vegna þess að annaðhvort vantaði olíu á það, eða að innstillingin á drifinu var fúsk- skiptir öllu máli. Ég er að nota 8" toy framdrif og framhásingu sem er ekin 500þús.km með orginal 4.88 hlutföllum, skipti reyndar um legur í því að gamni þegar ég setti loftlásinn í það um daginn.
Er ekki 3.0 V6 toy 150 hö? Mundi halda að köggull úr þannig bíl væri óhætt að nota við 200 hö. Það eru til margir hiluxar með V8 og orginal hásingar.
Einhverntímann las ég í bæklingi frá Motive gear eða yukon, um styrkleika drifa og þar var 8" toy metið verulega nálægt D44.
27.01.2009 at 09:42 #638952Ég hef nú séð 80 hp Lapplander snúa í sundur svona gamla Dana 44 hásingu
Í dag er verið að nota 8" hásingarnar undir 38" breyttum LC-120 bílum sem eru með 170 hp diesel vélum, sem skila álíka miklum átökum út í hjól og óbreytt chevy v8. Veit ekki til Þess að þeir séu mikið að brjóta.4.56 hlutföll eru eðlisfærðilega séð 25% sterkari en 5:71 hlutföll (fyrir utan allar pælingar um stærð drifa og fjölda tanna og annað svoleiðis). Það hefur sitt að segja.
Hilux er 2 – 2.5 tonn, plast-willis er kannski 1.5 tonn. Mikill álagsmunur þar einnig.
kv
Rúnar.
27.01.2009 at 11:35 #638954340 ci vel sprækan Mopar mótor í Hilux.
Hiliux hásingar. 4.10 drif
Hilux millikassi og 727 sjálfskipting.Þetta virkaði fínt
28.01.2009 at 19:01 #638956Skoðaðu pajero afturhásingu. Það er ansi margt sem mælir með þeim í svona project. Þær eru um 150 cm langar sem gæti virkað ágætlega. Original loftlás og fl. sniðugt.
28.01.2009 at 22:53 #638958Ég er nefnilega að spá í hvaða hásingu ég eigi að nota undir súkkuna mína. Á til dana 44 og 12 bolta en þær eru alltof breiðar þannig að toyotu eða willyshásingar koma sterklega til greina en eins og Arnar bendir á þá er ekki hlaupið að því að verða sér úti um toyotuhásingu fyrir lítið.
28.01.2009 at 23:13 #638960Ég líka einmitt að spá í svipaða drauma undir vitara og mér þykir pajero hásingar eða hilux eða dana 30 líklegastar. Hver ætli þyngdar munurinn sé á þeim og hvernig er að fá varahluti í þessar þrjár gerðir.
kv
08.04.2009 at 20:56 #638962Hvernig eru 12 bolta hásing og hiluxhásing settar saman? Eru rörin og öxlarnir úr toyotunni notuð við 12 bolta köggulinn? Og annað, passar dana 44 og hiluxhásing á sama hátt?
Hilsen Hjalli
08.04.2009 at 21:11 #638964Það eru 2 leiðir sem hafa verið farnar, annars vegar að nota toyota afturöxla og bremsubúnað og 12 bolta drif. Þá er 12 bolta hásingin stytt í rétta lengd og hásingarendarnir af Hilux soðnir á.
Hin leiðin er að nota lengri Hilux framöxulinn og naf af 4Runner og gera fljótandi hásingu en það er aðeins meira mix…
08.04.2009 at 22:32 #638966aggúru naf af 4runner? vikrar ekki naf af venjulegri hilux hásingu einnig?
08.04.2009 at 22:42 #638968innri öxlarnir í hiluxinum að framan eru 30 rillur í drifi og svo 27 rillur í kúluliðinn.
loka/naf af hásingu er með 30 rillum en ifs dótið er með 27 rillum.
þessvegna passar nafið af 4runner eða einhverju öðru ifs dóti í þessu á endann á innri öxlinum þegar búið er að fjarlægja kúluliðinn.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.