FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Tölvukubbur í Toy 2,4 efi

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Tölvukubbur í Toy 2,4 efi

This topic contains 3 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Emil Borg Emil Borg 22 years, 4 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 07.02.2003 at 10:49 #192141
    Profile photo of
    Anonymous

    Þekkir einhver hvort hægt sé að fá tölvukubb í Toyota 2,4 EFI bensínvélina? Og þá hvort þetta sé að skila einhverju sem um munar?

    Kv – Skúli H.

  • Creator
    Topic
Viewing 3 replies - 1 through 3 (of 3 total)
  • Author
    Replies
  • 07.02.2003 at 11:52 #468140
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sæll Skúli
    Ég veit að [url=http://www.superchips.is:1zc49ys7]Superchips á Íslandi[/url:1zc49ys7] er að selja tölvukubba í þessa vél. Ég sendi inn fyrirspurn fyrir 2 árum og fékk þá þessi svör

    Sp : Hver verður helsta breytingin við tölvukubbinn?
    Sv : Breytingin skilar sér að miklu leiti í tog aukningu. Þú finnur kannski ekki mikin mun í upptaki (ef hann er mikið upphækkaður) en þú munt finna mun þar sem bifreiðin þarf að taka á eins og t.d. í brekkum eða við að draga kerrur. Einnig við framúrakstur og eins er tíminn betri á ferðinni t.d milli 30km og 50km. Sem sagt hann verður allur léttari í akstri sem nemur 10% í hö og 15% í
    togi.

    Sp : Hefur þetta áhrif á bensíneyðslu?
    Sv : Aðal markmið svona breytinga er að reyna að auka afl bifreiðar, stundum á kostnað mengunar og jaðar reglugerða sem eru ekki í gildi hér á landi og verða það örugglega ekki í nánustu framtíð.
    Superchips úti fullyrða litla sem enga breytingu í eyðslu.
    Reynsla mín er þannig að ef þú keyrir "eðlilega" rólega þá er eyðslan svipuð og reyndar oft á tíðum minni!
    En við ótæpilegan akstur hefur vitnast meiri eyðsla.
    Sem dæmi þá var Ford Mondeo 1,6 mældur fyrir og eftir breytingu, reyndar var um breytingu yfir í 98oktana bensín, og kom niðurstaðan skemmtilega á óvart.
    Á tankfylli fór hann fyrir breytingu 600km og af því 100km á langkeyrslu en eftir breytingu 650km og var það allt innanbæjar keyrsla við c.a.10 gráðu lægra hitastig.
    En eins og ég segi þá er aðal markmiðið að auka afl bifreiðar og hefur þess vegna eldsneytissparnaður verið óvæntur en ánægulegur fylgifiskur.

    Sp : Hefur þessi breyting áhrif á endingu bílsins?
    Sv : Ekki hafa komið upp nein vandkvæði hvað þetta varðar nema þegar menn hafa verið að reyna að setja þetta sjálfir í án nægilegrar kunnáttu.
    Áhrif á vélarhluti á ekki að eiga sér stað, ef það er grunur á að það sé eitthvað að vélarhlutum þá er ekki æskilegt að setja kubb í bifreiðina af þeirri einföldu ástæðu að honum yrði kennt um ef eitthvað bilar þó svo að það væri honum að öllu leiti óviðkomandi.
    Það á ekki að setja kubba í vélar sem eru illa stilltar, með gangtruflunum eða eitthvað þess háttar.

    Sp : Ég er með flækjur í bílnum, hefur það áhrif á aflaukningu?
    Sv : Flækjur gera ekkert nema gott fyrir bifreiðina og með því að setja kubb og kraftloftsíu í bifreiðina þá er ertu kominn með góða þrennu.
    Aflið af kubbnum mun skila sér betur ef flækjur eru til staðar.

    Sp : Á hvaða snúningi á breytingin að hafa mest áhrif?
    Sv : Afl aukningin kemur að mestu við lægri snúning þar sem togið er aðalþátturinn en síðan einnig á hærri snúning þar sem hestöflin fara að skila sér. Reyndar er þetta vél með frekar lágt snúningssvið þannig að það má búast við því að mestan munin sé að finna á lægri snúningssviði.

    Það væri gaman að heyra frá einhverjum sem hefur prófað þetta og hver reynslan hefur verið.

    Kveðja
    Bjarki





    07.02.2003 at 13:36 #468142
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Takk fyrir þetta Bjarki, þetta er greinilega eitthvað sem má pæla í. Skv. þessu virkar þetta einmitt þar sem maður vill meira. Tek undir það að það væri gaman að heyra frá einhverjum sem hefur reynslu af þessu.
    Kv – Skúli





    07.02.2003 at 15:49 #468144
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sælir.

    Má ekki aðeins pæla í þessum kubbum sem Benni talaði um á síðasta fundi? Hann sagði þá auka afl bensín túrbó bíla um 25-35%, og kubbinn vera viðbót v. tölvuna sem er til staðar í bílnum.

    Mér fanst það hljóma spennandi.

    Emil





  • Author
    Replies
Viewing 3 replies - 1 through 3 (of 3 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.